Deilieldhúsið Eldstæðið, atvinnueldhús fyrir matarfrumkvöðla og smáframleiðendur er sprottið út
frá eigin reynslu og áskorunum. Eva Michelsen, frumkvöðullinn bakvið hugmyndina, hefur sjálf
verið að leita sér að hagkvæmri og vottaðri vinnuaðstöðu sem hefur allt til alls án þess að þurfa
fara í meiriháttar fjárfestingar sem fylgja matvælaframleiðslu.
Eldstæðið mun bjóða upp á fjórar vinnustöðvar, tvær til eldunar og tvær fyrir undirbúning (prep),
þurrlager, kæli- og frystilager ásamt deiliskrifstofu og fundar/viðburðarrými. Þar verður einnig
hægt að fá ráðgjöf og leiðbeiningar með fyrstu skrefin, frá matvælahugmynd að fullunninni vöru í
verslun.
Hvernig vaknaði hugmyndin að verkefninu?
„Hugmyndina fékk ég þegar ég tók þátt í Bandarísku frumkvöðlaprógrammi sem nefnist YTILI.
Þar gafst mér tækifæri á að heimsækja Washington DC og hitta þar ótal matarfrumkvöðla og
hagkvæmar lausnir fyrir þá.
en hún er loksins að verða að veruleika. Ég hef verið á höttunum eftir hinu “fullkomna” húsnæði,
staðsetningu og svo framvegis. Við fengum 315 fm húsnæði á Nýbýlavegi sem er frábær
staðsetning upp á dreifingarleiðir ofl.“
Segðu okkur frá þema verkefnisins?
„Held það megi með sanni segja að þemað sé matarfrumkvöðlar, nýsköpun og að lækka kostnað
inn á markað fyrir einstaklinga og fyrirtæki með skemmtilegar matvælahugmyndir og nýjungar.
Matur er og verður alltaf til staðar og hefur átt sér stað einstaklega góð og skemmtileg þróun
með mat og matarhefðir Íslendinga undanfarin ár. Eldstæðið er skemmtileg viðbót við þessa
flóru og tel ég að það muni hjálpa mörgum við að stíga sín fyrstu skref og að Íslendingar nær og
fjær muni njóta góðs af.“
Nú eru í boði nokkur áheit sem veita aðgang að Eldstæðinu, eru þessi verð
sambærileg því sem má búast við að aðstaðan kosti?
„Já, þetta eru extra hagstæð kjör og hugsuð fyrir þá sem vilja taka smá prufukeyrslu. Það er eitt
áheit sem mér þykir sérstaklega spennandi og það er að „sponsa frumkvöðul”. Ég er nokkuð
viss um að við þekkjum að lágmarki eina manneskju í okkar nærumhverfi sem er að gera
allskonar tilraunir með matvæli og hefði gagn og gaman af því að komast í atvinnueldhús í
hálfan dag til að prófa sig áfram. Þetta gæti því verið tilvalin gjöf fyrir matarunnendur í þínu
nærumhverfi.“