Fyrir 110 árum, þann 2. nóvember árið 1907, boðaði Kvenréttindafélag Íslands til fundar með stjórnum kvenfélaganna í Reykjavík vegna bæjarstjórnarkosninga sem halda skyldi árið 1908. Þar var ákveðið að hvert félag skyldi kjósa nefnd til að undirbúa kosningarnar og tilnefna eina konu eða fleiri til framboðs.
Listi kvenfélaganna fékk langflest atkvæðin í kosningunum 1908 eða 345 og voru það 21,8 prósent greiddra atkvæða. Hann kom öllum sínum fjórum fulltrúum að. Sá listi sem næstur var að atkvæðatölu fékk 235 atkvæði.
Efst á listanum var Katrín Magnússon, formaður Hins íslenska kvenfélags, í öðru sæti var Þórunn Jónassen, formaður Thorvaldsensfélagsins, í því þriðja Bríet Bjarnhéðinsdóttir, formaður Kvenréttindafélags Íslands og í því fjórða Guðrún Björnsdóttir, sem var félagi í Kvenréttindafélagi Íslands.
Kvenfélögin með sérstakan lista
Þann 24. janúar 1908 fóru fam kosningar til bæjarstjórnar í Reykjavík og átti að kjósa 15 fulltrúa. Kosningin fór fram í Barnaskólanum sem er gamli Miðbæjarskólinn. Á kjörskrá voru 2.838 en bæjarbúar voru alls 11.016. Konur á kjörskrá voru 1.209 og karlar 1.629. Atvæðisréttar neyttu 593 konur og 1.027 karlar eða 57 prósent kjósenda og hafði þátttakan aldrei verið meiri.
Í kosningunum voru bornir fram 18 listar. Kvenfélögin í bænum báru fram sérstakan lista og fékk hann bókstafinn F.
Heimsóttu hverja einustu konu með kosningarétt
Á vefsíðu Kvennasögusafns Íslands kemur fram að konurnar hafi unnið geysivel fyrir kosninguna. Þær efndu til fyrirlestra um lagalega stöðu kvenna, um nýju kosningalögin og um bæjar- og sveitarstjórnarmál.
Þær skiptu bænum í níu hverfi og kusu nefndir sem höfðu það hlutverk að heimsækja hverja einustu konu með kosningarétt og hvetja hana til að kjósa. Þær opnuðu kosningaskrifstofu og gáfu út kosningastefnuskrá. Í stuttu máli má segja að þær hafi verið upphafsmenn að skipulögðum kosningaáróðri i Reykjavík.
Árið 1908 var kosið um 15 fulltrúa en síðan átti að draga út 5 fulltrúa á 2ja ára fresti og kjósa aðra 5 í þeirra stað. Það voru því kosningar annað hvert ár. Kvenfélög í Reykjavík buðu fram lista í öllum kosningum fram til ársins 1918 að þau buðu fram með karlmönnum í fyrsta sinn. Konur sem kjörnar voru af kvennalista eða fyrir kvenfélögin sátu í bæjarstjórn til ársins 1922.
Fylgi kvennalistanna 1908 til 1916:
1908: 21,8%
1910: 21,3%
1912: 21,8%
1914: 14,5%
1916: 10,2%
Bríet Bjarnhéðinsdóttir átti hugmyndina að því að kvenfélögin í Reykjavík byðu fram sérstakan kvennalista árið 1908. Kvenfélögin sem stóðu að baki listanum voru alls fimm: Kvenréttindafélag Íslands, Hið íslenska kvenfélag, Thorvaldsensfélagið, Hvítabandið og Kvenfélagið Hringurinn (öll starfa þessi félög enn þann dag í dag nema Hið íslenska kvenfélag).
Heimild: Kvennasögusafn Íslands