Líf Magneudóttir, oddviti Vinstri grænna í Reykjavík og forseti borgarstjórnar, segir að sér finnist ákvarðanir stjórnar Hörpu um að hækka laun forstjóra fyrirtækisins bera vott um dómgreindarleysi. „Það gengur ekki að hækka laun æðstu stjórnenda á sama tíma og verið er að vinna að hagræðingu. Reykjavíkurborg þarf að senda stjórninni tilmæli í framhaldinu um að móta sér starfkjarastefnu sem tryggir að laun æðstu stjórnenda verði ekki hækkuð umfram það sem venjulegu launafólki stendur til boða.“ Þetta kemur fram í stöðuuppfærslur sem Líf setti á Facebook í dag. Vinstri græn sitja í meirihlutanum sem situr við völd.
Þetta er vont mál. Svona eiga fyrirtæki í eigu borgarinnar ekki að koma fram. Við verðum að endurskoða stefnu...
Posted by Líf Magneudóttir on Tuesday, May 8, 2018
Mikil óánægja hefur verið á meðal starfsmanna Hörpu með það að laun forstjórans, Svanhildar Konráðsdóttur, hafi verið hækkuð um 20 prósent í fyrra. Meðal annars sögðu 20 þjónustufulltrúar sem störfuðu hjá fyrirtækinu upp störfum í gær eftir fund með forstjóranum. Stutt er síðan að starfsfólk Hörpu tók á sig launalækkun vegna
erfiðleika í rekstri.Líf segir málið vera vont og að svona eigi fyrirtæki í eigu borgarinnar ekki að koma fram. „Við verðum að endurskoða stefnu borgarinnar og aðkomu hennar að launastefnu fyrirtækja í hennar eigu. Og þá sér í lagi hvert bilið milli hæstu og lægstu launa eigi að vera.
Það er alls ekki forgangsmál í mínum huga að hækka laun þeirra sem hæst hafa launin. Þeir geta beðið. Þau lægstlaunuðu geta það hins vegar ekki. Það er brýnt að bæta starfskjör þeirra fyrst. Þetta á við um öll fyrirtæki í eigu borgarinnar.“
Harpa er í eigu Reykjavíkurborgar og íslenska ríkisins.
Úrskurður kjararáðs kom daginn áður en ráðning var tilkynnt
Forstjóri Hörpu átti að fá 1,3 milljónir króna í laun á mánuði samkvæmt úrskurði kjararáðs sem birtur var opinberlega 21. febrúar 2017. Daginn eftir að sá úrskurður var birtur , þann 22. febrúar, var tilkynnt að Svanhildur Konráðsdóttir hefði verið ráðin í starfið og að hún myndi hefja störf 1. maí 2017.
Í yfirlýsingu sem stjórn Hörpu sendi frá sér í dag segir að úrskurður kjararáðs hafi komið eftir að samið hefði verið við Svanhildi um að taka við starfinu á öðrum kjörum en sá úrskurður sagði til um. Líkt og áður sagði var tilkynnt um ráðningu hennar daginn eftir að úrskurður kjararáðs var birtur opinberlega.
Í yfirlýsingunni segir að því hafi í raun verið um „tímabundna launalækkun“ forstjórans að ræða í þá tvo mánuði sem laun hennar voru í samræmi við ákvörðun kjararáðs. Svanhildur sat sjálf í stjórn Hörpu þegar hún var ráðin sem forstjóri og laun hennar voru ákvörðuð. Hún hafði setið þar frá árinu 2012. Sérstaklega var tiltekið, þegar greint var frá ráðningu hennar, að Svanhildur hefði sagt sig frá öllu sem snéri að ráðningu nýs forstjóra áður en starfið var auglýst.
Svanhildur greindi frá því í stöðuuppfærslu á Facebook fyrr í dag að hún hefði óskað eftir því að laun hennar verði lækkuð afturvirkt í samræmi við úrskurð kjararáðs frá því í febrúar 2017.
Mikil taprekstur í langan tíma
Ekki hefur verið hægt að reka Hörpu nema fyrir árleg viðbótarframlög frá eigendum til rekstursins. Tap Hörpu frá byrjun árs 2011 og til síðustu áramóta hefur numið rúmlega 3,4 milljörðum króna. Tap af rekstri Hörpu í fyrra, áður en árlegt fjárframlag ríkis og borgar er reiknað með, var tæplega 1,6 milljarður króna. Þegar búið er að bæta fjárframlagi eigendanna við var tapið hins vegar 243,3 milljónir króna á árinu 2017.
Framlag íslenska ríkisins og Reykjavíkurborgar, eigenda Hörpu, er tvenns konar. Annars vegar greiða eigendurnir upphæð vegna fjármögnunar á fasteigninni sjálfri og hins vegar vegna framlags til rekstrar Hörpu. Frá árinu 2011 hefur framlag vegna fjármögnunar kostnaðar við byggingu Hörpu numið rúmlega sex milljörðum króna. Þær greiðslur munu standa yfir til ársins 2046 og aukast í krónum talið ár frá ári.
Til viðbótar ákváðu eigendur Hörpu að greiða rekstrarframlag vegna hennar frá byrjun árs 2013 og út árið 2016. Samtals nam framlag eigendanna til rekstrar Hörpu á því tímabili um 700 milljónum króna.
Í maí 2017 var ákveðið að gera viðauka við samning Hörpu við eigendur sína sem í fólst að þeir leggðu félaginu til 450 milljónir króna í viðbótarframlag á síðasta ári. Þetta framlag tryggði þó reksturinn einungis út árið 2017. Í ársreikningi Hörpu kemur fram að í janúar 2018 hafi verið ákveðið að leggja Hörpu til 400 milljónir króna til viðbótar á árinu 2018 til að tryggja lausafjárstöðu félagsins út það ár.
Taprekstur síðustu ára hefur leitt til þess að eiginfjárstaða Hörpu er nú orðin neikvæð um 47,5 milljónir króna. Hún var jákvæð um 196 milljónir króna í lok árs 2016.
Ef rekstrartap Hörpu, framlög ríkis og Reykjavíkurborgar vegna skulda hennar og rekstrarframlögin sem ríkið hefur reitt af hendi eru lögð saman kemur í ljós að uppsafnað tap Hörpu frá byrjun árs 2011 og til loka árs 2017 er um 11,5 milljarðar króna. Til viðbótar munu að minnsta kosti bætast við um 1,5 milljarður króna vegna framlags ríkis og borgar í ár.