Bæjarstjórnin skorar á Arion banka að hætta við áform um endurræsingu kísilversins

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar skorar á Arion banka að falla frá áformum um endurræsingu kísilversins í Helguvík og hefja viðræður við sveitarfélagið um aðrar og grænni leiðir.

Engin starfsemi hefur verið í kísilverksmiðjunni í Helguvík í rúmlega fjögur ár.
Engin starfsemi hefur verið í kísilverksmiðjunni í Helguvík í rúmlega fjögur ár.
Auglýsing

Allir ell­efu bæj­ar­full­trúar í bæj­ar­stjórn Reykja­nes­bæjar sam­þykktu á fundi í gær bókun þar sem skorað er á Arion banka, eig­anda kís­il­verk­smiðj­unnar í Helgu­vík, að falla frá áformum um end­ur­ræs­ingu henn­ar.

Auglýsing

Í bók­un­inni er fjallað um frétt Kjarn­ans frá því í síð­ustu viku þar sem upp­lýst var um að Arion banki og PCC SE, meiri­hluta­eig­andi kís­il­vers­ins PCC BakkiSil­icon hf. á Húsa­vík, hafi und­ir­ritað vilja­yf­ir­lýs­ingu varð­andi mögu­leg kaup á kís­il­verk­smiðj­unni í Helgu­vík. Um síð­ustu ára­mót lauk mati á umhverf­is­á­hrifum á end­ur­bót­um, end­ur­ræs­ingu og stækkun verk­smiðj­unnar með áliti Skipu­lags­stofn­unar.

„Bæj­ar­yf­ir­völd hafa áður lýst nei­kvæðri afstöðu sinni til end­ur­ræs­ingar og vilja til sam­starfs um aðrar leið­ir,“ segir í bók­un­inni. „Þá liggur það einnig fyrir að stærstur hluti íbúa er því algjör­lega mót­fall­inn að verk­smiðjan verði end­ur­ræst.“

Bæj­ar­stjórnin telur að nýtt mat á umhverf­is­á­hrifum gerir lítið til þess að breyta skoðun bæj­ar­yf­ir­valda og íbúa sveit­ar­fé­lags­ins. „Það er því ljóst að framundan gætu verið harðar langvar­andi deilur milli aðila, verði áfram haldið með þessi áform, sem gera ekk­ert annað en að valda öllum aðilum veru­legum skaða.“

Bæj­ar­stjórn ítrekar því vilja sinn til sam­ráðs um aðrar leiðir og ann­ars konar starf­semi í Helgu­vík.

Bæj­ar­full­trú­arnir sem sam­þykktu bók­un­ina eru: Anna Sig­ríður Jóhann­es­dóttir (D), Baldur Þ. Guð­munds­son (D), Díana Hilm­ars­dóttir (B), Frið­jón Ein­ars­son (S), Guð­brandur Ein­ars­son (Y), Guðný Birna Guð­munds­dóttir (S), Gunnar Þór­ar­ins­son (Á), Hall­dóra Fríða Þor­valds­dóttir (B), Mar­grét A. Sand­ers (D), Mar­grét Þór­ar­ins­dóttir (M) og Styrmir Gauti Fjeld­sted (S).

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent