Staðan á faraldrinum á Ísland er alveg ágæt, sérstaklega ef við horfum til landanna í kringum okkur, sagði Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á upplýsingafundi almannavarna í dag. „Það er ástæða til að gleðjast yfir því og njóta þess skjóls sem við verum í þessa dagana. En á sama tíma er gott að hafa í huga að þessi staða er viðkvæm, hún getur breyst hratt.“
Hann rifjaði svo upp hver staðan á faraldrinum var í september. „Ef við skoðun 11. til 18. september þá vorum við fyrst með eitt tilfelli, tvö, þrjú, sjö, fimmtán, 22, 23 og 74. Á þessu sjö daga tímabili förum við úr einu tilfelli á dag og endum í 74. Þannig að þetta er mjög hratt að gerast.“
Rögnvaldur rifjaði einnig upp orð Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis um að aðeins eitt smit þurfti til að koma stórri bylgju af stað. „Það er því engin ástæða til að slaka á gagnvart COVID eða setja smitvarnir og ábyrga hegðun í annað sætið.“
Rögnvaldur segist sjá vísbendingar um að fólk sé farið að slaka aðeins meira á en tilefni sé til, fleiri séu að hittast og í stærri hópum. „Í því samhengi er gott að hugsa núna: Hvað ætlið þið að gera um helgina? Passar það við það sem við erum að reyna að gera?“
Hann sagði gott að spyrja sjálfan sig: „Hvað get ég sagt í framtíðinni þegar ég fæ spurninga um hvað ég lagði að mörkum þegar COVID-faraldurinn gekk yfir? Get ég verið stolt af mínu framlagi eða var ég að þvælast fyrir?“
Sýnatökukallinu svarað
Almenningur hefur svarað kalli yfirvalda um að fara í sýnatöku ef minnstu einkenni finnast eftir að lægð varð í þeim fyrir nokkrum dögum. Fleiri sýni hafa því verið tekin síðustu daga en dagana á undan.
Þó að alvarlegur tónn hafi verið hjá Rögnvaldi og Þórólfi á fundi dagsins ítrekaði sá fyrrnefndi að ástæða væri til að gleðjast yfir stöðunni. „En það það þýðir þó ekki að við ætlum að vera með 100 manna partí.“
Hann ítrekaði svo skilaboð sóttvarnayfirvalda og almannavarna: „Ekki slaka á, þetta er ekki búið. Þetta getur breyst mjög hratt. Förum í sýnatöku ef við finnum fyrir einkennum. Höldum hópamyndun í lágmarki. Þannig getum við klárað þetta saman.“