„Löggæsla á Suðurnesjum er ekki kynþáttamiðuð“

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum fullyrðir að löggæsla í umdæminu sé ekki kynþáttamiðuð og þekkir hann ekki dæmi um slíka löggæslu.

Lögreglan
Auglýsing

Úlfar Lúð­víks­son, lög­reglu­stjóri lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum, segir lög­gæslu á Suð­ur­nesjum ekki kyn­þátta­mið­aða. „Og þekki ég ekki dæmi um slíka lög­gæslu,“ segir hann í svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um kyn­þátta­mörkun og verk­lag lög­reglu í kjöl­far ítrek­aðra afskipta lög­reglu af 16 ára dreng í apríl í tengslum við leit hennar að stroku­fanga.

Í kjöl­farið kom upp umræða um kyn­þátta­mið­aða lög­gæslu eða kyn­þátta­mörkun (e. racial profil­ing), það er þegar kyn­þáttur og/eða húð­litur er not­aður til þess að skil­greina ein­stak­linga eða hópa fólks og mis­munum gagn­vart þeim rétt­lætt á þeim for­send­um.

Hvorki lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu né lög­reglan á Suð­ur­nesjum halda sér­stak­lega utan um mál þar sem afskipti lög­reglu má mögu­lega rekja til kyn­þátta­mörk­un­ar.

Auglýsing

Líkt og fram hefur komið í umfjöllun Kjarn­ans um kyn­þátta­mörkun er hægt að nálg­ast upp­lýs­ingar um slík mál, þar sem kyn­þátta­miðuð lög­gæsla eða kyn­þátta­mörkun hafi mögu­lega komið við sögu, með leit í kerfi lög­reglu þar sem öll verk­efni lög­reglu eru skráð, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra. Því er hægt að leita í öllum gagna­grunn­inum að slíkum mál­um, það muni taka tíma, en í svari rík­is­lög­reglu­stjóra við fyr­ir­spurn Kjarn­ans segir að ekki sé hægt að fara í slíka vinnu.

Rík­is­lög­reglu­stjóri: Verðum að vera vak­andi fyrir kyn­þátta­mið­aðri lög­gæslu

Umræða um kyn­þátta­mörkun og kyn­þátta­mið­aða lög­gæslu hefur verið áber­andi eftir að lög­regla hafði í tvígang á tveimur dögum afskipti af ungum dreng í tengslum við leit að stroku­fanga. Báðir eru dökkir á hör­und og með svip­aða hár­greiðslu.

Úlfar Lúðvíksson hefur gegnt embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum síðan í nóvember 2020. Mynd: Facebook

Móðir drengs­ins átti fundi með Sig­ríði Björk Guð­jóns­dóttur rík­is­lög­reglu­stjóra eftir að lög­regla hafði afskipti af drengnum í fyrra skipt­ið, í strætó, og í kjöl­farið sendi rík­is­lög­reglu­stjóri frá sér yfir­lýs­ingu þar sem sagði að í sam­tal­inu hefðu komið fram mik­il­vægar áherslur sem rík­is­lög­reglu­stjóri ætl­aði að bregð­ast við, meðal ann­ars með því að eiga „sam­tal við sam­fé­lagið um for­dóma“.

Rík­is­lög­reglu­stjóri ræddi málið einnig á opnum fundi alls­herj­ar- og mennta­mála­nefndar að lög­reglan verði að vera vak­andi fyrir kyn­þátta­mið­aðri lög­gæslu. Þau skila­boð virð­ast ekki hafa kom­ist til skila til lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum sem kann­ast ekki við kyn­þátta­mið­aða lög­gæslu í umdæm­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent