Spænskt öryggisfyrirtæki njósnaði um Assange í sendiráði Ekvador

Fyrirtækið kom upp myndavélum með hljóðbúnaði og tók upp fjölmarga fundi sem Assange átti með lögfræðingum sínum og heimsækjendum.

Julian Assange
Auglýsing

Njósnað var um Julian Assange, stofn­anda Wiki­leaks, á meðan hann dvaldi í sendi­ráði Ekvador í London. Njósnað var um Assange allan sól­ar­hring­inn frá des­em­ber 2017 til mars 2018. Þetta kemur fram í frétt El País. 

Sam­kvæmt gögn­unum sem blaða­menn­irnir hafa undir höndum var skjöl­um, mynd­böndum og hljóð­brotum af Assange safnað af spænska örygg­is­fyr­ir­tæk­inu Und­ercover Global S. L.. Fyr­ir­tækið sá um örygg­is­gæslu við sendi­ráðið á árunum 2012 til 2018.

Auglýsing
Fyrirtækið kom upp mynda­vélum með hljóð­bún­aði og tók upp fjöl­marga fundi sem Assange átti með lög­fræð­ingum sínum og heim­sækj­end­um. Assange ræddi við lög­fræð­inga sína um laga­legar aðgerðir sem hann gæti tekið og  mögu­lega flótta­að­gerðir úr sendi­ráð­inu til Rúss­lands eða Kúbu. Hins vegar hafi Assange ekki viljað flýja því það myndi telj­ast sem ósig­ur, að því er kemur fram í frétt­inni.

­Sam­kvæmt frétt­inni var nánar fylgst með Assange eftir að Lenin Mor­eno varð for­seti Ekvador í maí 2017. Mor­eno veitti einmitt breskum yfir­völdum aðgengi að Assange svo þau gætu hand­tekið hann.

Assange reyndi að hindra njósnir

Örygg­is­fyr­ir­tækið skrif­aði dag­lega skýrslu um Assange, hvað hann hafði gert þann dag­inn og jafn­vel í hvaða skapi hann hafi ver­ið. Í skýrsl­unum var skrifað um við­brögð Assange við dóm­inum gegn Mann­ing og var Assange sam­kvæmt þeim afar stress­aður og upp­spenntur í kjöl­far fregna af dóm­in­um. Einnig er skrifað um fund Assange með Pamelu And­er­son. Þau hafi deilt upp­lýs­ingum með því að skrifa miða og notað tæki sem hafi brenglað raddir þeirra, að því er kemur fram í frétt­inn­i. 

Ljóst er að Assange hafi verið afar var um sig og reynt að hindra að hægt væri að njósna um hann, þar sem hann hafi kveikt á tæk­inu sem brengl­aði raddir hans og gesta hans. Hins vegar hafi tækið ekki komið í veg fyrir að ­ör­ygg­is­fyr­ir­tækið hafi getað hlustað á allar sam­ræður hans, sam­kvæmt frétt El País. Jafn­framt hafi fyr­ir­tækið getað þysjað inn á miða hans. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent