Lokaspá: Líkur frambjóðenda á að komast inn á Alþingi
Kjarninn birtir síðustu þingmannaspá sína í aðdraganda kosninga. Ljóst er að margir frambjóðendur eiga fyrir höndum langar nætur til að sjá hvort þeir nái inn eða ekki og töluverðar sviptingar hafa orðið á líkum ýmissa frá byrjun viku. Á meðal þeirra sem eru í hættu að komast ekki inn eru sitjandi þingmenn og tveir leiðtogar.
Kjarninn og Baldur Héðinsson framkvæma kosningaspá í aðdraganda hverra kosninga. Frá árinu 2014 hefur spáin verið keyrð tvívegis fyrir borgarstjórnarkosningar, fyrir forsetakosningarnar 2016 og 2020, og þingkosningar 2016 og 2017. Hún er því keyrð nú, í aðdraganda kosninga 2021, í sjöunda sinn.
Samhliða er keyrð þingsætaspá sem byggir á reiknilíkani Baldurs. Hún er framkvæmd þannig að keyrðar eru 100 þúsund sýndarkosningar miðað við fylgi flokka í kosningaspánni sem birt var í gærmorgun, 15. september. Reiknilíkanið úthlutar svo kjördæma- og jöfnunarsætum út frá niðurstöðunum. Líkur frambjóðanda á að ná kjöri er þess vegna hlutfall „sýndarkosninga“ þar sem frambjóðandinn nær kjöri.
Í stuttu máli er aðferðafræðin sú að fylgi framboða í skoðanakönnunum er talin líklegasta niðurstaða kosninga að viðbættri óvissu sem byggir á sögulegu fráviki kannana frá kosningaúrslitum. Söguleg gögn sýna að fylgni er á milli þess að ofmeta/vanmeta fylgi flokks í einu kjördæmi og að ofmeta/vanmeta fylgi flokksins í öðrum kjördæmum. Frávikið frá líklegustu niðurstöðu fyrir flokk er því ekki óháð milli kjördæma. Ef frávikið er neikvætt í einu kjördæmi fyrir ákveðinn flokk aukast líkurnar á að það sé sömuleiðis neikvætt í öðrum kjördæmum.
>99%Ingibjörg Ólöf Isaksen
87%Líneik Anna Sævarsdóttir
24%Þórarinn Ingi Pétusson
58%Eiríkur Björn Björgvinsson
4%Sigríður Ólafsdóttir
>99%Njáll Trausti Friðbertsson
82%Berglind Ósk Guðmundsdóttir
23%Berglind Harpa Svavarsdóttir
41%Jakob Frímann Magnússon
47%Haraldur Ingi Haraldsson
3%Margrét Pétursdóttir
70%Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
11%Anna Kolbrún Árnadóttir
71%Einar Brynjólfsson
11%Hrafndís Bára Einarsdóttir
93%Logi Már Einarsson
37%Hilda Jana Gísladóttir
2%Eydís Ásbjörnsdóttir
93%Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir
38%Jódís Skúladóttir
3%Óli Halldórsson
Í Norðausturkjördæmi eru tíu þingsæti í boði. Þeir tíu frambjóðendur sem eru með mestar líkur á að ná þeim mælast með 47 til næstum 100 prósent líkur á því að ná kjöri. Af þeim mælast átta á bilinu 70 til næstum 100 prósent. Sá frambjóðandi sem mælist með mestar líkur á að ná inn fyrir utan þann hóp er Jakob Frímann Magnússon, oddviti Flokks fólksins, með 41 prósent líkur.
Fast á hæla hans koma Jódís Skúladóttir, sem situr í öðru sæti hjá Vinstri grænum, með 38 prósent og Hilda Jana Gísladóttir, sem situr í öðru sæti á lista Samfylkingarinnar, með 37 prósent.
Miklar sviptingar eru á líkum frambjóðenda á að ná inn frá síðustu þingmannaspá. Líkur Líneikar Önnu Sævarsdóttur, sitjandi þingmanns sem er í öðru sæti hjá Framsókn, þjóta upp úr 56 í 87 prósent. Líkur Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, á að ná inn aukast sömuleiðis úr 60 í 70 prósent. Anna Kolbrún Árnadóttir, sem er sitjandi þingmaður flokksins, á þó einungis 11 prósent líkur á að halda því sæti.
Þeir sem tapa á milli spáa í kjördæminu eru Haraldur Ingi Haraldsson frá Sósíalistaflokki, sem fer úr 62 í 47 prósent líkur, Einar Brynjólfsson, oddviti Pírata sem mælist nú með 70 prósent líkur á að ná inn en var með 84 prósent í byrjun viku, og Eiríkur Björn Björgvinsson, oddviti Viðreisnar, sem dalar niður í 58 prósent líkur.
>99%Stefán Vagn Stefánsson
65%Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir
20%Halla Signý Kristjánsdóttir
40%Guðmundur Gunnarsson
1%Bjarney Bjarnadóttir
>99%Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
92%Haraldur Benediktsson
30%Teitur Björn Einarsson
47%Eyjólfur Ármansson
29%Helga Thorberg
57%Bergþór Ólason
3%Sigurður Páll Jónsson
83%Magnús Norðdahl
2%Gunnar Ingiberg Guðmundsson
93%Valgarður Lyngdal Jónsson
37%Jónína Björg Magnúsdóttir
79%Bjarni Jónsson
9%Lilja Rafney Magnúsdóttir
Líkur á því að annar þingmaður Framsóknarflokks, Lilja Rannveig Sigurðardóttir, nái þingsæti í Norðvesturkjördæmi stóraukast á milli spáa og fara úr 44 í 64 prósent. Oddviti Sósíalistaflokks, Helga J. Thorberg, fer í hina áttina en líkurnar hennar lækka úr 45 í 29 prósent.
Eyjólfur Ármannsson, oddviti flokks fólksins, hefur bætt marktækt við sig líkum í öllum gerðum spám og mælist nú með 47 prósent. Það er hins vegar á brattan að sækja fyrir Lilju Rafney Magnúsdóttur, sitjandi þingmanni Vinstri grænna í kjördæminu, en líkurnar á því að hún nái inn eru einungis níu prósent.
Sex frambjóðendur í kjördæminu mælast með 65 til næstum 100 prósent líkur á að ná kjöri, en alls eru átta þingsæti í boði í Norðvesturkjördæmi. Næstu fjórir frambjóðendur mælast svo með 37-57 prósent líkur til að ná þeim tveimur þingsætum sem þá stæðu eftir.
72%Ásmundur Einar Daðason
11%Brynja Dan Gunnarsdóttir
93%Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
39%Jón Steindór Valdimarsson
3%Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir
>99%Guðlaugur Þór Þórðarson
94%Diljá Mist Einarsdóttir
46%Brynjar Níelsson
>99%Kjartan Magnússon
44%Tómas A. Tómasson
69%Kolbrún Baldursdóttir
46%Gunnar Smári Egilsson
5%Laufey Líndal Ólafsdóttir
22%Vilborg Þóranna Bergmann Kristjánsdóttir
1%Tómas Ellert Tómasson
98%Halldóra Mogensen
70%Andrés Ingi Jónsson
13%Lenya Rún Taha Karim
>99%Helga Vala Helgadóttir
83%Jóhann Páll Jóhannsson
22%Dagbjört Hákonardóttir
91%Katrín Jakobsdóttir
35%Steinunn Þóra Árnadóttir
2%Eva Dögg Davíðsdóttir
Í því kjördæmi Reykjavíkur sem liggur norðan Vesturlandsvegar, Miklubrautar og Hringbrautar eru töluverðar sviptingar frá því að þingmannaspáin var tekin saman síðast. Gunnar Smári Egilsson, formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokks Íslands lækkar verulega frá því í byrjun viku þegar líkurnar á því að hann næði á þing mældust 65 prósent. Þær eru nú undir helmingslíkum, eða 46 prósent. Steinunn Þóra Árnadóttir, sitjandi þingmaður Vinstri grænna, er einnig í mikilli fallhættu en einungis 34 prósent líkur eru á því að hún nái inn að óbreyttu.
Ásmundur Einar Daðason, ráðherra úr Framsóknarflokknum, stendur í stað milli spáa og mælist með 72 prósent líkur á að hljóta þingsæti. Það ætti að duga honum inn.
Brynjar Níelsson hressist á milli spáa og mælist með 46 prósent líkur, eða þær sömu og Gunnar Smári, á að komast inn. Þeir eru nú sennilegastir til að setjast í síðustu tvö þingsæti kjördæmisins. Stutt er þó í Tómas A. Tómasson, oddvita Flokks fólksins, sem mælist með 44 prósent líkur, og Jón Steindór Valdimarsson, sitjandi þingmann Viðreisnar, sem mælist með 39 prósent líkur.
Þeir tíu þingmenn sem mælast með mestar líkur mælast með 70 til næstum 100 prósent líkur á að ná inn. Neðstur í þeim hóp eru Jóhann Páll Jóhannsson, sem situr í öðru sæti hjá Samfylkingunni, en líkur hans á að ná þingsæti aukast í 83 prósent.
78%Lilja Dögg Alfreðsdóttir
15%Aðalsteinn Haukur Sverrisson
96%Hanna Katrín Friðriksson
52%Daði Már Kristófersson
5%María Rut Kristinsdóttir
>99%Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
94%Hildur Sverrisdóttir
45%Birgir Ármannsson
35%Friðjón R. Friðjónsson
47%Inga Sæland
5%Wilhelm Wessman
52%katrín Baldursdóttir
7%Símon Vestarr
30%Fjóla Hrund Björnsdóttir
2%Danith Chan
95%Björn Leví Gunnarsson
53%Arndís Anna Gunnarsdóttir
6%Halldór Auðar Svansson
98%Kristrún Frostadóttir
60%Rósa Björk Brynjólfsdóttir
8%Viðar Eggertsson
94%Svandís Svavarsdóttir
47%Orri Páll Jóhannsson
4%Daníel E. Arnarson
Í Reykjavíkurkjördæmi suður eru ekki síður vendingar og spenna Daði Már Kristófersson, varaformaður Viðreisnar og annar maður á lista þess flokks í kjördæminu, mælist með 52 prósent líkur á að komast inn. Það er sama hlutfall og Katrín Baldursdóttir, oddviti Sósíalistaflokks Íslands, mælist með í kjördæminu en þau eru líklegust til að taka tvö síðustu af ellefu þingsætum kjördæmisins. Rétt fyrir ofan þau, með nánast sömu líkur (53 prósent), er Arndís Anna Gunnarsdóttir, annar maður á lista Pírata, og rétt fyrir neðan eru Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, og Orri Páll Jóhannsson, annar maður á lista Vinstri grænna, með 47 prósent líkur. Skammt á eftir þeim kemur svo maðurinn sem hefur gert óvissu um þingsæti á kosninganótt að lífstíl: Birgir Ármannsson, fjórði maður á lista Sjálfstæðisflokks.
Fjóla Hrund Björnsdóttir, oddviti Miðflokksins, dalar á milli spáa og mælist nú ólíkleg inn með 30 prósent líkur.
Þeir átta frambjóðendur sem mælast með mestar líkur á að ná inn á þing í kjördæminu mælast með 60 til næstum 100 prósent líkur. Minnstar eru líkur Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur, sem situr í öðru sæti á lista Samfylkingarinnar (60 prósent), og Lilju Alfreðsdóttur, varaformanns Framsóknarflokksins (72 prósent).
>99%Sigurður Ingi Jóhannsson
87%Jóhann Friðrik Friðriksson
23%Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir
64%Guðbrandur Einarsson
5%Þórunn Wolfram Pétursdóttir
>99%Guðrún Hafsteinsdóttir
94%Vilhjálmur Árnason
46%Ásmundur Friðriksson
5%Björgvin Jóhannesson
66%Ásthildur Lóa Þórsdóttir
9%Georg Eiður Arnarson
44%Guðmundur Auðunsson
3%Birna Eik Benediktsdóttir
58%Birgir Þórarinsson
6%Erna Bjarnadóttir
70%Álfheiður Eymarsdóttir
11%Linda Völundardóttir
86%Oddný G. Harðardóttir
24%Viktor Stefán Pálsson
79%Hólmfríður Árnadóttir
16%Heiða Guðný Ásgeirsdóttir
Í Suðurkjördæmi eru tíu þingsæti í boði. Sex frambjóðendur mælast með 79 til næstum 100 prósent líkur á að ná inn miðað við nýjustu kosningaspá Kjarnans en þar á eftir er nokkuð jafnræði með nokkrum frambjóðendum.
Álfheiður Eymarsdóttir, oddviti Pírata, mælist svo með 70 prósent líkur, en skammt á hæla hennar kemur Ásthildur Lóa Þórsdóttir, oddviti Flokks fólksins, en líkur hennar hafa farið úr 41 í 66 prósent á tveimur vikum. Líkur Álfheiðar lækka skarpt á milli spáa, fara úr 83 í 70 prósent.
Oddviti Viðreisnar, Guðbrandur Einarsson, mælist með 64 prósent líkur og sem stendur eru mestar líkur á að Birgir Þórarinsson, sitjandi þingmaður og oddviti Miðflokksins, hreppi tíunda og síðasta þingsæti kjördæmisins með 58 prósent líkur.
Líkur Ásmundar Friðrikssonar, þriðja manns á lista Sjálfstæðisflokksins og sitjandi þingmanns, eru komnar upp í 46 prósent og Guðmundur Auðunsson, oddviti Sósíalistaflokksins, mælist með 44 prósent líkur.
95%Willum Þór Þórsson
55%Ágúst Bjarni Garðarsson
9%Anna Karen Svövudóttir
97%Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
64%Sigmar Guðmundsson
14%Elín Anna Gísladóttir
>99%Bjarni Benediktsson
>99%Jón Gunnarsson
94%Bryndís Haraldsdóttir
59%Óli Björn Kárason
16%Arnar Þór Jónsson
2%Sigþrúður Ármann
51%Guðmundur Ingi Kristinsson
10%Jónína Björk Óskarsdóttir
50%María Pétursdóttir
10%Þór Saari
52%Karl Gauti Hjaltason
11%Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir
85%Þórhildur Sunna Ævarsdóttir
36%Gísli Rafn Ólafsson
5%Eva Sjöfn Helgadóttir
93%Þórunn Sveinbjarnardóttir
52%Guðmundur Andri Thorsson
10%Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir
85%Guðmundur Ingi Guðbrandsson
36%Una Hildardóttir
5%Ólafur Þór Gunnarsson
Líkt og áður er mikil hreyfing er í Suðvesturkjördæmi, fjölmennasta kjördæmi landsins sem skilar 13 þingmönnum. Átta þingmenn mælast með 85 prósent eða meiri líkur á að ná inn og sex aðrir mælast með 50 til 64 prósent líkur. Það er því æsispennandi nótt framundan hjá þeim en ljóst að einn þeirra hið minnsta mun sitja eftir með sárt ennið. Ágúst Bjarni Garðarsson, annar maður á lista Framsóknar, bætir mestu við sig milli spáa og fer úr 37 í 55 prósent líkur á því að verða þingmaður. Óli Björn Kárason, fjórði maður á lista Sjálfstæðisflokksins, rís sömuleiðis skarpt úr 45 í 59 prósent líkur.
Líkur Sigmars Guðmundssonar, annars manns Viðreisnar, lækka um níu prósentustig milli þingmannaspáa og standa í 64 prósent og líkur Guðmundar Andra Thorssonar, sitjandi þingmanns Samfylkingar, fara úr 61 í 51 prósent. Þá lækkar María Pétursdóttir, oddviti Sósíalistaflokksins, úr 62 prósent líkum í 50. Á svipuðum slóðum og Guðmundur Ingi Kristinsson, sitjandi þingmaður og oddviti Flokks fólksins, sem hefur bætt við sig heilum 16 prósentustigum á tveimur vikum og á helmingslíkur á þingsæti. Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins, mælist með 52 prósent líkur.
Mest allra lækkar annar maður á lista Pírata í kjördæminu, Gísli Rafn Ólafsson, sem átti 58 prósent líkur á að verða þingmaður í byrjun viku en sá draumur er nú orðinn æði langsóttur með 38 prósent líkur.
Una Hildardóttir, sem situr í öðru sæti á lista Vinstri grænna, mælist nú með 36 prósent líkur á að ná inn.
Lestu meira um komandi kosningar:
-
5. janúar 2023Ásmundur Einar Daðason staðið sig best allra ráðherra – Bjarni Benediktsson langverst
-
3. janúar 2023Samfylkingin ekki stærri hjá Gallup í tólf ár en Vinstri græn hafa aldrei mælst minni
-
21. desember 202242,1 prósent innflytjenda greiddu atkvæði í síðustu alþingiskosningum
-
26. nóvember 2022Allir formenn stjórnarflokkanna tapað umtalsverðu trausti á kjörtímabilinu
-
21. nóvember 2022Tíð ríkisstjórnarskipti og kórónuveiran hafa stóraukið nýtingu fjáraukalaga
-
19. nóvember 2022Samfylkingin hefur næstum tvöfaldað fylgið og andar ofan í hálsmálið á Sjálfstæðisflokki
-
27. október 2022Guðlaugur Þór horfir til þess að fella Bjarna
-
21. október 2022Kristrún Frostadóttir verður ein í framboði til formanns Samfylkingarinnar
-
20. október 2022Píratar og Samfylkingin hafa samanlagt bætt við sig tíu prósentustigum á kjörtímabilinu
-
16. október 2022Guðmundur Árni býður sig fram til varaformanns en Heiða hættir við framboð







































































































































