Hæstiréttur veitir leyfi til áfrýjunar í máli landsréttardómara

Hæstiréttur hefur samþykkt að veita leyfi til áfrýjunar í máli sem Arnfríður Einarsdóttir dæmdi í Landsrétti.

Landsréttur
Auglýsing

Hæsti­réttur hefur sam­þykkt að veita leyfi til áfrýj­unar í máli sem Arn­fríður Ein­ars­dóttir dæmdi í Lands­rétti. Rétt­ur­inn mun því skera úr um hvort Arn­fríður hafi verið með réttu hand­hafi dóms­valds þegar hún dæmdi í mál­inu. Stefnt er að því að dæma í mál­inu fyrir rétt­ar­hlé í júní og fer það því fram fyrir ein­hver ódæmd mál hjá rétt­in­um.

Þetta kemur fram í frétt RÚV. 

Kjarn­inn hefur fjallað um málið en for­sagan er sú að Vil­hjálmur Hans Vil­hjálms­son, lög­mað­ur, gerði þá kröfu að Arn­­fríður viki sæti þar sem hún var einn þeirra fjög­­urra dóm­­ara sem skip­aðir voru í rétt­inn af Sig­ríði Á. And­er­­sen dóms­­mála­ráð­herra þrátt fyrir að vera ekki meðal þeirra sem hæfn­is­­nefnd hafði talist hæf­asta til að gegna emb­ætt­inu.

Auglýsing

Lands­­réttur hafn­aði kröfu Vil­hjálms þann 22. febr­úar síð­ast­lið­inn og sagði að skip­un­inni yrði ekki hagg­að. Alþingi hafi sam­­þykkt skip­un­ina og á þeim grund­velli hafi for­­seti Íslands skipað hana. Þá liggi fyrir að Arn­­fríður upp­­­fylli og upp­­­fyllti við skip­un­ina almenn hæf­is­skil­yrði sam­­­kvæmt lögum um dóm­stóla. Sem skip­uðum dóm­­­ara beri henni að rækja þann starfa sem emb­ætt­inu fylgir í sam­ræmi við stjórn­­­­­ar­­­skránna. Þá njóti hún sjálf­­­stæðis í emb­ætt­is­at­höfnum sín­um, meðal ann­­­ars gagn­vart ráð­herra sem gerði til­­­lögu um skipan hennar í emb­ætt­ið.

Vil­hjálmur sótti um áfrýj­un­ar­leyfi vegna dóms­máls­ins til Hæsta­rétt­ar. Í frétt RÚV kemur fram að hann telji mik­il­vægt að æðsta dóm­stig lands­ins skeri úr um hvort skipan Arn­fríðar hafi verið lögum sam­kvæmt. Það sé ekki sjálf­gefið að Hæsti­réttur veiti slíkt leyfi. Enn fremur kemur fram að Jón H.B. Snorra­son, sak­sókn­ari í mál­inu, hafi sent Hæsta­rétti bréf fyrir helgi, þar sem fram komi stuðn­ingur hans við að leyfið verði veitt.

Hæsti­réttur féllst svo á það í gær, sam­kvæmt RÚV, að veita áfrýj­un­ar­leyf­ið. Í bréfi sem rétt­ur­inn sendi aðilum máls­ins segir meðal ann­ars:

Sak­born­ing­ur­inn telur skil­yrði „fyrir veit­ingu áfrýj­un­ar­leyfis vera upp­fyllt þar sem meðal dóm­ara í mál­inu fyrir Lands­rétti hafi verið dóm­ari sem ekki sé með réttu hand­hafi dóms­valds með því að skipun við­kom­andi í emb­ætti hafi ekki verið lögum sam­kvæm. Ákæru­valdið fellst á að mik­il­vægt sé að fá úrlausn Hæsta­réttar um það álita­efni, en telur að nið­ur­staða Lands­réttar um refs­ingu og svipt­ingu öku­réttar [sak­born­ings­ins] sé í sam­ræmi við dóma í sam­bæri­legum mál­um.

Að virtum gögnum máls­ins er beiðnin sam­þykkt.“

„Þetta er í fyrsta skipti sem Hæsti­réttur veitir leyfi til áfrýj­unar á dómi úr Lands­rétti. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá rétt­inum er stefnt að því að dæma í mál­inu fyrir rétt­ar­hlé, sem hefst seint í júní. Þor­steinn A. Jóns­son, skrif­stofu­stjóri Hæsta­rétt­ar, segir að það þýði að dæmt verði í mál­inu áður en dæmt verður í nokkrum fjölda einka­mála sem bíða dóms,“ segir í frétt­inni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent