Hinn umdeildi Tommy Robinson, hefur verið bannaður á samfélagsmiðlunum Facebook og Instagram. Tommy Robinson er öfga-hægrisinnaður aðgerðarsinni en hann stofnaði meðal annars samtökin English Defence League árið 2009. Samtökin hafa það að markmiði að berjast gegn „íslamvæðingu“ í Bretlandi en auk þess hefur hann tekið þátt í þróun hinna andíslömsku Pegida- samtaka í Bretlandi. Aðgangi hans var eytt af samfélagsmiðlunum eftir að hann hafði ítrekað brotið reglur Facebook um hatursorðræðu. Frá þessu er greint á The Guardian.
Braut ítrekað reglur Facebook um hatursorðræðu
Fyrirtækið Facebook hefur sett sér þá stefnu að bannað er að nota hatursorðræðu á miðlum fyrirtæksins. Bannaið er er að ýta undir hatur og ofbeldi eða önnur form af umburðarleysi sem ganga á rétt fólks og verði fyrirtækið vart við slíkt efni er það fjarlægt samstundis. Auk þess er bannað að styðja opinberlega eða vera hluti af skipulögðum haturshópum á samfélasgmiðlinum. Samkvæmt tilkynningu frá Facebook hefur Robinson ítrekað hvatt til ofbeldis gagnvart múslimum á Facebook-síðu sinni.
Robinson var endanlega bannaður af miðlinum á dögunum eftir að fyritækið hafði sent Robinsson lokaviðvörun þess efnis að hann yrði fjarlægður af miðlinum ef hann héldi áfram að brjóta reglur fyrirtækisins um hatursorðræðu. Samkvæmt fyrirtækinu hélt Robinson ítrekað áfram að ýta undir hatur gagnvart múslimum og auk þess hafi hann deilt fjölda eineltismyndabanda á síðu sinni. Aðgangi hans hefur því nú verið lokað til framtíðar bæði Facebook og Instagram.
Í umfjöllun Guardian segir að nú þegar Robinson hefur verið bannaður á samfélagsmiðlum gæti það haft veruleg áhrif á möguleika hans að ná til fólk. Hann er nú þegar bannaðar á samfélasgmiðlinum Twitter síðan í mars í fyrra en í kjölfar bannsins á Facebook og Instagram hefur Robinson nú aðeins miðilinn Youtube til að ná til fylgjenda sinna og breiða út hugmyndafræði sína.
Robinson deildi myndbandi á Instagram rétt áður en aðgangi hans var lokað þar sem hann ásakaði Facebook um að vinna með fjölmiðlum með það að markmiði að ritskoða hann á sem flestum stöðum. Robison hefur ítrekað gagnrýnt fjölmiðla í Bretlandi fyrir ritskoðun og sagt þá í herferð gegn honum. Auk þess hefur hann birt vinsæl myndbönd á samfélagsmiðlum þar sem hann sýnir fram á meinta tvífeldni almennra fjölmiðla.
Átti að halda fyrirlestur hér á landi
Til stóð að Robinsson héldi fyrirlestur hér á landi á ráðstefnu á Grand Hótel í fyrra en það voru samtökin Vakur sem stóðu að henni. Ekkert varð þó úr viðburðunum og endaði Robinson á að koma ekki til landsins.
Þá kærði Sigurfreyr Jónasson blaðamanninn Sigmar Guðmundsson til Blaðamannafélagsins fyrir hönd Robinson. Ástæðan var viðtal Sigmars við Viðar Þorsteinsson, heimspeking, í Morgunútvarpinu á Rás 2 í febrúar þar sem þeir ræddu Robinson og fyrir hvað hann stæði. Kærunni var að lokum vísað frá en hún barst nefndinni of seint.