Ekki stendur til að Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, taki að sér nefndarstörf fyrir flokkinn eða önnur störf. Þetta kemur fram í svari Birgis Ármannssonar, þingflokksformanns flokksins, við fyrirspurn Kjarnans.
Sigríður sagði af sér sem dómsmálaráðherra um miðjan mars síðastliðinn vegna Landsréttarmálsins svokallaðs.
Í svarinu segir Birgir að staðan sé óbreytt og að ekki liggi fyrir hvenær afstaða verði tekin til framhaldsins en Kjarninn spurði meðal annars hvort eitthvað væri komið í ljós varðandi störf fyrrverandi ráðherra.
Persóna ráðherra kynni að hafa truflandi áhrif á meðferð málsins
Dómur Mannréttindadómstóls Evrópu birtist þann 12. mars síðastliðinn og sagði Sigríður í hádegisfréttum RÚV sama dag að hún myndi ekki segja af sér, hún hefði ekki ástæðu til þess.
Rúmum sólarhring síðar, klukkan 13:49 síðdegis miðvikudag 13. mars, var boðað til blaðamannafundar í dómsmálaráðuneyti sem skyldi hefjast 41 mínútu síðar. Á þeim fundi lýsti Sigríður afstöðu sinni til Landsréttarmálsins í löngu máli, sagði að niðurstaðan hefði komið henni „verulega á óvart“ og að hún ætlaði að stíga til hliðar sem ráðherra á meðan að verið væri að fjalla meira um Landsréttarmálið og vinna úr þeirri stöðu sem upp var komin. Hún hefði skynjað að hennar persóna kynni að hafa truflandi áhrif á frekari meðferð málsins.
Það er hins vegar ekki hægt að stíga til hliðar tímabundið sem ráðherra. Stjórnskipun landsins gerir einfaldlega ekki ráð fyrir því. Sigríður var því að segja af sér embætti.
Áfellisdómur fyrir Sigríði og Alþingi
Dómur Mannréttindadómstólsins í Landsréttarmálinu fól í sér áfellisdóm fyrir bæði Sigríði og Alþingi fyrir það hvernig haldið var á skipan fimmtán dómara við Landsrétt í byrjun júní 2017. Gagnvart Sigríði fyrir að hafa brotið stjórnsýslulög með því að breyta listanum um tilnefnda dómara frá þeim lista sem hæfisnefnd hafði skilað af sér, og fært fjóra dómara af þeim lista en sett aðra fjóra inn á hann án þess að rannsaka og rökstyðja þá ákvörðun með nægjanlegum hætti. Alþingi fyrir að hafa kosið um skipan dómaranna allra í einu, í stað þess að kjósa um hvern fyrir sig.
Niðurstaðan var skýr. Í dómnum var fallist á það dómararnir fjórir sem bætt var á listann væru ólöglega skipaðir og gætu þar með ekki fellt dóma yfir þeim sem fyrir þá koma, þar sem ólöglega skipaðir dómarar gætu ekki tryggt réttláta málsmeðferð. Ferlið sem beitt var við skipun dómaranna við Landsrétt hafi orðið „til þess að valda skaða á því trausti sem dómstóll í lýðræðislegu samfélagi þarf að vekja hjá almenningi og braut í bága við það grundvallaratriði að dómstóll sé löglegur, eina af meginreglum réttarríkisins.“
Forsætisráðherra lagði línurnar
Kjarninn greindi frá því þann 13. mars síðastliðinn að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefði lagt línurnar um að Sigríður þyrfti að segja af sér. Hún kom sjónarmiðum sínum, um að dómsmálaráðherra yrði að axla ábyrgð á þeirri óvissu sem upp væri komin í dómskerfinu eftir dóminn skýrt á framfæri við formenn samstarfsflokkanna í ríkisstjórn, Sigurð Inga Jóhannsson, formann Framsóknarflokksins, og Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, á fundi formannanna að morgni 13. mars.
Eftir sem áður var ekki endanlega ljóst, að Sigríður Á. Andersen myndi segja af sér, fyrr en hún gerði það sjálf á blaðamannafundinum í dómsmálaráðuneytinu.
Á þeim tímapunkti – það er þegar blaðamannafundurinn fór fram – kom til greina að slíta ríkisstjórnarsamstarfinu ef Sigríður myndi ekki segja af sér og axla ábyrgð á þeirri stöðu sem upp væri komin í starfi Landsréttar, eftir niðurstöðu Mannréttindadómstólsins, samkvæmt heimildum Kjarnans.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir tók tímabundið við sem dómsmálaráðherra en sinnir áfram fyrri ráðherrastörfum líka.
Þann 9. apríl síðastliðinn ákvað íslenska ríkið að óska eftir endurskoðun yfirdeildar Mannréttindadómstóls Evrópu á dómnum sem féll 12. mars. Líklegt er að niðurstaða um það hvort yfirdeildin taki dóminn til endurskoðunar fáist innan fárra mánaða.