Bang & Olufsen er eitt þekktasta vörumerki Danmörku.
Bang & Olufsen er eitt þekktasta vörumerki Danmörku.
Auglýsing

Hið gam­al­gróna og heims­þekkta danska fyr­ir­tæki Bang & Oluf­sen hefur um margra ára skeið átt í umtals­verðum rekstr­ar­erf­ið­leik­um. Marg­t hefur verið reynt til að rétta skút­una af en þær til­raunir hafa ekki skilað við­un­and­i ár­angri.

B&O, sem var stofnað 1924 í Struer á Jót­landi, hef­ur alla tíð ein­beitt sér að fram­leiðslu útvarps­-og hljóm­flutn­ings­tækja, síð­ar­ bætt­ust sjón­vörpin við. Áherslan var frá upp­hafi á hljóm­gæði og útlits­hönn­un. Tækin frá B&O hafa alla tíð verið dýr, sam­an­borið við margt ann­að, enda ­yf­ir­lýst stefna að höfða til kaup­enda sem vilja vand­aða vöru og leggja mik­ið ­uppúr útliti tækj­anna.

Í kjöl­far banka­krepp­unnar dróst einka­neysla sam­an, ekki síst á Vest­ur­lönd­um. Almenn­ingur hélt, og heldur enn, fastar um budd­una  en á góð­ær­is­ár­un­um”. B&O er eitt þeirra ­fyr­ir­tækja sem varð illa fyrir barð­inu á sam­drætt­in­um. Þar að auki hefur breytt ­tækni og aukin áhersla margra fram­leið­enda á útlits­hönnun orðið til þess að dönsku tækin frá Struer hafa ekki lengur þá sér­stöðu sem þau höfðu áður, þrátt ­fyrir að hönnun og gæði séu enn í allra fremstu röð

Auglýsing

B&O Play    

Á árun­um 2011 og 2012 setti B&O á mark­að­inn Play” nýja vöru­línu. Play vör­urnar vor­u ó­dýr­ari en áður hafði þekkst frá B&O, þetta var til­raun fyr­ir­tæk­is­ins til­ að mæta breyttum aðstæð­um. Play vör­urnar eru eigi að síður í dýr­ari kant­in­um, miðað við margt ann­að. Þótt salan á Play hafi gengið ágæt­lega hefur það ekki dugað til að skjóta nægi­lega styrkum stoðum undir rekst­ur­inn. Í fyrra seld­i B&O bíla­hljóm­tækja­fram­leiðsl­una, Automoti­ve, til Harman fyr­ir­tæk­is­ins fyr­ir­ um einn millj­arð danskra króna (nítján millj­arða íslenska). Við það tæki­færi ­sagði for­stjóri B&O að fyr­ir­tækið hygð­ist stór­efla sölu­starf­semi sína í Asíu. Hann nefndi sér­stak­lega Kína og sagði að þar yrðu opn­aðar fimm­tíu B&O versl­anir á næstu mán­uð­um. Síðar sagði for­stjór­inn að þeirri tölu hefði hann s­legið fram sí svona” en B&O er nú með fjöru­tíu og fimm versl­anir í kín­verska alþýðu­lýð­veld­inu.

Mik­ill áhugi í Asíu   

Rekstr­ar­erf­ið­leik­ar B&O hafa ekki farið leynt. Fyrir nokkrum mán­uðum greindu danskir fjöl­miðl­ar frá því að asískir raf­tækja­fram­leið­endur hefðu áhuga fyrir að kaupa B&O, að hluta eða jafn­vel allt fyr­ir­tæk­ið. Þá höfðu ákveðn­ar þreif­ing­ar” átt sér stað en lengra var málið ekki kom­ið. Nú síð­ustu daga hefur hins­vegar komið fram hverj­ir þreifar­arn­ir” eru. Dag­blaðið Berl­ingske birti 19. mars við­tal við fram­kvæmda­stjóra B&O. Þar greindi hann frá því að fyr­ir­tækið hefði gert ­sam­vinnu­samn­ing við Suð­ur­-Kóreska fyr­ir­tækið LG um fram­leiðslu á B&O sjón­varps­tækj­u­m. B&O mun áfram sjá um hönnun og fram­leiðslu sjón­varps­kass­ans en LG hins­veg­ar inn­mat­inn, eins og fram­kvæmda­stjór­inn orð­aði það. Sjón­varps­fram­leiðslan hef­ur verið steinn­inn í skón­um” sagði for­stjór­inn. LG er næst stærsti fram­leið­and­i ­sjón­varps­tækja í heim­inum (Sam­sung er sá stærsti) og fram­leiðir árlega um 40 millj­ónir sjón­varps­tækja en B&O hefur fram­leitt um 30 þús­und tæki á hverju ári. Það hafa verið erf­iðir tímar hjá mörgum sjón­varps­tækja­fram­leið­endum en við höfum nú samið við eitt öfl­ug­asta fyr­ir­tækið á þessu sviði” sagð­i fram­kvæmda­stjór­inn. Gert er ráð fyrir að sam­vinnu­sjón­varps­tæk­in” komi á mark­að­inn árið 2017.

Kín­verskur auð­kýf­ingur vill eignast B&O 

Fyrir þrem dögum greindi DR, Danska útvarpið frá því að kín­verskur auð­kýf­ing­ur, með aðsetur á Bresku Jóm­frúreyjum vildi eign­ast öll hluta­bréf í B&O. Kín­verj­inn, Qi Jian­hong á lít­inn hlut í B&O í gegnum félag­ið ­Sparkle Roll Group Limited (BVI) en hann á einnig sam­nefnt félag, án staf­anna í svig­an­um, skráð í Hong Kong. Qi Jian­hong hefur þegar átt í við­ræðum við ­yf­ir­stjórn B&O en þær við­ræður eru á byrj­un­ar­reit og algjör­lega óljóst til­ hvers þær muni leiða. Qi Jian­hong þekkir vel til B&O því fyr­ir­tækið hef­ur verið í sam­starfi við hann í Kína, meðal ann­ars varð­andi áður­nefndar fjöru­tíu og fimm versl­an­ir  sem nú eru vítt og breitt í land­in­u. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnBorgþór Arngrímsson
Meira úr sama flokkiErlent
None