10054271513_96440ac9ca_k-1.jpg
Auglýsing

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með mest fylgi sam­kvæmt kosn­inga­spá sem gerð var fyrir Kjarn­ann úr nýjust­u ­skoð­ana­könn­un­um. Flokk­ur­inn fengi rétt tæpan fjórð­ung atkvæða ef gengið yrði til kosn­inga nú. Píratar hafa næst mest fylgi á eftir Sjálf­stæð­is­flokknum með 23,6 pró­sent atkvæða.

Kjarn­inn leit­aði til Bald­urs Héð­ins­son­ar, stærð­fræð­ings, og bað hann að keyra spálíkan fyrir Alþing­is­kosn­ingar byggða á síð­ustu könn­unum sem birtar hafa ver­ið. Þær kann­anir sem reikn­aðar eru með og gefið vægi eru könnun Capacent sem gerð var 29. jan­úar til 25. febr­ú­ar, könnun Frétta­blaðs­ins dag­ana 10. til 11. mars, könnun MMR dag­ana 13. til 18. mars og könnun Frétta­blaðs­ins 18. til 19. mars.

Nið­ur­stöður kosn­inga­spár­innar







Aug­ljóst er af nið­ur­stöðum kosn­inga­spár­innar að Píratar eru á góðri sigl­ingu þessa dag­ana. Kann­anir MMR ofmát­u ­fylgi Pírata nokkuð veru­lega fyrir síð­ustu Alþing­is- og borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­ar. Það gerði Frétta­blaðið líka, þó ekki eins mik­ið.

Í lík­an­inu er könn­unum gefið vægi eftir stærð úrtaks, aldri og fleiri breyt­um. Capacent-könn­unin síðan 25. febr­úar tók ­stærsta úrtakið af þeim könn­unum sem hafðar voru til hlið­sjónar en sú könnun er jafn­framt sú elsta.

Auglýsing

„Capacent er áreið­an­leg­asti könn­un­ar­að­il­inn sam­kvæmt minni grein­ing­u,“ segir Baldur í tölvu­pósti til Kjarn­ans og bætir við að áhuga­vert verði að fá næsta Þjóð­ar­púls sem vænt­an­lega verður birtur í byrjun apr­íl. „[Hann] mun gefa góða vís­bend­ingu um hver staða Pírata er.“

Píratar hlutu 5,1 pró­sent atkvæða í Alþing­is­kosn­ing­unum 2013 og eiga þrjá þing­menn á Alþingi. Flokk­ur­inn hefur í síð­ustu könn­unum (MMR og Frétta­blað­inu) mælst með mest fylgi þeirra sex flokka sem sitja á Alþingi nú. Í nýj­ustu könn­un­inni mæld­ist flokk­ur­inn með 29,1 ­pró­sent fylgi sem myndi duga þeim til að næla í 19 þing­menn. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem ítrekað hefur mælst stærstur í fylgiskönn­unum frá kosn­ingum 2013, mæld­ist næst stærstur eða með 23,4 pró­sent.

Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, þykir hafa staðið sig vel að undanförnu og margir þakka ekki síst honum fylgisaukningu Pírata hér á landi. Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, þykir hafa staðið sig vel að und­an­förnu og margir þakka ekki síst honum fylg­is­aukn­ingu Pírata hér á land­i.

Aðrir flokkar fastir



Fylgi ann­arra flokka en Pírata hefur breyst lítið síðan í kosn­ing­unum 2013, sé Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn und­an­skil­inn. Fram­sókn vann mik­inn kosn­inga­sigur þá en síðan hefur fylgið týnst af flokknum í hverri skoð­ana­könn­un­inni á fætur ann­ari. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn ­fengi aðeins 11,0 pró­sent atkvæða sam­kvæmt kosn­inga­spánni, miðað við 24,4 pró­sent í kosn­ing­um.

Sam­fylk­ingin fengi 16,1 pró­sent atkvæða miðað við 12,9 pró­sent í kosn­ing­unum 2013. Nýjasta könn­unin sem tekin er með í kosn­inga­spánni er gerð í vik­unni fyrir lands­fund flokks­ins um síð­ast­liðna helgi. Seinni könn­un­ar­dag­ur­inn var 19. mars en að kvöldi þess dags kynnt­i ­Sig­ríður Ingi­björg Inga­dóttir for­manns­fram­boð gegn sitj­andi for­manni Árna Páli Árna­syni á fund­in­um. Lands­fund­ur­inn og atburð­irnir í aðdrag­anda hans hafa því mjög tak­mörkuð áhrif á nið­ur­stöðu kosn­inga­spár­inn­ar.

Stuðn­ingur við Bjarta fram­tíð hefur auk­ist lít­il­lega og mælist nú 10,1 pró­sent miðað við 8,2 pró­sent í kosn­ing­um. Vinstri græn hafa staðið nokkurn veg­inn í stað og mæl­ast með 10,2 pró­sent fylgi en fengu 10,9 pró­sent.

20_07_2013 Alþing­is­kosn­ingar eru venju­lega haldnar á fjög­urra ára fresti og verða næst haldnar árið 2017. (Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son)

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnBirgir Þór Harðarson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None