Stjórn Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ) hefur farið þess á leit við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) að sett verði á stofn nefnd til að gera úttekt á viðbrögðum og málsmeðferð KSÍ vegna kynferðisofbeldismála sem tengst hafa leikmönnum í landsliðum Íslands.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá KSÍ sem sambandið sendi frá sér í kvöld.
Nefndinni er ætlað að fara yfir þá atburðarás sem leiddi til afsagnar formanns og stjórnar KSÍ og bregðast við ásökunum um þöggun. Þá á nefndin að taka sérstaklega til athugunar hvort einhverjar þær aðstæður séu uppi innan KSÍ sem hamla þátttöku kvenna í starfi þess. Í yfirlýsingunni segir að þetta sé gert í tengslum við fullyrðingar sem fram hafa komið í opinberri umræðu um að KSÍ sé karllægt og fráhrindandi fyrir konur. Í því sambandi verði skoðað hvort skipulag KSÍ eða aðrir þættir í starfseminni séu hamlandi fyrir þátttöku kvenna í starfinu.
Knattspyrnusambandið ítrekar afsökunarbeiðni sína til þolenda í yfirlýsingunni og heitir því að vinna ótrautt að því að bæta menningu og starfsanda innan hreyfingarinnar. KSÍ segist vilja laga starfshætti sína að kröfum tímans um viðbrögð við kynferðisofbeldi. Í þessu skyni hafi verið leitað til sérfræðinga og ráðgjafa til að aðstoða hreyfinguna við að vinna að úrbótum til framtíðar og bæta samskipti og upplýsingaflæði til samfélagsins. Stjórn muni leitast eftir að upplýsa um framgang mála fram að aukaþingi.
„KSÍ fordæmir ofbeldi af öllu tagi. Knattspyrnusambandið er að bæta afgreiðslu ofbeldismála og tryggja að þau fari í réttan farveg hjá samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs eða lögreglu. Mikilvægt er að skapa aðstæður til að gera raunverulegar úrbætur í takti við þá ráðgjöf sem KSÍ hefur fengið og að upplýst sé jafnóðum um þau skref sem stigin eru,“ segir í yfirlýsingunni.
Klara komin úr leyfi
Samkvæmt KSÍ hafa tveir faghópar þegar tekið til starfa hjá ÍSÍ og KSÍ sem hafa það hlutverk að skoða ferla, vinnubrögð og heimildir til aðgerða hjá samböndunum. Telur sambandið að hægt verði að ráðast í breytingar á grundvelli þeirra niðurstaðna. KSÍ segist enn fremur ætla að bæta upplýsingagjöf innan hreyfingarinnar og til almennings og fjölmiðla. Fráfarandi stjórn og starfsmenn hafa óskað eftir ráðgjöf frá samskiptafélaginu Aton.JL fram að aukaþingi.
Þá kemur fram að fundargerðir frá fundum sem leiddu til afsagnar formanns og síðar stjórnar séu nú aðgengilegar á vefsvæði KSÍ en fram kemur í yfirlýsingunni að töf hafi orðið á birtingu fundargerða vegna óvenjulegra kringumstæðna, þar sem formaður hafði látið af störfum og framkvæmdastjóri var í tímabundnu leyfi.
Þá segist KSÍ ætla að veita nefnd ÍSÍ öll gögn sem óskað er eftir.
Að endingu kemur fram að KSÍ muni halda aukaþing sitt 2. október næstkomandi og hafi Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri, snúið til baka úr leyfi til að undirbúa það.