„Drollur níunnar“ og „bjagaðar minningar“ unglingsáranna

Snorri Helgason segir lög á nýrri plötu sinni fjalla um hugarheim sinn á unglingsárum og „fílinginn að vera unglingur í kringum aldamótin.“

Snorri Helgason
Snorri Helgason
Auglýsing

Tón­list­ar­mað­ur­inn Snorri Helga­son gefur út sína sjö­undu sóló­plötu sem ber heitið Víði­hlíð. Lög af plöt­unni eins og Haustið '97, Ingi­leif og Hæ Stína hafa ómað á öldum ljós­vakans síð­ast­liðið ár og nú kemur platan loks út á vínyl og hóp­fjár­mögnun er í gangi á Karol­ina fund vegna þessa.

Auglýsing

„Ég samdi slatta af lögum á frekar stuttu tíma­bili sem voru dálítið af sama meiði, þ.e. .au áttu það sam­eig­in­legt að fjalla um hug­ar­heim minn sem ung­lingur og fíl­ing­inn að vera ung­lingur í kringum alda­mót­in,“ segir Snorri spurður um hvernig hug­myndin að lög­unum kvikn­aði. „Þetta voru svona nostal­gísk popp­lög sem ég átti allt í einu á lag­er. Ég ákvað að skipta þessum laga­bunka í tvennt og taka þau upp með tveimur mis­mun­andi upp­töku­stjórum og gera tvær EP plöt­ur.“

Sú fyrri kom út staf­rænt í októ­ber í fyrra og stjórn­aði Guð­mundur Óskar Guð­munds­son upp­tökum á henni en sú seinni kom út nú í apríl og Dan­íel Frið­rik Böðv­ars­son stýrði henni. Nú er svo komið að „físískri útgáfu“ á þessum tveimur EP-­plötum sam­ein­uðum í eina stóra vín­yl­plötu.

„Lögin fjalla flest um ein­hvers konar bjag­aðar minn­ingar frá ung­lings­árum mín­um,“ segir hann um tón­list­ina. „Lög eins og Ingi­leif sem fékk tölu­vert mikla útvarps­spilun síð­asta haust fjallar um ímynd­aða vin­sæl­ustu stelpuna í skól­anum sem ég mæti svo tutt­ugu árum seinna bug­aða og þrot­aða á Eiðis­torgi. Sömu­leiðis lagið Hæ Stína sem fjallar um fólk sem fór í leyni­legan sleik sem ung­lingar á Reykjum í Hrúta­firði en svo gerð­ist ekk­ert meira fyrr en þau hitt­ast aftur löngu seinna.“

Snorri leit­aði til hönn­uð­ar­ins Bobby Breið­holts varð­andi plötu­umslagið sem hann hef unnið með að síð­ustu útgáfum sín­um. „Við fórum að „brain­storma“ hvað gæti hentað fyrir plötu sem er svona kyrfi­lega „plass­eruð“ í íslensku sam­fé­lagi um seinni hluta níunnar og strax eftir alda­mót­in. Við fórum að hanga inn á tíma­rit.is og kasta milli okkar nostal­g­íu­boltum og fljót­lega kvikn­aði sú hug­mynd að vísa í plötu­umslög skosku hljóm­sveit­ar­innar Belle & Sebast­ian sem við hlust­uðum mikið á á þessum tíma.“

Umslög hennar eru yfir­leitt ljós­myndir af fólki í tví­lit. „Við fórum þá að máta þetta við okkar pæl­ingar og þá kom ekk­ert annað til greina en að fók­usera á nokkrar vel valdar 90’s/e­arly 00’s drollur eins og Ingi­björgu Stef­áns í Pís of Keik, Stein­unni Ólínu, Þóru Dungal í Blossa, Brynju X og Önnu Rakel,“ útskýrir Snorri.

Hér er hægt að taka þátt í söfn­un­inni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk