Slúðurblað greiddi fyrrverandi dyraverði í byggingu Trumps 30,000 dollara

Trump er aftur kominn í vandræði vegna greiðslu til að þagga niður mál tengt honum. Slúðurblað komst á snoður um að Trump hafi eignast barn með einum af starfsmönnum Trump-turnsins.

Trumptower
Auglýsing

Trump er aftur kom­inn í vand­ræði vegna greiðslu til að þagga niður mál honum tengd. AP frétta­stofan greinir frá því að slúð­ur­blaðið The National Enquirer hafi greitt fyrr­ver­andi dyra­verði í Trump-­turn­inum í New York að nafni Dino Saju­din 30,000 doll­ara. Ástæðan fyrir greiðsl­unni er hins vegar óljós. Sam­kvæmt heim­ildum AP var Saju­din greitt fyrir að þegja yfir sögu­sögnum um að Trump hafi eign­ast barn með einum af starfs­mönnum bygg­ing­ar­inn­ar. Að sögn aðstoð­ar­rit­stjóra The Enquirer greiddi blaðið honum hins vegar fyrir sög­una, því ef hún væri sönn myndi það borga sig marg­falt til baka.



Þau hafi hins vegar fallið frá mál­inu því heim­ild­ar­mað­ur­inn þótti ekki nógu örugg­ur. Systur­út­gáfa The Enquirer greindi frá greiðsl­unni fyrr í vik­unni og að Enquirer hafi eytt fjórum vikum í að rann­saka málið en hafi fallið frá mál­inu vegna ónægra sönn­un­ar­gagna.

Auglýsing



Fyrr­ver­andi blaða­maður The Enquirer segir að óvenju­legum vinnu­brögðum hafi verið beitt við vinnslu á mál­inu en blaðið er þekkt fyrir að ganga langt til að ná draga fram sönn­un­ar­gögn í mál­um. Blaða­mað­ur­inn fyrr­ver­andi sagði einnig að honum þætti ólík­legt að blaðið myndi eyða þess­ari fjár­hæð í sögu­sagnir án þess að birta nokkuð um mál­ið.



AP frétta­stofan hefur stað­fest­ingu fyrir því að Mich­ael Cohen, lög­fræð­ingur Trumps, hafi rætt við tíma­ritið um mál dyra­varð­ar­ins. Vakna því upp spurn­ingar um tengsl tíma­rits­ins við Trump og lög­fræð­inga hans.



Þetta er ekki í fyrsta skipti sem upp kemst að tíma­ritið hafi greitt ein­hverjum fyrir að þegja yfir upp­lýs­ingum tengdum Trump. Átta dögum fyrir for­seta­kosn­ing­arnar í nóv­em­ber 2016 greindi The Wall Street Journal frá því að The Enquirer hafi greitt Play­boy fyr­ir­sæt­unni Karen McDougal fyrir að þegja yfir sam­skiptum sínum við Trump.



Banda­ríska alrík­is­lög­reglan, FBI, rann­sakar nú sam­skipti lög­fræð­ings Trumps og stjórn­enda The Enquirer en fyrr í vik­unni var greint frá því að FBI gerði hús­leit á skrif­stofu Cohens. Lög­fræð­ingar eru einnig rann­saka mál lög­fræð­ings Trumps og hvort hann hafi brotið kosn­inga­lög þegar hann greiddi klám­stjörn­unni Stormy Dani­els fyrir að þegja yfir sam­skiptum sínum við for­set­ann. Cohen seg­ist hins­vegar hafa greitt henni úr eigin vasa og því ekki brotið nein lög.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent