Staðan óbreytt varðandi Sigríði Á. Andersen

Ekki liggur fyrir hvenær afstaða verður tekin til starfa fyrrverandi dómsmálaráðherra fyrir Sjálfstæðisflokkinn.

Sigríður Á. Andersen
Sigríður Á. Andersen
Auglýsing

Ekki stendur til að Sig­ríður Á. And­er­sen, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, taki að sér nefnd­ar­störf fyrir flokk­inn eða önnur störf. Þetta kemur fram í svari Birgis Ármanns­son­ar, þing­flokks­for­manns flokks­ins, við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.

Sig­ríður sagði af sér sem dóms­mála­ráð­herra um miðjan mars síð­ast­lið­inn vegna Lands­rétt­ar­máls­ins svo­kall­aðs.

Í svar­inu segir Birgir að staðan sé óbreytt og að ekki liggi fyrir hvenær afstaða verði tekin til fram­halds­ins en Kjarn­inn spurði meðal ann­ars hvort eitt­hvað væri komið í ljós varð­andi störf fyrr­ver­andi ráð­herra.

Auglýsing

Per­sóna ráð­herra kynni að hafa trufl­andi áhrif á með­ferð máls­ins

Dómur Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu birt­ist þann 12. mars síð­ast­lið­inn og sagði Sig­ríður í hádeg­is­fréttum RÚV sama dag að hún myndi ekki segja af sér, hún hefði ekki ástæðu til þess.

Rúmum sól­ar­hring síð­ar, klukkan 13:49 síð­degis mið­viku­dag 13. mars, var boðað til blaða­manna­fundar í dóms­mála­ráðu­neyti sem skyldi hefj­ast 41 mín­útu síð­ar. Á þeim fundi lýsti Sig­ríður afstöðu sinni til Lands­rétt­ar­máls­ins í löngu máli, sagði að nið­ur­staðan hefði komið henni „veru­lega á óvart“ og að hún ætl­aði að stíga til hliðar sem ráð­herra á meðan að verið væri að fjalla meira um Lands­rétt­ar­málið og vinna úr þeirri stöðu sem upp var kom­in. Hún hefði skynjað að hennar per­sóna kynni að hafa trufl­andi áhrif á frek­ari með­ferð máls­ins.

Það er hins vegar ekki hægt að stíga til hliðar tíma­bundið sem ráð­herra. Stjórn­skipun lands­ins gerir ein­fald­lega ekki ráð fyrir því. Sig­ríður var því að segja af sér emb­ætti.

Áfell­is­dómur fyrir Sig­ríði og Alþingi

­Dómur Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins í Lands­rétt­ar­mál­inu fól í sér áfell­is­dóm fyrir bæði Sig­ríði og Alþingi fyrir það hvernig haldið var á skipan fimmtán dóm­ara við Lands­rétt í byrjun júní 2017. Gagn­vart Sig­ríði fyrir að hafa brotið stjórn­sýslu­lög með því að breyta list­anum um til­nefnda dóm­ara frá þeim lista sem hæf­is­nefnd hafði skilað af sér, og fært fjóra dóm­ara af þeim lista en sett aðra fjóra inn á hann án þess að rann­saka og rök­styðja þá ákvörðun með nægj­an­legum hætti. Alþingi fyrir að hafa kosið um skipan dóm­ar­anna allra í einu, í stað þess að kjósa um hvern fyrir sig.

Nið­ur­staðan var skýr. Í dómnum var fall­ist á það dóm­­ar­­arnir fjórir sem bætt var á list­ann væru ólög­­lega skip­aðir og gætu þar með ekki fellt dóma yfir þeim sem fyrir þá koma, þar sem ólög­­lega skip­aðir dóm­­arar gætu ekki tryggt rétt­láta máls­­með­­­ferð. Ferlið sem beitt var við skipun dóm­­ar­anna við Lands­rétt hafi orðið „til þess að valda skaða á því trausti sem dóm­­stóll í lýð­ræð­is­­legu sam­­fé­lagi þarf að vekja hjá almenn­ingi og braut í bága við það grund­vall­­ar­at­riði að dóm­­stóll sé lög­­­leg­­ur, eina af meg­in­­reglum rétt­­ar­­rík­­is­ins.“

For­sæt­is­ráð­herra lagði lín­urnar

Kjarn­inn greindi frá því þann 13. mars síð­ast­lið­inn að Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefði lagt lín­urnar um að Sig­ríður þyrfti að segja af sér. Hún kom sjón­­­ar­miðum sín­um, um að dóms­­mála­ráð­herra yrði að axla ábyrgð á þeirri óvissu sem upp væri komin í dóms­­kerf­inu eftir dóm­inn skýrt á fram­­færi við for­­menn sam­­starfs­­flokk­anna í rík­­is­­stjórn, Sig­­urð Inga Jóhanns­­son, for­­mann Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins, og Bjarna Bene­dikts­­son, for­­mann Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins, á fundi for­­mann­anna að morgni 13. mars.

Eftir sem áður var ekki end­an­­lega ljóst, að Sig­ríður Á. And­er­sen myndi segja af sér, fyrr en hún gerði það sjálf á blaða­manna­fund­inum í dóms­­mála­ráðu­­neyt­inu.

Á þeim tíma­­punkti – það er þegar blaða­­manna­fund­­ur­inn fór fram – kom til greina að slíta rík­­is­­stjórn­­­ar­­sam­­starf­inu ef Sig­ríður myndi ekki segja af sér og axla ábyrgð á þeirri stöðu sem upp væri komin í starfi Lands­rétt­­ar, eftir nið­­ur­­stöðu Mann­rétt­inda­­dóm­stóls­ins, sam­­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans.

Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir tók tíma­bundið við sem dóms­mála­ráð­herra en sinnir áfram fyrri ráð­herra­störfum líka.

Þann 9. apríl síð­ast­lið­inn ákvað íslenska ríkið að óska eftir end­ur­skoðun yfir­deildar Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu á dómnum sem féll 12. mars. Lík­­­legt er að nið­­ur­­staða um það hvort yfir­­­deildin taki dóm­inn til end­­ur­­skoð­unar fáist innan fárra mán­aða.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnBára Huld Beck
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar