Aðild Tyrkja að NATO gæti verið í hættu

Tyrkland getur gleymt aðild að Evrópusambandinu og gæti misst aðild sína að NATO verði dauðarefsing tekin upp þar í landi.

John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Federica Mogherini, utanríkismálastjóri ESB, á blaðamannafundi í dag.
John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Federica Mogherini, utanríkismálastjóri ESB, á blaðamannafundi í dag.
Auglýsing

John Kerry, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, fundar með utan­rík­is­ráð­herrum aðild­ar­ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins og Feder­icu Mog­her­ini, utan­rík­is­mála­stjóra ESB, í dag. Þau lögðu áherslu á að Tyrkir yrðu að fylgja lögum og reglu í með­ferð þeirra á þeim sem taldir eru bera ábyrgð á valda­ránstil­raun­inni í Tyrk­landi á föstu­dag.

Tyrk­land er aðili að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu (NATO) og þaðan hafa vest­ræn ríki flogið hern­að­ar­leið­angra yfir yfir­ráð­ar­svæði Íslamska rík­is­ins í Sýr­landi og Írak. Allar slíkar ferðir frá Tyrk­landi voru stöðv­aðar við valda­ránstil­raun­ina á föstu­dag, enda var loft­rými Tyrk­lands lok­að.

Kerry lagði áherslu á það þegar þau Mog­her­ini ávörp­uðu blaða­menn fyrir fund utan­rík­is­ráð­herr­anna að NATO hefði strangar reglur um að lýð­ræði væri við lýði í aðild­ar­ríkjum hern­að­ar­banda­lags­ins. NATO myndi í fram­hald­inu „fylgj­ast náið með fram­vind­unni“ í Tyrk­landi. Í stofnsátt­mála NATO, Atl­ants­hafs­sátt­mál­an­um, sem und­ir­rit­aður var 1949 segir í inn­gangi að aðilar banda­lags­ins séu „stað­ráðnir í því að varð­veita frelsi þjóða sinna, […] er hvíla á meg­in­reglum lýð­ræð­is, ein­stak­lings­frelsi og lögum og rétt­i.“

Auglýsing

Recep Tayyip Erdogan, for­seti Tyrk­lands, lagði það til í ræðu á sunnu­dag að tyrk­neska þingið myndi íhuga að taka upp dauða­refs­ingu í land­inu á ný eftir atburði föstu­dags­ins. Það gæti þingið gert í krafti þess sem stuðn­ings­menn hans hróp­uðu á strætum og þess hvað klerkar í moskum hafa farið fram á. „Við getum ekki hundsað þessa kröf­u,“ sagði Erdogan í æstum múg fyrir utan heim­ili hans í gær. „Í lýð­ræð­is­ríkjum þarf það að ger­ast sem fólkið vill að ger­ist.“

Þegar hafa meira en 7.500 manns verið hand­teknir í Tyrk­landi í kjöl­far valda­ránstil­raun­ar­inn­ar. Í fjöl­miðlum hefur verið talað um póli­tískar hreins­anir í land­inu. Meðal þeirra sem hand­teknir hafa verið eru hæsta­rétt­ar­dóm­ar­ar, her­menn, lög­reglu­menn, yfir­menn í stjórn­sýslu lands­ins og fleiri valda­menn. Hand­tök­urnar eru oftar en ekki hrotta­fengn­ar. Ljós­myndir sýna suma hand­járn­aða við gólfið á lög­reglu­bílum og afklædda. Fólk­inu er svo ýmist haldið í fang­elsum eða stórum íþrótta­sölum sem breytt hefur verið í bráða­brigða­fang­elsi.

Fjöl­margir leið­togar vest­rænna lýð­ræð­is­ríkja hafa stigið fram og hvatt stjórn­völd í Anak­ara til að fara að lögum og reglu í upp­gjöri sínu við þá sem stóðu að valda­ránstil­raun­inni. Kerry og Mog­her­ini ítrek­uðu þetta á fundi sínum í dag. Tals­maður Ang­elu Merkel, kansl­ara Þýska­lands, hefur sagt að Tyrk­land geti gleymt Evr­ópu­sam­bands­að­ild verði dauða­refs­ingar teknar upp á ný.

Haft er eftir Lilju Alfreðs­dótt­ur, utan­rík­is­ráð­herra Íslands, á vef ráðu­neyt­is­ins að Íslend­ingar hvetji til still­ingar og sátta í Tyrk­landi. „Lýð­ræð­is­lega kjörin stjórn­völd halda völdum mik­il­vægt er að stöð­ug­leiki kom­ist á sem fyrst. […] Vopnað valda­rán gegn lýð­ræð­is­lega kjörnum stjórn­völdum er árás á lýð­ræð­ið. Á alþjóða­vett­vangi talar Ísland fyrir lýð­ræð­is­legum ferlum og mann­rétt­indum sem öllum rík­is­stjórnum ber að virða.“

Banda­ríkin og Evr­ópu­sam­bandið styðja stjórn­völd í Tyrk­landi og standa með stjórn­völdum þar í landi um að þeir sem stóðu að valdarán­inu verði sóttir til saka. „Við gerum hins vegar einnig þá kröfu að stjórn­völd í Tyrk­landi beiti sér af yfir­vegun og gæti jafn­ræðis í land­in­u,“ sagði Kerry í dag. Hann bætti við að nú von­að­ist hann til að tyrk­nesk stjórn­völd myndu standa við það sem þau segja að sé horn­steinn­inn að land­inu þeirra, og átti þar við umdeildar lýð­ræð­is­yf­ir­lýs­ingar Erdog­ans for­seta.

Meira en 290 manns lét­ust í valda­ránstil­raun­inni og um það bil 1.400 manns særð­ust á föstu­dags­kvöld og í mót­spyrnu tyrn­keskra stjórn­valda í kjöl­far­ið. Í dag var um 8.000 lög­reglu­mönnum sagt upp störfum vegna meintra tengsla þeirra við vald­ræn­ingja.

Í NATO eru nú 28 ríki. Ísland er meðal stofn­að­ila Atl­ants­hafs­banda­lags­ins. Tyrk­land fékk inn­göngu árið 1952. Frá 1999 hefur mörgum af ríkjum Aust­ur-­Evr­ópu verið veitt aðild að NATO; mörg þeirra voru hluti af Var­sjár­banda­lag­inu sem var svar aust­an­tjalds­landa við Atl­ants­hafs­banda­lag­inu. Banda­ríkin eru eina aðild­ar­ríki NATO sem leyfir dauða­refs­ing­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None