Af hverju beitir VR sér ekki beint vegna arðgreiðslna tryggingafélaganna?

olafia_b_rafnsdottir_formadur_vr_stor-1.jpg
Auglýsing

Arð­greiðslur trygg­inga­fé­laga lands­ins, sem ætla að greiða hlut­höfum sínum sam­an­lagt 8,5 millj­arða króna í arð og kaupa hluta­bréf af þeim fyrir 3,5 millj­arða króna, hafa verið harð­lega gagn­rýndar und­an­farna daga. Ekki síst vegna þess að þessar greiðslur eru langt umfram hagnað félag­anna þriggja í fyrra. FÍB, félag íslenskra bif­reiða­eig­enda, segir til að mynda að trygg­inga­fé­lög stundi sjálftöku og grip­deildir úr sjóðum sem séu í raun í eigu við­skipta­vina þeirra. Félög­in, VÍS, TM og Sjó­vá, séu að fara að tæma bóta­sjóði til að greiða út ofan­greindan arð á næstu dög­um. Þessir sjóðir séu til vegna þess að trygg­inga­fé­lögin hafi verið með upp­sprengd iðgjöld af ofá­ætl­uðum tjón­um. 

Ólafía B. Rafns­dótt­ir, for­maður VR, gagn­rýndi arð­greiðsl­urnar einnig harð­lega í pistli sem hún birti á heima­síðu félags­ins á föstu­dag. Fyr­ir­sögn hans er: „Okkur er mis­boð­ið!" Þar gagn­rýnir Ólafía trygg­inga­fé­lögin þrjú harð­lega fyrir að láta hlut­haf­anna ganga fyrir við­skipta­vin­unum þegar kemur að því að njóta hagn­aðar sem þau skapa. „Slæm afkoma trygg­inga­hluta fyr­ir­tækj­anna virð­ist kalla á hækkun iðgjalda en góð afkoma fjár­mála­rekst­urs og breyttar reikn­ings­skila­að­ferðir eru ástæða greiðslu arðs. Nú eru aðgreiðsl­urnar langt umfram hagnað á meðan við­skipta­vinir fá hærri reikn­ing til að standa undir rekstri trygg­inga­hlut­ans. Er nema von að við reið­um­st?," sagði Ólaf­ía.

Auglýsing

Gagn­rýni hennar á fullan rétt á sér. Það vakna hins vegar spurn­ingar um af hverju VR beitir sér ekki beint vegna máls­ins. Stétt­ar­fé­lagið skipar nefni­lega fjóra af átta stjórn­ar­mönnum í Líf­eyr­is­sjóði verzl­un­ar­manna á móti atvinnu­rek­end­um, sem skipa hina fjóra. Sá líf­eyr­is­sjóður er stærsti ein­staki eig­andi tveggja þeirra trygg­inga­fé­laga sem nú eru að greiða eig­endum sínum háan arð, TM (9,8 pros­ent hlut­ur) og VÍS (9,2 pró­sent hlut­ur) . Hann er enn fremur sjö­undi stærsti eig­andi Sjóvar (4,5 pró­sent hlut­ur). Því er Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna, sem VR ræður yfir ásamt full­trúum atvinnu­rek­enda, sá aðila sem hagn­ast hvað mest af arð­greiðslum trygg­inga­fé­lag­anna. Og sá aðili sem ætti að vera í bestri stöðu til að koma óbeit sinni á ákvörð­un­inni um arð­greiðsl­urnar ræki­lega á fram­færi. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None