Stafræn innbrot, lukkuriddarar, valdamenn sem féllu, göng og ónýt blokk í Þorlákshöfn

Mest lesnu innlendu fréttaskýringar ársins 2022 áttu fátt annað sameiginlegt en mikinn lestur. Þær fjölluðu um deilur, skipulagsmál, galla, kynferðisbrot og menn sem vilja reisa vindmyllur.

innskyre20222
Auglýsing

5. Fóru inn í tölvu­pósta Sól­veigar Önnu og Við­ars

Þá starf­andi for­maður Efl­ingar hafði aðgang að tölvu­póst­hólfum fyr­ir­renn­ara síns, Sól­veigar Önnu Jóns­dótt­ur, og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Efl­ing­ar, Við­ars Þor­steins­son­ar, frá því í jan­úar á þessu ári og fram í apr­íl. Aðgang­ur­inn var virkur eftir að Sól­veig Anna var end­ur­kjörin sem for­maður Efl­ingar og eftir að hún tók aftur við því emb­ætti. Í álits­gerð lög­manns, sem Kjarn­inn greindi frá í októ­ber, sagði að athæfið sé brot á per­sónu­vernd­ar­lögum og Sól­veig Anna til­kynnti málið í kjöl­farið til Per­sónu­vernd­ar.

Lestu frétta­skýr­ing­una í heild hér.

4. Jarð­göng undir Fjarð­ar­heiði með lengstu veggöngum í heimi

Fjarð­ar­heið­ar­göng, sem eiga að vera 13,3 kíló­metrar að lengd, yrðu ekki aðeins lengstu veggöng á Íslandi heldur með þeim lengstu í heimi. Kostn­að­ur­inn yrði á bil­inu 44-47 millj­arðar króna en með fram­kvæmd­inni yrði hæsta fjall­vegi milli þétt­býl­is­staða á land­inu útrýmt.

Lestu frétta­skýr­ing­una í heild hér.

3. „Lukku­ridd­ar­arn­ir“ í bak­garð­inum

Þrír fyrr­ver­andi þing­menn, fjögur erlend stór­fyr­ir­tæki, félag í eigu svo­kall­aðs hrun­verja og fólk úr sveitum Vest­ur­lands koma við sögu í frá­sögn Sunnu Óskar Loga­dóttur af fundi seinni hluta sept­em­ber­mán­aðar þar sem vind­orku­fyr­ir­tæki kynntu áform sín.

Auglýsing
„Við viljum þetta ekki,“ sagði fund­ar­gest­ur. Allir þurfa „að taka á sig“ að fá vind­myllur nálægt sér, sagði Vil­hjálmur Egils­son, for­maður græn­bók­ar­nefnd­ar­inn­ar, sem er kom­inn í verk­efni fyrir orku­fyr­ir­tæk­in.

Lestu frétta­skýr­ing­una í heild hér.

2. Valda­menn í við­skipta­líf­inu falla hver af öðrum vegna ásak­ana um kyn­ferð­is­brot

Í byrjun árs birt­ist ítar­leg frétta­skýr­ing um mál sem Kjar­inn hafði rann­sakað í rúma tvo mán­uði, eða frá því að ung kona, Vítalía Laz­­areva, birti frá­­­sögn á sam­­fé­lags­mið­l­inum Instagram. Frá­­­sögnin var af kyn­­ferð­is­of­beldi sem hún sagði sig hafa orðið fyrir af hendi þriggja manna.

Menn­irnir eru Ari Edwald, þá for­stjóri Ísey Skyr, Hregg­viður Jóns­son, þá stjórn­ar­for­maður og aðal­eig­andi Veritas, og Þórður Már Jóhann­es­son, þá stjórn­ar­for­maður Festi, um kyn­ferð­is­of­beldi. Dag­inn sem frétta­skýr­ingin birt­ist höfðu allir þrír stigið til hliðar úr ábyrgð­ar­stöð­um.

Lestu frétta­skýr­ing­una í heild hér.

1 Blokkin í Þor­láks­höfn

Í mars voru úbúar og hús­fé­lag í fjöl­býl­is­húsi í Þor­láks­höfn að und­ir­búa mál­sókn vegna margs konar galla og skemmda í íbúðum og sam­eign. Íbúi í hús­inu sagði við Kjarn­ann að húsið væri þekkt sem „ónýtu blokk­ina í Þor­láks­höfn“ og skamm­að­ist sín fyrir að búa þar. Eig­andi Pró hús ehf., sem stóð að bygg­ingu blokk­ar­innar rúmum tveimur árum fyrr, sagði málið hafa reynst erfitt. Hann sak­aði bygg­ing­ar­full­trúa í Ölf­usi um vald­níðslu og ein­elti en lof­aði lag­fær­ingum með vor­inu.

Lestu frétta­skýr­ing­una í heild hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk