Svona eru líkur frambjóðenda á að komast inn á Alþingi
Hræringar eru í nokkrum kjördæmum og sitjandi þingmenn eru í mikilli fallhættu. Afar mjótt er á mununum víða en líkur nokkurra þingmanna Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna á að ná þingsæti hafa dregist saman. Kjarninn birtir nýja þingsætaspá.
Kjarninn og Baldur Héðinsson framkvæma kosningaspá í aðdraganda hverra kosninga. Frá árinu 2014 hefur spáin verið keyrð tvívegis fyrir borgarstjórnarkosningar, fyrir forsetakosningarnar 2016 og 2020, og þingkosningar 2016 og 2017. Hún er því keyrð nú, í aðdraganda kosninga 2021, í sjöunda sinn.
Samhliða er keyrð þingsætaspá sem byggir á reiknilíkani Baldurs. Hún er framkvæmd þannig að keyrðar eru 100 þúsund sýndarkosningar miðað við fylgi flokka í kosningaspánni sem birt var í gærmorgun, 15. september. Reiknilíkanið úthlutar svo kjördæma- og jöfnunarsætum út frá niðurstöðunum. Líkur frambjóðanda á að ná kjöri er þess vegna hlutfall „sýndarkosninga“ þar sem frambjóðandinn nær kjöri.
Í stuttu máli er aðferðafræðin sú að fylgi framboða í skoðanakönnunum er talin líklegasta niðurstaða kosninga að viðbættri óvissu sem byggir á sögulegu fráviki kannana frá kosningaúrslitum. Söguleg gögn sýna að fylgni er á milli þess að ofmeta/vanmeta fylgi flokks í einu kjördæmi og að ofmeta/vanmeta fylgi flokksins í öðrum kjördæmum. Frávikið frá líklegustu niðurstöðu fyrir flokk er því ekki óháð milli kjördæma. Ef frávikið er neikvætt í einu kjördæmi fyrir ákveðinn flokk aukast líkurnar á að það sé sömuleiðis neikvætt í öðrum kjördæmum.
Í síðustu þingsætaspá sem birt var á Kjarnanum var hægt að merkja þá þingmenn hvers kjördæmis sem mælast með mestar líkur á að ná þeim þingsætum sem eru í boði með appelsínugulum þríhyrningi. Það er ekki hægt í þeirri þingsætaspá sem nú birtist í ljósi þess að einn flokkur hefur bæst við sem hefur meira en fimm prósent fylgi, Flokkur fólksins, og myndi þar með alltaf ná að minnsta kosti einum kjördæmakjörnum þingmanni og fá úthlutað jöfnunarþingmönnum.
Auk þess er það mat ritstjórnar Kjarnans að svo mjótt sé á mununum í nokkrum kjördæmum að ekki forsvaranlegt að gera upp á milli frambjóðenda sem eru nánast með sömu líkur á að ná inn.
Í Norðvesturkjördæmi er til að mynda sá frambjóðandi sem á mestar líkur að ná áttunda, og síðasta, þingsæti kjördæmisins með 45 prósent líkur á því og sá sem er næstur fyrir ofan hann með 48 prósent. Þeir tveir frambjóðendur sem eftir koma mælast með 41 til 44 prósent líkur og því má ljóst vera að líkur þessara frambjóðenda á að ná inn eru afar svipaðar. Sömu sögu er að segja í Suðvesturkjördæmi þar sem þrír frambjóðendur mismunandi flokka mælast með 42 til 45 prósent líkur á að ná inn.
>99%Ingibjörg Ólöf Isaksen
87%Líneik Anna Sævarsdóttir
24%Þórarinn Ingi Pétusson
58%Eiríkur Björn Björgvinsson
4%Sigríður Ólafsdóttir
>99%Njáll Trausti Friðbertsson
82%Berglind Ósk Guðmundsdóttir
23%Berglind Harpa Svavarsdóttir
41%Jakob Frímann Magnússon
47%Haraldur Ingi Haraldsson
3%Margrét Pétursdóttir
70%Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
11%Anna Kolbrún Árnadóttir
71%Einar Brynjólfsson
11%Hrafndís Bára Einarsdóttir
93%Logi Már Einarsson
37%Hilda Jana Gísladóttir
2%Eydís Ásbjörnsdóttir
93%Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir
38%Jódís Skúladóttir
3%Óli Halldórsson
Í Norðausturkjördæmi eru tíu þingsæti í boði. Þeir tíu frambjóðendur sem eru með mestar líkur á að ná þeim mælast með 58 til næstum 100 prósent líkur á því að ná kjöri. Sá frambjóðandi sem mælist með mestar líkur á að ná inn fyrir utan þann hóp er Jódís Skúladóttir, sem situr í öðru sæti á lista Vinstri grænna, með 42 prósent líkur.
Fast á hæla hennar kemur Hilda Jana Gísladóttir, sem situr í öðru sæti á lista Samfylkingarinnar, með 41 prósent líkur en hún bætir umtalsvert við líkur sínar frá síðustu þingmannaspá, þegar þær mældust 34 prósent. Jakob Frímann Magnússon, oddviti Flokks fólksins, er þó sá sem bætir mest við líkur sínar milli spáa, en þær fara úr 26 í 34 prósent.
>99%Stefán Vagn Stefánsson
65%Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir
20%Halla Signý Kristjánsdóttir
40%Guðmundur Gunnarsson
1%Bjarney Bjarnadóttir
>99%Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
92%Haraldur Benediktsson
30%Teitur Björn Einarsson
47%Eyjólfur Ármansson
29%Helga Thorberg
57%Bergþór Ólason
3%Sigurður Páll Jónsson
83%Magnús Norðdahl
2%Gunnar Ingiberg Guðmundsson
93%Valgarður Lyngdal Jónsson
37%Jónína Björg Magnúsdóttir
79%Bjarni Jónsson
9%Lilja Rafney Magnúsdóttir
Oddviti Sósíalistaflokks, Helga J. Thorberg, á nú meiri líkur á að ná inn en annar þingmaður Framsóknarflokks, Lilja Rannveig Sigurðardóttir. Það munar þó einungis einu prósentustigi.
Eyjólfur Ármannsson, oddviti flokks fólksins, bætir marktækt við sig líkum en er enn ósennilegur inn á þing með 38 prósent líkur. Bjarni Jónsson, oddviti Vinstri grænna, lækkar um fimm prósentustig frá síðustu þingsætaspá en á samt sem áður 82 prósent líkur á því að ná þingsæti. Það er hins vegar á brattan að sækja fyrir Lilju Rafney Magnúsdóttur, sitjandi þingmanni Vinstri grænna í kjördæminu, en líkurnar á því að hún nái inn eru einungis ellefu prósent.
Sex frambjóðendur í kjördæminu mælast með 69 til næstum 100 prósent líkur á að ná kjöri, en alls eru átta þingsæti í boði í Norðvesturkjördæmi. Næstu fjórir frambjóðendur mælast svo með 41-48 prósent líkur og eru því allir með svipaðar líkur á að ná þeim tveimur þingsætum sem eftir standa.
72%Ásmundur Einar Daðason
11%Brynja Dan Gunnarsdóttir
93%Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
39%Jón Steindór Valdimarsson
3%Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir
>99%Guðlaugur Þór Þórðarson
94%Diljá Mist Einarsdóttir
46%Brynjar Níelsson
>99%Kjartan Magnússon
44%Tómas A. Tómasson
69%Kolbrún Baldursdóttir
46%Gunnar Smári Egilsson
5%Laufey Líndal Ólafsdóttir
22%Vilborg Þóranna Bergmann Kristjánsdóttir
1%Tómas Ellert Tómasson
98%Halldóra Mogensen
70%Andrés Ingi Jónsson
13%Lenya Rún Taha Karim
>99%Helga Vala Helgadóttir
83%Jóhann Páll Jóhannsson
22%Dagbjört Hákonardóttir
91%Katrín Jakobsdóttir
35%Steinunn Þóra Árnadóttir
2%Eva Dögg Davíðsdóttir
Í því kjördæmi Reykjavíkur sem liggur norðan Vesturlandsvegar, Miklubrautar og Hringbrautar eru miklar væringar á milli þingsætaspáa. Sú mesta líkur Steinunnar Þóru Árnadóttur, annars þingmanns Vinstri grænna, á því að ná kjöri hrapa úr 46 í 37 prósent. Það færir hana niður fyrir þrjá aðra þingmenn sem berjast um ellefta og síðasta þingsæti kjördæmisins. Sem stendur eru mestar líkur á að Jón Steindór Valdimarsson, annar maður á lista Viðreisnar, nái því en þær mælast 43 prósent. Á nánast sömu slóðum eru þó Brynjar Níelsson, þriðji maður á lista Sjálfstæðisflokksins sem lækkar um fimm prósentustig milli spáa og er með 40 prósent líkur, og Tómas A. Tómasson, oddviti flokks fólksins, en líkur hans á að ná inn rísa úr 31 í 39 prósent milli þingsætaspáa.
Þeir tíu þingmenn sem mælast með mestar líkur mælast með 63 til næstum 100 prósent líkur á að ná inn. Neðstur í þeim hóp eru Jóhann Páll Jóhannsson, sem situr í öðru sæti hjá Samfylkingunni, en líkur hans á að ná þingsæti aukast úr 56 í 63 prósent. Þar á eftir kemur Gunnar Smári Egilsson, oddviti Sósíalistaflokks Íslands, með 65 prósent líkur en gott gengi flokks hans í kosningaspánni hefur aukið líkur hans á að ná inn.
78%Lilja Dögg Alfreðsdóttir
15%Aðalsteinn Haukur Sverrisson
96%Hanna Katrín Friðriksson
52%Daði Már Kristófersson
5%María Rut Kristinsdóttir
>99%Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
94%Hildur Sverrisdóttir
45%Birgir Ármannsson
35%Friðjón R. Friðjónsson
47%Inga Sæland
5%Wilhelm Wessman
52%katrín Baldursdóttir
7%Símon Vestarr
30%Fjóla Hrund Björnsdóttir
2%Danith Chan
95%Björn Leví Gunnarsson
53%Arndís Anna Gunnarsdóttir
6%Halldór Auðar Svansson
98%Kristrún Frostadóttir
60%Rósa Björk Brynjólfsdóttir
8%Viðar Eggertsson
94%Svandís Svavarsdóttir
47%Orri Páll Jóhannsson
4%Daníel E. Arnarson
Í Reykjavíkurkjördæmi suður eru ekki síður vendingar. Orri Páll Jóhannsson, annar maður á lista Vinstri grænna, hríðfellur í líkum milli þingsætaspáa, úr 45 í 36 prósent líkur. Það þýðir að Daði Már Kristófersson, varaformaður Viðreisnar og annar maður á lista þess flokks í kjördæminu, er nú líklegastur til að ná síðasta þingsætinu með 43 prósent líkur. Það stefnir þó í æsispennandi baráttu um það sæti þar sem nokkrir aðrir frambjóðendur eru með svipaðar líkur á að ná inn og hann. Þar ber fyrst að nefna Ingu Sæland, formann Flokks fólksins, sem hækkar sig úr 30 í 38 prósent líkur. Fjóla Hrund Björnsdóttir, oddviti Miðflokksins, mælist líka með 38 prósent líkur og Birgir Ármannsson, þriðji maður á lista Sjálfstæðisflokks, mælist með 37 prósent, en hann lækkar um sex prósentustig milli spáa.
Þeir tíu frambjóðendur sem mælast með mestar líkur á að ná inn á þing í kjördæminu mælast með 56 til næstum 100 prósent líkur. Minnstar eru líkur Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur, sem situr í öðru sæti á lista Samfylkingarinnar (56 prósent), Arndísar Önnu Helgadóttur, sem situr í öðru sæti á lista Pírata (62 prósent) og Katrínar Baldursdóttur, oddvita Sósíalistaflokks Íslands (64 prósent). Þeir sex sem mælast með mestar líkur á að ná inn mælast allir með yfir 90 prósent líkur.
>99%Sigurður Ingi Jóhannsson
87%Jóhann Friðrik Friðriksson
23%Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir
64%Guðbrandur Einarsson
5%Þórunn Wolfram Pétursdóttir
>99%Guðrún Hafsteinsdóttir
94%Vilhjálmur Árnason
46%Ásmundur Friðriksson
5%Björgvin Jóhannesson
66%Ásthildur Lóa Þórsdóttir
9%Georg Eiður Arnarson
44%Guðmundur Auðunsson
3%Birna Eik Benediktsdóttir
58%Birgir Þórarinsson
6%Erna Bjarnadóttir
70%Álfheiður Eymarsdóttir
11%Linda Völundardóttir
86%Oddný G. Harðardóttir
24%Viktor Stefán Pálsson
79%Hólmfríður Árnadóttir
16%Heiða Guðný Ásgeirsdóttir
Í Suðurkjördæmi eru tíu þingsæti í boði. Sjö frambjóðendur mælast með 83 til næstum 100 prósent líkur á að ná inn miðað við nýjustu kosningaspá Kjarnans en þar á eftir er nokkuð jafnræði með nokkrum frambjóðendum. Oddviti Viðreisnar, Guðbrandur Einarsson, mælist með 70 prósent líkur, Guðmundur Auðunsson, oddviti Sósíalistaflokksins, mælist með 53 prósent líkur og Birgir Þórarinsson, sitjandi þingmaður og oddviti Miðflokksins, með 52 prósent líkur, en hann lækkar um fjögur prósentustig milli spáa.
Hástökkvarinn í kjördæminu frá því að síðasta spá var keyrð er Ásthildur Lóa Þórsdóttir, oddviti Flokks fólksins, en líkur hennar hafa farið úr 41 í 48 prósent.
Líkur frambjóðenda tveggja stjórnarflokka í kjördæminu, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna, lækka nokkuð milli spáa. Þannig fara líkur Ásmundar Friðrikssonar, þriðja manns á lista Sjálfstæðisflokksins og sitjandi þingmanns, úr 35 í 39 prósent og líkur Hólmfríður Árnadóttur, oddvita Vinstri grænna, úr 88 í 83 prósent.
95%Willum Þór Þórsson
55%Ágúst Bjarni Garðarsson
9%Anna Karen Svövudóttir
97%Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
64%Sigmar Guðmundsson
14%Elín Anna Gísladóttir
>99%Bjarni Benediktsson
>99%Jón Gunnarsson
94%Bryndís Haraldsdóttir
59%Óli Björn Kárason
16%Arnar Þór Jónsson
2%Sigþrúður Ármann
51%Guðmundur Ingi Kristinsson
10%Jónína Björk Óskarsdóttir
50%María Pétursdóttir
10%Þór Saari
52%Karl Gauti Hjaltason
11%Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir
85%Þórhildur Sunna Ævarsdóttir
36%Gísli Rafn Ólafsson
5%Eva Sjöfn Helgadóttir
93%Þórunn Sveinbjarnardóttir
52%Guðmundur Andri Thorsson
10%Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir
85%Guðmundur Ingi Guðbrandsson
36%Una Hildardóttir
5%Ólafur Þór Gunnarsson
Mikil hreyfing er í Suðvesturkjördæmi, fjölmennasta kjördæmi landsins sem skilar 13 þingmönnum, líkt og hinum kjördæmunum á höfuðborgarsvæðinu. Átta þingmenn mælast með 85 prósent eða meiri líkur á að ná inn og fjórir aðrir mælast með 58 til 73 prósent líkur. Í síðarnefnda hópnum bætir María Pétursdóttir, oddviti Sósíalistaflokksins, við sig þremur prósentustigum milli spáa og er nú með 62 prósent líkur á að ná inn. Guðmundur Andri Thorsson, annar maður á lista Samfylkingarinnar, eykur sömuleiðis líkur sínar umtalsvert og fer úr 55 í 61 prósent.
Óli Björn Kárason, fjórði maður á lista Sjálfstæðisflokksins í þessu kjördæmi formanns hans, lækkar hins vegar um fimm prósentustig milli spáa og mælist nú með 45 prósent líkur á að ná inn. Skammt á hæla hans koma Guðmundur Ingi Kristinsson, sitjandi þingmaður og oddviti Flokks fólksins, sem bætir við sig heilum níu prósentustigum milli spáa og mælist nú með 43 prósent líkur á að ná inn, og Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins, sem mælist með 42 prósent líkur. Una Hildardóttir, sem situr í öðru sæti á lista Vinstri grænna, mælist nú með 35 prósent líkur á að ná inn en þær mældust 42 prósent síðast þegar þingsætaspáin var keyrð.
Lestu meira um komandi kosningar:
-
5. janúar 2023Ásmundur Einar Daðason staðið sig best allra ráðherra – Bjarni Benediktsson langverst
-
3. janúar 2023Samfylkingin ekki stærri hjá Gallup í tólf ár en Vinstri græn hafa aldrei mælst minni
-
21. desember 202242,1 prósent innflytjenda greiddu atkvæði í síðustu alþingiskosningum
-
26. nóvember 2022Allir formenn stjórnarflokkanna tapað umtalsverðu trausti á kjörtímabilinu
-
21. nóvember 2022Tíð ríkisstjórnarskipti og kórónuveiran hafa stóraukið nýtingu fjáraukalaga
-
19. nóvember 2022Samfylkingin hefur næstum tvöfaldað fylgið og andar ofan í hálsmálið á Sjálfstæðisflokki
-
27. október 2022Guðlaugur Þór horfir til þess að fella Bjarna
-
21. október 2022Kristrún Frostadóttir verður ein í framboði til formanns Samfylkingarinnar
-
20. október 2022Píratar og Samfylkingin hafa samanlagt bætt við sig tíu prósentustigum á kjörtímabilinu
-
16. október 2022Guðmundur Árni býður sig fram til varaformanns en Heiða hættir við framboð







































































































































