Mynd: Íslandsbanki íslandsbanki
Mynd: Íslandsbanki

Íslandsbanki segir ekki hversu margir fengu flokkun sem hæfir fjárfestar á meðan að á útboðinu stóð

Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um söluferli Íslandsbanka kemur fram að fjárfestar sem voru ekki í viðskiptum við Íslandsbanka gátu sótt um og fengið flokkun sem „hæfir fjárfestar“ á þeim klukkutímum sem útboðið stóð yfir. Þar var meðal annars horft til þess hvort viðkomandi leit á sjálfan sig sem „hæfan fjárfesti“. Bankinn vill ekki svara því hversu margir fengu slíka flokkun né fyrir hvað þeir keyptu, á meðan að Fjármálaeftirlitið rannsakar þennan hluta málsins.

Íslands­banki vill ekki svara því hversu margir fjár­festar hefðu hlotið flokkun sem „hæfir fjár­fest­ar“ hjá bank­anum á þeim klukku­tímum sem sölu­ferlið á 22,5 pró­sent hlut íslenska rík­is­ins í honum stóð yfir í mars síð­ast­liðn­um. Íslands­banki vill heldur ekki segja fyrir hversu háa upp­hæð þeir sem fengu flokkun á meðan að tekið var við til­boðum í hlut rík­is­ins í bank­anum keyptu. Þessi hluti máls­ins sé til skoð­unar hjá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu og á meðan svo sé muni bank­inn ekki svara spurn­ingum um hann. 

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um söl­una á hlut rík­is­ins í Íslands­banka í mars er vitnað í svör frá Íslands­banka, einum af þremur umsjón­­ar­að­ilum Banka­­sýsl­unnar í sölu­­ferl­inu, um hvernig fjár­festar sem voru ekki í við­­skiptum við bank­ann fram að sölu­deg­inum fengu mög­u­­leika á að sækja um og eftir atvikum fá flokkun hjá honum sem hæfir fjár­­­festar á meðan á söl­unni stóð. Þar segir svo orð­rétt: „Að auki var horft til full­yrð­inga frá fjár­­­fest­unum sjálfum um að þeir teld­ust hæfir fjár­­­festar en bank­inn þurfti að meta upp­­lýs­ingar þess efnis sjálf­­stætt.“

Kjarn­inn spurði einnig hvort Íslands­banki hefði lánað ein­hverjum þeirra fjár­festa sem fengu flokkun hjá bank­anum á meðan á söl­unni stóð fyrir kaupum á bréfum sem voru til sölu í ferl­inu.

Íslands­banki svar­aði því neit­andi að hafa lánað til kaupa á bréf­un­um. Í svar­inu er sér­stak­lega til­tekið að bank­anum sé óheim­ilt sam­kvæmt lögum að veita lán sem eru tryggð með veði í hluta­bréfum í bank­anum sjálf­um. Að því var þó ekki spurt í fyr­ir­spurn Kjarn­ans enda hefur veð­taka í eigin bréfum verið ólög­mæt hér­lendis frá árinu 2010.

207 fjár­festar fengu að kaupa

Í skýrsl­u Rík­is­end­ur­skoð­unar um sölu­ferlið á hlut rík­is­ins í Íslands­banka er fjallað um val á þeim 207 fjár­­­festum sem fengu að kaupa hlut í bank­an­um, en 85 pró­­sent þeirra voru á end­­anum inn­­­lend­­ir. Hóps sem skil­­greindur var sem „hæfir fjár­­­fest­­ar“. Alls fékk þessi hópur að eign­ast 22,5 pró­sent hlut í bank­anum fyrir 52,65 millj­arða króna, sem var 4,1 pró­sent undir dagsloka­gengi bréfa í Íslands­banka.

Leiðin sem var valin til að selja hlut­inn kall­­ast til­­­­­boðs­að­­ferð. Hún er fram­­­kvæmd á nokkrum klukku­­­tímum og ákveðið var að ein­blína á áður­nefnda „hæfa fjár­­­­­fest­­a“. Síðar var vísað í að þar sé um að ræða þá sem skil­­­grein­­­ast sem fag­fjár­festar sam­­­kvæmt lög­­­­­um. Til þess þarf að upp­­­­­fylla tvö af þremur skil­yrð­um: að hafa átt ákveðið mörg við­­­skipti á árs­fjórð­ungi, að fjár­­­­­­­­­mála­­­­­gern­ingar þeirra og inn­­­­i­­­­­stæður væru sam­an­lagt virði 500 þús­und evra (um 70 milljón króna) eða meira eða að fjár­­­­­­­­­festir hafi gegnt eða gegni, í að minnsta eitt ár, stöðu í fjár­­­­­­­­­mála­­­­­geir­­­­­anum sem krefst þekk­ingar á fyr­ir­hug­uðum við­­­­­skiptum eða þjón­ust­u.

Rök­­­semd­­­ar­­­færslan fyrir því að fara þessa leið var meðal ann­­­ars sú að það myndi spara kostn­að og laða að erlenda fjár­­­festa. Ekki þyrfti að ráð­­­ast í útboðs­lýs­ingu til að upp­­­­­fylla upp­­­lýs­inga­skil­yrði fyrir almenna fjár­­­­­festa, venju­­­legt fólk. Bara þeir sem hefðu óskil­­­greindan betri skiln­ingi á því sem þeir væru að kaupa, var boðið að vera með. 

Margir fengu ekki boð

Tvær grímur runnu á marga þegar kom í ljós að margir þess­­­ara aðila voru ekki það sem kalla mætti stofn­ana­fjár­­­­­festar sem hefðu burði til að styðja við bank­ann til lengri tíma né voru að kaupa í því magni að nauð­­­syn­­­legt væri að velja þá til þátt­­­töku í lok­uðu útboði umfram almenna fjár­­­­­festa. Tor­­­tryggni vakn­aði strax og til­­­kynn­ingar um kaup stjórn­­­enda og stjórn­­­­­ar­­­manna Íslands­­­­­banka, eða aðila sem tengd­ust þeim, voru birtar í Kaup­höll til að mæta til­­­kynn­ing­­­ar­­­skyldu um inn­herj­a­við­skipti. Þar voru ein­stak­l­ingar að kaupa fyrir nokkrar millj­­­ónir króna. Þrýst­ingur var settur á að fá frek­­­ari upp­­­lýs­ingar um hverjir hafi fengið að kaupa og við hvert skref sem var stigið í að opin­bera það vökn­uðu fleiri spurn­ing­­­ar. 

Þeir sem keyptu fyrir minna en 30 millj­­­ónir króna voru 59 tals­ins. Þeir sem keyptu fyrir minna en 50 millj­­­ónir voru 79. Alls 167 aðilar keyptu fyrir 300 millj­­­ónir króna eða minna. Sá sem keypti fyrir lægstu upp­­hæð­ina, starfs­­maður Íslands­­­banka, keypti fyrir 1,1 milljón króna. Sam­­­kvæmt upp­­­lýs­ingum sem Kjarn­inn hefur aflað er ljóst að sumir þeirra sem sölu­ráð­gjaf­­­arnir flokk­uðu sem  hæfa ­fjár­­­­­festa eru ekki skil­­­greindir sem slíkir í öðrum fjár­­­­­mála­­­fyr­ir­tækj­­­um. Í því birt­ist það vanda­­­mál að fyr­ir­tæki í verð­bréfa­miðlun eru með það hlut­verk sam­­­kvæmt lögum að meta sjálf hvort við­­­skipta­vinir þeirra upp­­­­­fylli skil­yrði þess að telj­­­ast slík­­­­­ur. 

Þá liggur fyrir að margir, bæði inn­­­­­lendir og erlend­ir, fag­fjár­­­­­festar fengu ekki boð um að vera með þrátt fyrir að sumir þeirra hafi leitað beint eftir því. Hefur Kjarn­inn til að mynda undir höndum tölvu­­­póst­­­­­sam­­­skipti milli aðila og Banka­­­sýsl­u rík­is­ins, sem fór með fram­kvæmd söl­unnar fyrir hönd rík­is­ins, þar sem leitað var eftir því að stór alþjóð­­­legur fjár­­­­­fest­ing­­­ar­­­sjóður fengi að taka þátt í útboð­inu 22. mars. Engin svör bár­ust. Umræddur aðili sem sendi póst­­­inn er ekki á meðal þeirra sölu­ráð­gjafa sem valdir voru til að sjá um útboð­ið. 

Nóg að full­yrða það sjálf­ur 

Í skýrslu Rík­­is­end­­ur­­skoð­unar kemur fram að mið­lægur gagna­grunnur um hæfa fjár­­­festa er ekki til hér á landi. Umsjón­­ar­að­il­­ar, sölu­ráð­gjafar og sölu­að­ilar Banka­­sýsl­unnar gátu því ekki flett upp öðrum til­­­boðs­­gjöfum en við­­skipta­vinum sínum til að sann­­reyna full­yrð­ingar þeirra um að þeir væru hæfir fjár­­­fest­­ar. Flokkun fjár­­­festa í sölu­­ferl­inu var því fram­­kvæmd hjá hverju fjár­­­mála­­fyr­ir­tæki fyrir sig. 

Sam­­kvæmt Íslands­­­banka, einum af þremur umsjón­­ar­að­ilum Banka­­sýsl­unnar í sölu­­ferl­inu, höfðu fjár­­­festar sem voru ekki í við­­skiptum við bank­ann fram að sölu­deg­inum mög­u­­leika á að sækja um og eftir atvikum fá flokkun hjá honum sem hæfir fjár­­­festar á meðan á söl­unni stóð. Að auki var horft til full­yrð­inga frá fjár­­­fest­unum sjálfum um að þeir teld­ust hæfir fjár­­­festar en bank­inn þurfti að meta upp­­lýs­ingar þess efnis sjálf­­stætt. Rík­­is­end­­ur­­skoðun segir í skýrslu sinni að stofn­unin hafi ekki kann­aði hvernig þessu var háttað hjá öðrum umsjón­­ar­að­il­um, sölu­ráð­­gjöfum eða sölu­að­ilum við mat þeirra á hæfum fjár­­­fest­­um. Þessi hluti sölu­­ferl­is­ins er nú til rann­sóknar hjá Fjár­­­mála­eft­ir­lits Seðla­­banka Íslands.

Innri reglur komu ekki í veg fyrir hags­muna­á­­rekstra

Þá segir í skýrsl­u Rík­is­end­ur­skoð­unar að sam­­kvæmt upp­­lýs­ingum frá meðal ann­­ars fjár­­­mála­ráð­gjafa Banka­­sýsl­unnar sé óvenju­­legt að einka­fjár­­­festum sem sam­­þykktir hafa verið sem fag­fjár­­­festar sé boðin þátt­­taka í sölu með til­­­boðs­­fyr­ir­komu­lagi. „Fjár­­­mála- og efna­hags­ráðu­­neyti og Banka­­sýslan voru hins vegar sam­­mála um að gera ráð fyrir þátt­­töku einka­fjár­­­festa sem upp­­­fylltu skil­yrði sem hæfir fjár­­­festar í sölu­­ferl­in­u.“ 

Lárus Blöndal, stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins, og Jón Gunnar Jónsson, forstjóri stofnunarinnar.
Mynd: Skjáskot

Banka­­sýslan hefur í svörum sínum til Rík­­is­end­­ur­­skoð­unar vísað til þess að fjár­­­mála­­fyr­ir­tækjum beri lögum sam­­kvæmt að setja sér innri reglur um ráð­staf­­anir gegn hags­muna­á­­rekstr­­um. „Stofn­unin mat það svo að reglu­verk fjár­­­mála­­mark­að­­ar­ins væri með þeim hætti að slíkar innri reglur umsjón­­ar­að­ila, sölu­ráð­gjafa og sölu­að­ila kæmu í veg fyrir hags­muna­á­­rekstra í söl­unni. Ljóst er að innri reglur Íslands­­­banka komu ekki í veg fyrir slíkt.“

Í ítar­legri málsvörn sem Banka­sýslan hefur birt á heima­síðu sinni segir að á fjár­mála­fyr­ir­tækjum hvíli ríkar skyldur sam­kvæmt lögum og reglum um að haga starf­semi sinni og innra skipu­lagi þannig að komið sé í veg fyrir hags­muna­á­rekstra meðal ann­ars milli fyr­ir­tæk­is­ins, þar með talið starfs­manna, og við­skipta­vina þess. Það sé stað­reynd. „Brot gegn slíkum reglum varða stjórn­valds­sektum allt að 10 pró­sent af heild­ar­veltu við­kom­andi fyr­ir­tæk­is.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar