Sturgeon til í að ræða frestun þjóðaratkvæðagreiðslu

Fyrsti ráðherra Skotlands segist vera tilbúin til að fresta fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði um sanngjarnan tíma.

Nicola Sturgeon er til í að ræða málamiðlanir, en þó innan skynsamlegra marka. Hún segir ósanngjarnt af breskum stjórnvöldum að ætla að gata björgunarbát Skota, eftir að Brexit sökkti skipinu.
Nicola Sturgeon er til í að ræða málamiðlanir, en þó innan skynsamlegra marka. Hún segir ósanngjarnt af breskum stjórnvöldum að ætla að gata björgunarbát Skota, eftir að Brexit sökkti skipinu.
Auglýsing

Nicola Stur­ge­on, fyrsti ráð­herra Skotlands, seg­ist reiðu­búin til að fresta þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um sjálf­stæði Skotlands gagn­vart Bretum um sann­gjarnan tíma. Ekki megi fresta atkvæða­greiðsl­unni lengi og alls ekki þar til eftir útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu.

Kjarn­inn greindi frá því á mið­viku­dag að búist væri við því að Ther­esa May, for­­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, neiti beiðni Skota um þjóð­­ar­at­­kvæða­greiðslu um sjálf­­stæði að sinni. Hún er sögð vilja bíða með slíka þjóð­­ar­at­­kvæða­greiðslu fram yfir að nið­­ur­­staða útgöngu Breta úr Evr­­ópu­­sam­­band­inu er ljós.

Stur­geon hafði áður lagt til að þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um sjálf­stæði yrði haldin á ný árið 2018, áður en Bret­land getur gengið frá samn­ingum við Evr­ópu­sam­bandið um útgöngu, það er Brex­it. Í gær greindu breskir fjöl­miðlar frá því að hún gæti ímyndað sér að fresta atkvæða­greiðsl­unni um annað ár.

Auglýsing

Skotar kusu síð­ast um sjálf­stæði í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu árið 2014 og höfn­uðu þá sjálf­stæði með naumum meiri­hluta. Í kjöl­far þess að Bretar völdu að ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu sum­arið 2015 hefur umræðan um sjálf­stæði Skotlands náð flugi á ný, enda greiddu Skotar atkvæði gegn útgöngu úr ESB.

St­ur­geon sagði í sjón­varps­við­tali að Ther­esa May hafi ekki verið sam­mála henni um þann tímara­mma sem Skotar hafi lagt til. „Það er þá hennar að segja hvaða tímara­mmi sé hent­ugur og ég er reiðu­búin að eiga það sam­tal um sann­gjarnan ramma,“ sagði Stur­ge­on.

Hún sagði einnig að það væri ekki boð­legt að fresta þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu fram yfir næstu þing­kosn­ingar í Skotlandi árið 2021. „Ég tel það ekki vera skyn­sam­legt því þá verður búið að slíta Skotland út úr ESB.“

„Ef hún er að tala um vorið 2019, nokkru síðar en ég hafði lagt til, þá gæti verið ráð­rúm til að ræða það. En fyrir mér er það ósann­gjarnt í grund­vall­ar­at­riðum af bresku rík­is­stjórn­inni, haf­andi sökkt bátnum með Brex­it, að reyna að gera gat á björg­un­ar­bát Skotlands lík­a.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None