Bretar loka á komur fólks frá Danmörku vegna kórónuveirusmita á minkabúum

Nýjar sóttvarnaráðstafanir meina öllum nema breskum ríkisborgurum að koma til Bretlands frá Danmörku. Ástæðan er útbreiðsla kórónuveirunnar á dönskum minkabúum.

Frá því í sumar hafa rúmlega 200 manns á Jótlandi hafa greinst með kórónuveiruna sem rakin er til minka.
Frá því í sumar hafa rúmlega 200 manns á Jótlandi hafa greinst með kórónuveiruna sem rakin er til minka.
Auglýsing

Algjört bann hefur verið sett á komur ferða­manna frá Dan­mörku til Bret­lands með þeirri und­an­tekn­ingu að breskum rík­is­borg­urum verður leyft að koma til lands­ins en þurfa þá að sæta tveggja vikna sótt­kví ásamt öllum á sama heim­ili. Í gær voru settar reglur sem skyld­uðu alla sem komu til Bret­lands frá Dan­mörku að sæta tveggja vikna sótt­kví. Nú, sól­ar­hring síð­ar, hafa regl­urnar verið þrengdar með þeim hætti að eng­inn má koma frá Dan­mörku nema Bret­ar. Þetta gildir bæði um fólk sem dvalið hefur í land­inu og um fólk sem milli­lent hefur í Dan­mörku.

Ástæðan fyrir þessum hörðu sótt­varna­að­gerðum eru hin marg­um­töl­uðu smit sem greinst hafa á dönskum minka­búum nýver­ið. Frá því í sumar hafa rúm­lega 200 manns á Jót­landi greinst með kór­ónu­veiru sem rakin er til minkanna. Af þeim sökum hafa dönsk yfir­völd hert aðgerðir í norð­ur­hluta lands­ins. Þannig hafa íbúar sjö sveit­ar­fé­laga á Norð­ur­-Jót­landi verið beðnir um að halda sig innan sinna sveit­ar­fé­laga og sömu­leiðis hafa aðrir verið beðnir að ferð­ast ekki til þess­ara sveit­ar­fé­laga. Í kjöl­far útbreiðsl­unnar á búunum hafa Danir ákveðið að aflífa alla minnka á búum í land­inu, um 15 til 17 millj­ón­ir. Danir eru stærstu fram­leið­endur minka­skinna í heimunum og á dönskum búum eiga um 40 pró­sent heims­fram­leiðsl­unnar upp­runa sinn.

Auglýsing

Í frétt BBC segir að yfir­völd í Bret­landi muni hafa sam­band við hvern þann sem heim­sótt hefur Dan­mörku á und­an­förnum tveimur vik­um. Þá er þar haft eftir breskum emb­ætt­is­mönnum að þetta sé gert með það í huga að vernda lýð­heilsu Breta, enda sé það for­gangs­mál þar­lendra yfir­valda, og að ákvörð­unin verði end­ur­skoðuð eftir viku.

Í umfjöllun BBC kemur fram að Jeppe Kof­od, utan­rík­is­ráð­herra Dan­merk­ur, hafi sagt aðgerð­irnar vera „heldur rót­tækar“ og að hann hafi átt í sam­tali við utan­rík­is­ráð­herra Breta, Dom­inic Raab, í dag. Jeppe sagði enn fremur að dönsk heil­brigð­is­yf­ir­völd ynnu náið með alþjóð­legum heil­brigð­is­yf­ir­völdum við að dreifa upp­lýs­ingum og að passað væri upp á að „við­eig­andi upp­lýs­ing­ar“ kæmust til breskra emb­ætt­is­manna.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent