Með dreifingarsamning við Sony og safnar fyrir útgáfu á breiðskífu

Karitas var í Suzuki-skóla og gekk síðar til liðs við Reykjavíkurdætur. Nú ætlar hún að hefa út fyrstu sólóplötu sína í byrjun næsta árs, og safnar fyrir því á Karolinda fund.

Auglýsing
IMG05740j3000x3000 (2).jpg

Kar­ítas Óðins­dóttir er söng­kona, laga­höf­undur og plötu­snúður fædd og upp­alin í Borg­ar­firð­in­um. Hún gaf út sína fyrst­u EP ­plötu haustið 2019 sem nefn­ist „Songs 4 Crying” og má lýsa tón­list­inni sem dimmri popptón­list með R&B í­vafi. Kar­ítas hefur komið víða að í tón­list­ar­sen­unni  bæði hér á landi sem plötu­snúður og erlendis með hljóm­sveit­inni sinni, Reykja­vík­ur­dæt­ur, en sú sam­vinna hvatti hana til þess að sækj­ast eftir sól­ó­ferli og hefur fengið bæði góðar við­tökur og hún skrif­aði undir dreif­ing­ar­samn­ing við ­Sony Den­mark. Í byrjun apríl 2020 gaf hún út fyrsta sín­gúl­inn af kom­andi breið­skífu sem nefn­ist „Shame” og er núna söfn­unin fyrir plöt­unni í fullum gang­i inn­á Karol­ina fund.

Kar­ítas seg­ist hafa verið í tón­list síðan hún muni eftir sér. „Þegar ég var 4 ára þá sendi mamma mig í Suzuki ­skól­ann til þess að læra á fiðlu og gerði það í nokkur ár. Hug­myndin að sóló verk­efni hafði alltaf verið efst í huga hjá mér en ég átti alltaf erfitt með að láta vaða þar sem að ég byrj­aði ekki að semja mína eigin tón­list fyrr ­upp­úr tví­tugt. Ég hélt að ég hefði það bara ekki í mér en svo í kjöl­far af miklum missi opn­að­ist fyrir eitt­hvað og lögin byrj­uðu að flæða. Síðan í jan­úar er ég búin að vera að vinna í nýrri tón­list ásamt góðu fólki og er mjög spennt að koma henni frá mér. Er ótrú­lega þakk­lát fyrir allt fólkið í kringum mig og góðu hlut­ina sem að hafa verið að ger­ast, þar á meðal að hafa skrifað undir samn­ing­inn hjá ­Sony. Þetta ýtir veru­lega undir drif­kraft­inn til að gefa út og gera meira.“

Auglýsing
Hún segir að platan snú­ist um ­per­sónu­leg­ar lífs­reynsl­ur í tengslum við ást­ina og alls­konar til­finn­ingar sem hægt sé að finna í því mengi. „Það má einnig lýsa tón­list­inni sem dimmri popptón­list með R&B í­vafi og eru lögin samin út frá hráum til­finn­ing­um. Ég finn mikla sköp­un­ar­gleði í því að radda og verður mikið af til­raun­ar- og draum­kenndum rödd­unum á plöt­unni. Fyrsti sín­gúll­inn kom út í apríl á þessu ári sem nefn­ist „Shame" en hann er hægt að finna á öllum helstu streym­isveit­u­m.“

Stefnt er að því að hefa plöt­una út í byrjun árs 2021 ef allt gengur eft­ir! 

Hægt er að forp­anta plöt­una á vín­yl á Karol­ina fund með því að styrkja og fleira.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk