Sjálfstæðisflokkurinn minnkar enn í kosningaspánni

Vinstri græn hafa nú stuðning 27 prósent kjósenda miðað við kosningaspána.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður flokksins, ganga í þingsal.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður flokksins, ganga í þingsal.
Auglýsing

Vinstri hreyf­ingin – grænt fram­boð nýtur nú lang mests stuðn­ings fyrir Alþing­is­kosn­ing­arnar 28. októ­ber næst­kom­andi, með 27 pró­sent stuðn­ing þegar þrjár vikur eru til kosn­inga. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tapar enn fylgi og er nú með 22,1 pró­sent í kosn­inga­spánni.

Vinstri græn hafa bætt miklu fylgi við sig síðan rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­son­ar, for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, féll 15. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Í Alþing­is­kosn­ing­unum í fyrra fengu Vinstri græn 15,9 pró­sent atkvæða.

Ólík­legt er að nýj­ustu vend­ingar á sviði stjórn­mál­anna í gær hafi haft áhrif á nýj­ustu könn­un­ina sem reikn­ast í kosn­inga­spánni. Það er könnun Félags­vís­inda­stofn­unar Háskóla Íslands sem birt var í morg­un, laug­ar­dag.

Sam­fylk­ingin mælist nú þriðja stærsta fram­boðið í kosn­inga­spánni með 10,4 pró­sent stuðn­ing. Píratar eru nú með 10 pró­sent stuðn­ing og eru orðið fjórða stærsta fram­boð­ið. Píratar hafa verið næstir á eftir Vinstri grænum og Sjálf­stæð­is­flokknum í kosn­inga­spánni síðan kosið var síð­ast til Alþing­is. Þar áður hafði fylgi við Pírata náð meira en 40 pró­sent í upp­hafi árs 2016.

Auglýsing

Kosn­inga­spáin er unnin af Baldri Héð­ins­syni í sam­starfi við Kjarn­ann í aðdrag­anda kosn­inga á Íslandi. Lesa má um aðferða­fræði og fram­kvæmd kosn­inga­spár­innar á kosn­inga­spár­vef Kjarn­ans eða á kosn­inga­spa.is.

Flokkur fólks­ins og Mið­flokk­ur­inn mæl­ast með nógu mikið fylgi til þess að gera sig gild­andi á Alþingi, ef nið­ur­stöður kosn­inga­spár­innar eru í takt við nið­ur­stöður kosn­ing­anna. Flokkur fólks­ins mælist með 8,4 pró­sent fylgi og Mið­flokk­ur­inn með 8,3 pró­sent.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn tapar fylgi á milli kosn­inga­spáa og er nú með 6,5 pró­sent. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur fallið úr rúm­lega 10 pró­sent stuðn­ingi eftir fall rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Það verður að telj­ast áhyggju­efni fyrir for­ystu flokks­ins en ljóst er að klofn­ingur innan flokks­ins og til­koma fram­boðs Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar hefur hoggið stórt skarð í Fram­sókn­ar­flokk­inn.

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir Við­reisn og Björt fram­tíð mæl­ast með enn minna fylgi en þeir gerðu síð­ast. Við­reisn hefur stuðn­ing 3,5 pró­sent kjós­enda og Björt fram­tíð þrjú pró­sent.

Hægt er að skoða nýj­ustu kosn­inga­spána í kosn­inga­mið­stöð Kjarn­ans. Þar má einnig lesa í líkur á því að fram­boðin geti myndað saman meiri­hluta á þingi, miðað við nið­ur­stöður kosn­inga­spár­inn­ar.

Þær kann­anir sem liggja til grund­vallar kosn­inga­spánni sem fjallað er um hér 7. októ­ber eru eft­ir­far­andi:

  • Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 2. – 6. októ­ber (vægi 38,5%)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins, Stöðvar 2 og Vísis 2-3. okt (vægi 22,2%)
  • Skoð­ana­könnun MMR 26. – 28. sept­em­ber (vægi 19,7%)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 15. – 28. sept­em­ber (vægi 16,6%)
Niðurstöður kosningaspár 7. október 2017
Kosningaspáin var gerð 7. október 2017.
Þróun fylgis stjórnmálaflokka í kosningaspánni
Fylgi flokka miðað við kosningaspána frá og með 30. ágúst 2017.
B C D F M P S V Aðrir

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent