Uppboð aflaheimilda skilaði árangri í annarri tilraun Namibíumanna

Önnur tilraun stjórnvalda í Namibíu til þess að bjóða upp aflaheimildir heppnaðist og skilaði jafnvirði tæplega 3,5 milljarða króna í ríkissjóð. Fjármálaráðherra landsins segir stjórnina sannfærða um að uppboð séu rétta leiðin til að úthluta kvótanum.

Frá Windhoek, höfuðborg Namibíu.
Frá Windhoek, höfuðborg Namibíu.
Auglýsing

Fjár­mála­ráð­herra Namib­íu, Iip­umbu Shiimi, segir að rík­is­stjórn lands­ins sé sann­færð um að upp­boð á kvóta verði áfram rétta fyr­ir­komu­lagið til þess að úthluta kvóta til tekju­öfl­unar fyrir rík­is­sjóð lands­ins.

Hann tjáð namibíska þing­inu í vik­unni að í nýlegum upp­boðum á alls rúm­lega hund­rað þús­und tonnum af kvóta í þremur fisk­teg­undum hefðu alls feng­ist 408 millj­ónir namibískra dala, jafn­virði tæp­lega 3,5 millj­arða íslenskra króna, fyrir tíma­bundin afnot afla­heim­ilda.

Frá þessu segir í fréttum miðl­anna Namibian Sun og The Namibian, en athygli vakti fyrir rúmu ári síðan er fyrsta til­raun stjórn­valda í Namibíu til þess að standa fyrir upp­boði á afla­heim­ildum fór gjör­sam­lega í vaskinn og skil­aði sára­litlum tekj­u­m.

Upp­boðið átti að vera leið til auk­ins gagn­sæis varð­andi úthlutun afla­heim­ilda til tekju­öfl­unar fyrir rík­is­sjóð, eftir að Fis­hrot-skandall­inn, eða mál Sam­herja í Namib­íu, kom upp á yfir­borð­ið.

Klúðrið í fyrra upp­boði fólst í því að nær allir þeir aðilar sem buðu í afla­heim­ild­irnar reynd­ust tóm­hentir þegar á hólm­inn var komið og komið var að því að greiða fyrir þær – og skildu rík­is­stjórn­ina eftir með „egg á and­lit­inu“, eins og það var orðað í umfjöllun The Namibi­an.

Kom­ist var hjá þessum vanda nú með því að inn­heimta trygg­ingafé af þeim aðilum sem buðu í kvót­ann.

Rík­is­stjórn Kongó tók rúm 27 þús­und tonn

Alls voru boðnar upp afla­heim­ildir fyrir 15.948 tonn af lýs­ingi, 87.500 tonn af hrossa­makríl og 392 tonn af skötu­sel á upp­boðum sem fóru fram frá því í júní og fram í lok ágúst, sam­kvæmt orðum ráð­herr­ans.

Auglýsing

Ekki tókst þó að selja allan hrossa­makríl­kvót­ann á upp­boði til inn­lendra aðila, en samn­ingar náð­ust við rík­is­stjórn Lýð­stjórn­ar­lýð­veld­is­ins Kongó um að kaupa þann 27.300 tonna kvóta sem út af stóð fyrir 85,7 millj­ónir namibískra dala.

Sam­kvæmt frétt namibíska blaðs­ins New Era frá því í sept­em­ber var ekki full sátt með söl­una á kvót­anum til Kongómanna hjá aðilum í namibískum sjáv­ar­út­vegi, en þó var búist við því að namibísk fyr­ir­tæki yrðu fengin til að veiða afl­ann, þrátt fyrir að honum yrði síðan landað í hafn­ar­borg­inni Matadi í Kongó.

„Ágóð­inn af upp­boð­unum mun renna til for­gangs­verk­efna stjórn­valda, sér­stak­lega í heil­brigð­is­geir­an­um, sem þarf á auknum fjár­munum að halda til að glíma við COVID-19,“ sagði ráð­herr­ann þing­inu.

Fréttin hefur verið upp­færð: Í fyrri útgáfu frétt­ar­innar var því rang­lega haldið fram, vegna villu í útreikn­ingum blaða­manns, að rík­is­stjórn Kongó hefði keypt hrossa­makríl­skvóta á því verði sem var með­al­verð á þeim upp­boðum sem namibísk stjórn­völd stóðu fyr­ir. Hið rétta er að Kongómenn greiddu hærra verð en fékkst í upp­boð­un­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent