Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur, um að ríkinu sé óheimilt að skikka þá sem hafa viðunandi aðstæður til þess að vera í sóttkví á eigin vegum í sóttvarnahús, séu vonbrigði að hans mati, fyrir þjóðina alla. Hann myndi vilja sjá Alþingi breyta lögum til þess að skjóta lagastoð undir aðgerðirnar.
„Tryggjum lagastoðina, höldum áfram með þessa öruggustu leið sem við getum haft þar til við höfum náð meiri útbreiðslu í bólusetningar og getum farið að slaka meira á, eins og við höfum verið að tala um,“ sagði Þórólfur í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Hann og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hafa boðað komu sína á fund velferðarnefndar Alþingis kl. 10 í dag til þess að ræða niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur. Sóttvarnalæknir segist einnig eiga von á því að málið verði rætt á vettvangi ríkisstjórnarinnar. Verið sé að skoða hvaða leiðir séu færar.
Heilbrigðisráðherra hafði lýst því yfir að undanförnu að hún og ráðuneytið teldu lagastoð fyrir því að skipa öllum sem kæmu frá ákveðnum hááhættusvæðum í sóttvarnarhús. Efasemdir höfðu verið uppi um það, sem fengu staðfestingu með úrskurði héraðsdóms í gær.
Þórólfur segir að hann telji skyldusóttkví í sóttvarnarhúsum fyrir þá sem koma frá þeim svæðum þar sem veirufaraldurinn er í hæstu hæðum hafi verið „langbesta og „langöruggasta“ leiðin til þess að koma í veg fyrir að ný bylgja faraldursins fari af stað innanlands.
„Auðvitað er hún ekki 100 prósent frekar en annað sem við erum að gera. En þetta held ég að hafi verið skásta leiðin. Ég held að það þurfi að skoða mjög vel, en auðvitað þarf lagagrundvöllurinn að vera í lagi. Það segir sig sjálft,“ sagði Þórólfur.
„Vonlaust“ að herða eftirlit með fólki heima hjá því
Hann sagði einnig í viðtalinu að hann teldi það „alveg vonlaust“ að herða eftirlit með fólki í sóttkví á sínu eigin heimili, mörg hundruð manns á hverjum tíma. Einnig væri vonlaust að tékka á því hvort fólk myndi búa við viðunandi aðstæður fyrirfram.
Sóttvarnalæknir sagði stöðuna aðra en áður þar sem nú væri um að ræða meira smitandi afbrigði kórónuveirunnar en áður. Minna þyrfti að fara úrskeiðis til þess að smit næði út í samfélagið.
„Ef þetta fær að standa svona þá held ég að hættan sé mjög mikil að við fáum meiri útbreiðslu,“ sagði Þórólfur.