Allt á suðupunkti í Bretlandi

Miklar sviptingar eru í breskum stjórnmálum og er staðan heldur betur farin að flækjast varðandi Brexit. Forsætisráðherrann hefur sagt að hann vildi heldur vera „dauður úti í skurði“ en að fresta Brexit frekar. Hann telur frestun algjörlega tilgangslausa.

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands.
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands.
Auglýsing

Boris Johns­son hefur verið for­sæt­is­ráð­herra frá því 23. júlí síð­ast­lið­inn en á þessum stutta tíma hefur hann gengið í gegnum margt. Hann missti meiri­hlut­ann á þing­inu á þriðju­dag­inn síð­ast­lið­inn og neðri mál­stofa þings­ins sam­þykkti í gær að hann þyrfti að sækja um frestun á útgöng­unni til 31. jan­úar næst­kom­andi, en það var ekki sam­kvæmt óskum hans. 

John­son sagði í dag að hann vildi heldur vera „dauður úti í skurði“ en að fresta Brexit frek­ar. Hann telur frestun algjör­lega til­gangs­lausa. Hann lagði til í gær­kvöld að boðað yrði til þing­kosn­inga þann 15. októ­ber næst­kom­andi áður en Bretar eiga að ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu. Þingið hafn­aði til­lög­unn­i. 

Reynir aftur eftir helgi

For­sæt­is­ráð­herr­ann ætlar að reyna aftur á mánu­dag að fá þingið til að sam­þykkja til­lögu um þing­kosn­ingar í októ­ber. Neðri mál­stofa breska þings­ins sam­þykkti í gær að hafi samn­ingar um útgöng­una ekki náðst fyrir 18. októ­ber, beri for­sæt­is­ráð­herr­anum að fara til Brus­sel og semja um seinkun á útgöng­unni til 31. jan­úar næst­kom­andi. Þannig vildu þing­menn tryggja að ekki verði gengið úr ESB án samn­ings. 

Auglýsing

Verka­manna­flokk­ur­inn hefur ekki viljað sam­þykkja þing­kosn­ing­ar, þar sem þing­menn flokks­ins ótt­ast að þeim verði seinkað fram yfir útgöngu­dag­inn, sem áætl­aður er 31. októ­ber og að Bret­land gangi þá úr ESB án samn­ings.

Af­staða John­son hefur verið skýr. Hann hefur sagt að náist ekki samn­ingar fyrir 31. októ­ber sé best að ganga úr sam­band­inu án samn­ings. Hann gagn­rýndi Cor­byn harð­lega í gær fyrir að styðja ekki til­lögu um þing­kosn­ingar og sagði að ef hann yrði for­sæt­is­ráð­herra myndi hann grát­biðja leið­toga ESB um frestun og að lík­lega yrði útgöng­unni frestað um mörg ár undir hans stjórn.

Fleiri póli­tískar ófarir hafa þó dunið yfir. Phillip Lee, þing­maður Íhalds­flokks­ins, gekk í fyrra­dag til liðs við Frjáls­lynda demókrata í stjórn­ar­and­stöð­unni. Það hafði þær afleið­ingar að John­son hafði ekki lengur meiri­hluta á breska þing­inu. Lee sagði í yfir­lýs­ingu að hann teldi leið­ina sem rík­is­stjórn John­son hefði valið í Brexit vera skað­lega.

Ekki allir á eitt sáttir í Verka­manna­flokknum

John McDonn­ell, einn af for­ystu­mönnum stjórn­ar­and­stöð­unn­ar, sagði að Verka­manna­flokk­ur­inn vildi kosn­ingar en að for­gangs­mál þeirra væri að koma í veg fyrir útgöngu úr ESB án samn­ings. 

Hann gekkst jafn­framt við því að innan flokks­ins væru ekki allir á eitt sáttir um æski­lega tíma­setn­ingu þing­kosn­inga og bætti því við að for­ystan væri að ráð­færa sig við lög­fróða ein­stak­linga og stjórn­ar­and­stöðu­flokka varð­andi hvað væri best að gera. Í þætt­inum BBC Break­fast sagði McDonn­ell að honum þætti betra að halda kosn­ingar „fyrr en síð­ar.“

Cor­byn tjáði sig á Twitter í gær og sagði að þegar Brexit án samn­ings væri út af borð­inu í eitt skipti fyrir öll þá ætti þingið að leita umboðs fólks­ins svo hægt væri að ákveða fram­tíð lands­ins. 



Bróðir Borisar hættir

Tölu­vert var fjallað um bróðir for­sæt­is­ráð­herr­ans í breskum fjöl­miðlum í dag en Jo John­son til­kynnti í morgun að hann segði af sér sem ráð­herra og þing­maður Íhalds­flokks­ins.

Frá þessu greindi hann á Twitt­er-­síðu sinni en þar sagði hann að þjóð­ar­hags­munir og per­sónu­legir hags­munir hefðu skar­ast.

Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem Jo John­son hættir í rík­is­stjórn vegna Brexit en hann sagði af sér sem sam­göngu­ráð­herra í rík­is­stjórn Ther­esu May í nóv­em­ber síð­ast­liðnum því hann studdi ekki útgöngu­samn­ing henn­ar.

Í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um útgöngu árið 2016 greiddi John­son atkvæði með áfram­hald­andi veru Bret­lands í ESB en hann er tölu­vert hall­ari undir Evr­ópu­sam­bandið en bróðir sinn. 



Dótt­ur­sonur Churchills rek­inn úr flokknum

Þing­menn breska Íhalds­flokks­ins greiddu síðan í fyrra­kvöld atkvæði gegn John­son í þing­inu til að stöðva útgöngu úr Evr­ópu­sam­band­inu án samn­ings en til­lagan sem breska þingið sam­þykkti með 27 atkvæða mun gaf þverpóli­tískum hópi þing­manna dag­skrár­vald í þing­inu. Alls greiddi 21 þing­maður Íhalds­flokks­ins atkvæði með til­lög­unni þrátt fyrir að John­son hefði hótað þeim brott­rekstri úr þing­flokkn­um. Atkvæða­greiðslan var sú fyrsta í þing­inu eftir að John­son tók við emb­ætti.

Einn af þeim sem var rek­inn úr Íhalds­flokknum í fyrra­dag var Nicholas Soa­mes, afa­barn Win­ston Churchills sem var for­sæt­is­ráð­herra í seinni heims­styrj­öld og aftur nokkrum árum síð­ar.



Sitt sýn­ist hverjum

Þegar fjöl­miðlar eru skoð­aðir í Bret­landi þá má glögg­lega sjá mis­mun­andi áherslur í umfjöllun þeirra. Sumir miðlar kalla Corby kjúkling fyrir að „þora ekki“ í kosn­ingar og aðrir telja John­son vera búinn að mála sig út í horn með fram­ferði sínu og aðgerð­um.

Blöðin í Bretlandi Mynd: Samsett

En hvað sem því líður má búast við áfram­hald­andi svipt­ingum í breskum stjórn­málum á meðan stjórn­mála­fólk finnur út úr því hvernig það ætlar að leysa úr flækjum tengdum Brex­it.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnBára Huld Beck
Meira úr sama flokkiErlent