Greta Thunberg biðlar til þingmanna að vera í liði með vísindum

Greta Thunberg heimsótti franska þingið í morgun. Hún biðlaði til þingmanna að hlusta á vísindi og láta börn ekki ein bera ábyrgðina á því að breyta stefnum ríkja í loftslagsmálum.

Greta Thunberg
Auglýsing

Greta Thun­berg ávarp­aði í morgun franska þingið þrátt fyrir að ýmsir hægri­s­inn­aðir franskir þing­menn hafi hvatt til þess að ávarpið væri snið­geng­ið, að því er kemur fram í frétt Le Monde. 162 franskir umhverf­is­vernd­un­­ar­sinn­aðir þing­­menn buðu henni að tala á þing­inu. Heim­sókn Gretu í franska þingið hefur vakið deilur á meðal þing­manna þar í landi. Hægri­s­inn­aðir þing­menn snið­gengu ávarp hennar og hvöttu aðra þing­menn til að gera slíkt hið sama.

Greta sagði að þing­mönn­unum bæri ekki skylda til þess að hlusta á hana og önnur börn þar sem þau væri „hvort eð er bara börn.“ Hins vegar bæri þing­mönnum skylda til að hlusta á það sem vís­indin segja og biðl­aði til þing­mann­anna að vera í liði með vís­ind­um. 

Auglýsing
„Það er næstum eins og þið vitið ekki að þessar tölur séu til, eins og þið hafið ekki lesið síð­ustu skýrslu Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­mál sem fram­tíð sið­menn­ingar okkar veltur á,“ sagði Greta. „Eða kannski eruð þið ekki nógu þroskuð til þess að segja hlut­ina eins og þeir eru. Meira að segja þessar skyldur látið þið okkur bera, okkur börn­in.“

Kalla Gretu heimsenda spá­kona í stuttum hné­buxum

­Þing­menn­irnir köll­uðu hana „heim­­sendis gúrú“ og að hún væri „barna­­lega and­­staða við fram­far­­ir.“ Þetta kemur fram í frétt Le Monde. Hin sextán ára Greta hefur farið sem storm­­­sveipur um heim­inn og meðal ann­­­ars verið til­­­­­nefnd til frið­­­­­ar­verð­­­launa Nóbels.

Til að mynda skrif­aði Julien Aubert, þing­­maður lýð­veld­is­­sinna, í færslu á Twitter að hann virði hugs­ana­frelsi. „Ekki reikna með því að ég fagni spá­­konu í stuttum hné­bux­­um. Hræðslu­verð­­laun Nóbels,“ bætti hann þó við og vís­aði þar til þess að hún hefði verið til­­­nefnd til frið­­­ar­verð­­laun­anna. Guillaume Larri­­vé, þing­­maður í sama flokki og Aubert, hvatti einnig til að snið­­göngu á meðan Greta ávarp­aði þing­ið.

Helsta ógn olíu­­­fyr­ir­tækja

Greta Thun­berg og umhverf­isaktí­vistar eru helsta ógn Sam­­­taka olíu­­­-­út­­­­­flutn­ings­­­fyr­ir­tækja (OPEC) að mati Mohammed Barkindo, aðal­­­fram­­­kvæmda­­­stjóra sam­tak­anna. Greta  hefur sagt þetta vera stærsta hrós sem hún hafi hlot­ið, að því er kemur fram í frétt The Guar­d­i­­­an.

Íslensk börn hafa á föst­u­­­dögum í vetur skrópað í skól­ann og mætt á Aust­­­ur­­­völl til að krefja íslensk stjórn­­­völd um aðgerðir í lofts­lags­­­mál­­­um. Þau krefj­­­ast þess að Ísland taki af skar­ið, hlusti á vís­inda­­­menn, lýsi yfir neyð­­­ar­á­standi og láti hið minnsta 2,5 pró­­­sent af þjóð­­­ar­fram­­­leiðslu renna beint til lofts­lags­að­­­gerða. Þar verði atvinn­u­lífið einnig að axla ábyrgð og til þess verði ákveðin við­horfs­breyt­ing að eiga sér stað.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent