Svokallað búrkubann tók gildi í Danmörku í dag, en samkvæmt því er refsivert að hylja andlit sitt með hvers kyns höfuðbúnaði á almannafæri. Þeim sem gerast sekir um að hafa brotið gegn banninu verður gert að borga 17 þúsund íslenskar krónur í sekt. Þetta kemur fram í frétt á vef danska ríkisútvarpsins.
Kjarninn fjallaði um búrkubannið fyrr í sumar þegar danska þjóðþingið samþykkti frumvarpið á bak við löggjöfina, en margir þingmenn voru fjarstaddir þegar kosið var um það. Af 179 þingmönnum greiddu 75 atkvæði með frumvarpinu en 30 þeirra voru á móti.
Bannið gildir um hvers kyns höfuðbúnað sem hylur andlit, en umræðan um það spratt upp frá notkun á tvenns konar klæðnaði sem sumar múslimskar konur bera, búrkum og niqab. Bæði klæðin hylja allan líkamann og meirihluta andlitsins, en á búrkunni er eins konar net fyrir augun á meðan niqab hefur rifu á sama stað.
„Viðurkenndur tilgangur“
Lögin munu einnig ná til lambúshettna, grímubúninga og mótorhjólahjálma, nema það þjóni svokölluðum „viðurkenndum tilgangi.“ Gerist maður sekur um að hylja andlit sitt með einhverjum hætti án slíks tilgangs á maður í hættu á að verða sektaður um þúsund danskar krónur, sem jafngildir 17 þúsund íslenskum krónum.
Ríkislögregla Danmerkur sendi út leiðbeiningar til lögregluþjóna um hvernig þeir skuli framfylgja búrkubanninu. Samkvæmt leiðbeiningunum er ákvörðunin um „viðurkenndan tilgang“ í höndum lögregluþjónanna sjálfra. Claus Oxfeldt ríkislögreglustjóri sagðist í viðtali við danska ríkisútvarpið hafa viljað nákvæmari leiðbeiningar og biður um traust dæmi þeim til stuðnings.
Bannið hefur verið harðlega gagnrýnt í Danmörku, en múslimskir trúarleiðtogar þar í landi segja það brjóta á réttindum kvenna og þeirra trúfelsi. „Við getum ekki frelsað konur með því að brjóta á réttindum annarra kvenna. Við þurfum að finna aðra leið til að hjálpa konunum sem eru neyddar til að hylja sig,“ segir Sherin Khankan, kvenkyns imam í Danmörku. Við því bætir hún að nauðung af sérhverju tagi sé óásættanleg undir öllum kringumstæðum.