Stefán skipaður ráðuneytisstjóri í ráðuneyti Guðlaugs Þórs – Staðan ekki auglýst

Ráðuneytisstjórinn í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti hefur ráðið sig til starfa hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Ráðherra hefur þegar skipað næsta ráðuneytisstjóra á grundvelli laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Auglýsing

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son hefur skipað Stefán Guð­munds­son, sem gegnt hefur emb­ætti skrif­stofu­stjóra á skrif­stofu fjár­mála og rekstrar í umhverf­is-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­inu, sem ráðu­neyt­is­stjóra frá og með 1. sept­em­ber næst­kom­andi.

Stefán Guðmundsson. Mynd: Stjórnarráðið

Staðan var ekki aug­lýst heldur var Stefán fluttur í emb­ættið á grund­velli laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins þar sem kveðið er á um heim­ild til flutn­ings emb­ætt­is­manna rík­is­ins milli emb­ætta. 

Sig­ríður Auður Arn­ar­dótt­ir, sem hafði gegnt emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í ráðu­neyt­inu frá árinu 2014 hefur ráðið sig til Orku­veitu Reykja­víkur sem stjórn­andi á nýju fagsviði Sam­hæf­ingar og stjórn­sýslu sem heyrir undir for­stjóra. 

Í til­kynn­ingu frá umhverf­is-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­inu kemur fram að Stefán sé mennt­aður við­skipta­fræð­ingur með kandídats­próf í stjórnun frá Háskóla Íslands. Hann starf­aði áður sem for­stöðu­maður rekstr­ar- og mannauðs­sviðs Mat­væla­stofn­un­ar, áður Land­bún­að­ar­stofn­un­ar, frá árinu 2006 til 2014.

Lilja mátti skipa Skúla Egg­ert

Þetta er ekki í fyrsta sinn á þessu kjör­tíma­bili sem ráð­herra skipar ráðu­neyt­is­stjóra á grund­velli laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins. Lilja Alfreðs­dótt­ir, menn­ing­ar- og við­skipta­ráð­herra, skip­aði Skúla Egg­ert Þórð­ar­son, þáver­andi rík­is­end­ur­skoð­anda, í það emb­ætti innan síns ráðu­neyti snemma á þessu ári.

Umboðs­maður Alþing­is, Skúli Magn­ús­son, óskaði eftir skýr­ingum á laga­legum grund­velli fyrir skipan hans og á brefum hans til ráð­herr­ans mátti merkja að hann átt­aði sig ekki fylli­lega á hvaða laga­legi grund­völlur hafi verið fyrir skip­un­inn­i. 

Auglýsing
Í mars sendi umboðs­maður Lilju bréf þar sem fram kom að athugun hans á skipan þáver­andi rík­­is­end­­ur­­skoð­anda í emb­ætti ráðu­­neyt­is­­stjóra nýs menn­ing­­ar- og við­­skipta­ráðu­­neytis sé lok­ið.

Í bréf­inu sagði meðal ann­­ars að í ljósi aðkomu og afstöðu þings­ins gagn­vart til­færslu Skúla Egg­erts úr emb­ætti rík­is­end­ur­skoð­anda yrði ekki hjá því kom­ist að líta svo á að það félli utan við starfs­­svið umboðs­­manns, þar sem það taki ekki til starfa Alþing­is, að fjalla um ákvörðun ráð­herra að skipa við­kom­andi með þeim hætti sem gert var og án und­an­­geng­innar aug­lýs­ing­­ar. Ekki væri því laga­skil­yrði til þess að emb­ætti umboðs­­manns geti haldið athugun sinni áfram.

Umboðs­­maður tók þó fram að með nið­­ur­­stöð­unni hefði engin efn­is­­leg afstaða verið tekin til atvika máls­ins eða þeirra skýr­inga sem hefðu verið færðar fram vegna þess.

Áslaug Arna braut gegn lögum

Þetta var ekki eina málið sem varð­aði skipan ráðu­neyt­is­stjóra sem umboðs­maður Alþingis skipti sér að. Hann óskaði einnig eftir skýr­ingum á tíma­bund­inni skipan Ásdísar Höllu Braga­dóttur sem ráðu­neyt­is­stjóra í háskóla-, iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu til þriggja mán­aða fyrr á þessu ári.

Ás­laug Arna Sig­ur­björns­dóttir skip­aði Ásdísi Höllu, sem er fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Garða­bæ, í emb­ættið í jan­ú­ar­lok 2022. 

Í bréfi Umboðs­­manns Alþingis til Áslaugar Örnu sagði að ekki yrði annað ráð­ið, í ljósi þess að verið væri að setja á fót nýtt ráðu­­neyti, að um nýtt emb­ætti innan ráðu­­neyt­is­ins væri að ræða.

Umboðs­­maður óskaði því eftir upp­­lýs­ingum „um hvort umrætt emb­ætti hafi verið aug­lýst til umsókn­­ar“ og ef svo hafi ekki ver­ið, óskaði hann eftir skýr­ingum frá ráð­herra á því á hvaða laga­grund­velli það hafi verið gert.

Í byrjun mars birti umboðs­maður álit þess efnis að Áslaugu Örnu hefði ekki verið heim­ilt að setja Ásdísi Höllu í emb­ættið án aug­lýs­ing­ar. Ráð­herr­ann hafi því brotið gegn lögum með ákvörðun sinni.

Áslaug Halla sótti um emb­ættið í byrjun mars og var tekin fram yfir aðra umsækj­endur þegar Áslaug Arna ákvað að skipa hana í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í apr­íl. Alls sóttu átta um emb­ætt­ið, fjórir drógu umsókn sína til baka og tveir voru metnir hæf­ast­ir. Á meðal umsækj­enda var Sig­ríður Auð­ur, þá ráðu­neyt­is­stjóri í umhverf­is-, orku- og loft­lags­ráðu­­­neyt­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent