Norska félagið Havila Shipping ASA tilkynnti í dag að virði flota félagsins, sem telur 27 skip, hafi verið fært niður um 1.388 milljónir norskra króna, eða um 21 milljarð íslenskra króna. Stjórn Havila tilkynnti sömuleiðis að félagið muni halda áfram starfsemi sinni, þrátt fyrir að kröfuhafar þess hafi hafnað tillögu um endurskipulagning á skuldum félagsins í byrjun viku.
Ákvörðunin felur í sér að félagið muni halda áfram viðræðum við kröfuhafa sína um að ná samkomulagi sem muni gera Havila kleift að standa af sér þá erfiðleika sem félagið gengur nú í gegnum. Á meðal þeirra kröfuhafa eru íslensku bankarnir Íslandsbanki og Arion banki. Á meðan að viðræðurnar standa yfir mun Havila hvorki greiða vexti né afborganir af höfuðstólum lána.
Tókst ekki að semja við kröfuhafa
Kjarninn greindi frá því í gær að kröfuhafar Havila hefðu hafnað áætlun um endurskipulagningu á skuldum þess, sem gerðu ráð fyrir því að lengt yrði umtalsvert í þeim. Félagið hafði gefið sér þangað til á mánudag, 15. febrúar, til að komast að niðutstöðu í málinu enda sjái það fyrir sér alvarlega fjárhagslega erfiðleika á tímabilinu 2016-2018“ vegna þeirrar niðursveiflu sem átt hafi sér stað á þjónustumarkaði við olíuiðnaðinn í Norðursjó.
Í tilkynningu til norsku Kauphallarinnar sem send var út í gærmorgun kom hins vegar fram að ekki hefði tekist að fá 2/3 hluta af óveðtryggðum skuldabréfaeigendum Havila til að samþykkja hana. Þess vegna verði öllum vaxtagreiðslum og greiðslum af höfuðstól lána hætt samstundis og hafist handa við að ræða við þá um samkomulag um greiðslustöðvun.
Havila
hefur verið eitt af leiðandi félögum í þjónustu við olíuiðnaðinn í Norðursjó á
undanförnum árum. Samstæðan á og rekur 27 þjónustuskip. Olíuvinnsla í Norðursjó
hefur dregist gríðarlega saman á undanförnum misserum vegna lækkunar á
heimsmarkaðsverði á olíu, sem hefur farið úr um 115 dölum sumarið 2014 í um 30 dali í dag. Þumalputtareglan er sú að heimsmarkaðsverð á olíu þurfi að vera í
kringum 60 dali á tunnu til að vinnsla í Norðursjó borgi sig. Samhliða hefur
þjónustumarkaðurinn sem Havila starfar á hrunið.
Virði Havila í Kauphöllinni hefur hríðfallið undanfarin misseri. Árið 2007 var virði hlutabréfa í félaginu 120 norskar krónur á hlut. Í dag er virðið 1,5 norskar krónur. Havila var fært á athugunarlista í norsku Kauphöllinni í gærmorgun.
Krefjandi aðstæður leiða til niðurfærslu á virði skipaflota
Í nýrri tilkynningu til norsku Kauphallarinnar í morgun sagði Havila frá því að félagið hefði ákveðið að færa niður virði skipaflota síns um tæpan 21 milljarð íslenskra króna í uppgjöri fjórða ársfjórðungs 2015. Uppgjör þess ársfjórðungs verða birta 29. febrúar næstkomandi. Í tilkynningunni segir að markaðsaðstæður Havila séu mjög krefjandi og það hafi mikil áhrif á virði skipa félagsins.
Íslandsbanki og Arion banki eru báðir á meðal lánveitenda Havila. Í júlí 2014 lánaði Arion banki Havila 300 milljónir norskra króna, um 4,5 milljarða króna. Íslandsbanki hafði tekið þátt í sambankaláni til Havila upp á alls 475 milljónir norskra króna, rúmlega sjö milljarða króna, nokkrum mánuðum áður. Í fréttatilkynningu frá Íslandsbanka sem send var úr í lok árs 2013 vegna þess var haft eftir Vilhelm Má Þorsteinssyni, framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs Íslandsbanka, að þátttakan í sambankaláni til Havila væri mikilvægt skref í að auka þátttöku okkar í þjónustuiðnaði við olíu og gasleit á Norður Atlantshafi. „Íslandsbanki hefur getu til að lána til erlendra verkefna vegna sterkrar stöðu í erlendum gjaldeyri og styður þannig við frekari uppbyggingu íslenskra og erlendra fyrirtækja í atvinnugreinum þar sem bankinn hefur sérþekkingu.“
Þessir tveir bankar, sem eru annars vegar að öllu leyti í eigu íslenska ríkisins og hins vegar að hluta (ríkið á þrettán prósent hlut í Arion banka), eiga því umtalsvert undir að Havila muni geta borgað skuldir sínar.
DV leitaði eftir upplýsingum hjá báðum bönkunum fyrir mánuði síðan um hvort þeir hefðu farið fram á að floti eða aðrar eignir Havila yrðu veðsettar vegna lánveitinganna. Hvorki Íslandsbanki né Arion banki vildu upplýsa um það