Aðförin að Steinunni Valdísi smánarblettur á stjórnmálasögu landsins

Fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar talaði um hótanir í Silfrinu um helgina sem hún fékk vegna starfa sinna í stjórnmálum. Birgitta Jónsdóttir og Logi Einarsson segja bæði að aðförin að henni sé ljótur blettur á stjórnmálasögu Íslands.

Steinunn Valdís Óskarsdóttir
Steinunn Valdís Óskarsdóttir
Auglýsing

Birgitta Jóns­dótt­ir, fyrr­ver­andi þing­maður Pírata, segir í Face­book-­færslu að aðförin að Stein­unni Val­dísi Ósk­ars­dóttur sé smán­ar­blettur á stjórn­mála­sögu Íslend­inga og vísar þar í mót­mæli sem stóðu fyrir framan heim­ili hennar í fimm vikur árið 2010. 

Stein­unn Val­dís Ósk­ars­dótt­ir, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri og þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, sagði af sér þing­mennsku árið 2010 eftir að hópur mót­mæl­enda hafði safn­ast sam­an fyrir framan heim­ili hennar á hverju ein­asta kvöldi og kraf­ist þess að hún segði af sér þing­mennsku vegna styrkja fyrir próf­kjörs­bar­átt­u. Fleiri stjórn­mála­menn á borð við Þor­gerði Katrínu Gunn­ars­dóttur og Guð­laug Þór Þórð­ar­son urðu einnig fyrir aðkasti mót­mæl­enda af sömu ástæð­um.

Auglýsing

Stein­unn Val­dís greindi frá og tal­aði um hótun þess efnis að beita hana kyn­ferð­is­legu ofbeldi, vegna starfa hennar í stjórn­málum í Silfr­inu á RÚV um helg­ina. Hún þakk­aði þeim konum sem hafa haft hug­rekki til að stíga fram og segja sína sög­u. 

Fengið morð­hót­anir og talin rétt­dræp

Birgitta JónsdóttirBirgitta segir jafn­framt í færsl­unni að hún vilji halda því að haga að hún hafi alltaf verið því mót­fall­inn að fólk mót­mæli fyrir utan heim­ili fólks. „Ég lét þá sem stóðu fyrir því heyra það á sínum tíma. Það er ekk­ert sem rétt­lætir slíka aðför að frið­helgi fólks alveg sama hvar í flokki það stend­ur. Á Íslandi er aðgengi að stjórn­mála­fólki með því besta sem ger­ist í heim­inum vegna hefða og fámennis,“ segi hún í færsl­unni. Ætla má að ástæðan fyrir skrifum Birgittu sé gömul frétt mbl.is frá árinu 2013 þar sem Stein­unn Val­­dís sagði að Birgitta hefði hvatt fólk til að fara að heim­ili henn­ar vorið 2010 og krefj­ast af­sagn­­ar. 

Birgitta segir enn fremur frá því að hún hafi lent í því að hafa fengið yfir sig morð­hót­anir reglu­lega og verið talin rétt­dræp. Hún segir að ráð­ist hafi verið á hana í mat­vöru­versl­un, að eldri kona hafi klesst hressi­lega á hana vilj­andi með inn­kaupa­kerru og hrópað að henni níð í við­ur­vist sonar henn­ar. Það sé þó ekki sam­bæri­legt því sem Stein­unn Val­dís varð fyr­ir. 

„Ég eins og fleiri skamm­ast mín fyrir að hafa ekki gert meira til að standa með henni á sínum tíma og bið hana afsök­unar á því,“ segir Birgitta. 

Ég vil halda því til haga að ég hef ALLTAF verið því mótfall­inn að fólk mótmæli fyrir utan heim­ili fólks. Ég lét þá sem...

Posted by Birgitta Jóns­dóttir on Monday, Decem­ber 4, 2017


Hvöttu til nauð­gana

Stein­unn Val­dís sagði í Silfr­inu um helg­ina að þjóð­þekktir nafn­greindir menn hefðu hvatt aðra menn til að fara heim til hennar og nauðga henni. „Það eru núna tæp­lega átta ár síðan ég lenti í mínu ofbeldi vil ég segja, og ég hugsa stundum til baka og svona kemst að þeirri nið­ur­stöðu að kannski hafi ég ekki brugð­ist rétt við á sínum tíma vegna þess að það ofbeldi átti nátt­úru­lega ekk­ert að líð­ast.“

„Þeir hvöttu til nauð­gana á mér vegna starfa minna í stjórn­málum og vegna þeirra mála sem ég hafði barist fyrir sér­stak­lega í borg­ar­stjórn og ég hugsa stund­um, hvernig sam­fé­lagið hefði brugð­ist við og hvernig lög­reglan hefði brugð­ist við ef að það hefði komið ákall frá þessum mönnum um að fara heim til Dags B. Egg­erts­sonar og nauðga hon­um,“ sagði Stein­unn Val­dís. Hún telur jafn­framt að öðru­vísi hefði verið brugð­ist við í þeim aðstæð­u­m.  

Hvernig hefði flokk­ur­inn getað sýnt henni meiri stuðn­ing?

Stein­unn Val­dís tal­aði um málið í fyrsta skiptið opin­ber­lega í Silfr­inu. Hún sagð­ist ekki hafa haft kjark til þess hingað til. „Ég finn það bara þegar ég sit hérna og við erum að tala um þetta, ég hef ekk­ert talað um þetta opin­ber­lega, að ég fer næstum því bara að gráta. Þið verðið bara að afsaka. Þetta er bara þannig. Ég vil bara þakka öllum þessum konum sem hófu þessa veg­ferð, því þetta skiptir máli,“ sagði hún. 

Logi EinarssonLogi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, tekur í sama streng og Birgitta og segir í færslu á Face­book að aðförin að Stein­unni Val­dísi sé ljótur blettur á íslenskum stjórn­málum eft­ir­hrunsár­anna.

Hann seg­ist ætla að beita sér fyrir því að Sam­fylk­ingin skoði með hvaða hætti flokk­ur­inn hefði getað sýnt henni meiri stuðn­ing.

„Það má ekki líða ofbeldi af þessum toga og bæði ein­stak­lingar og flokkar þurfa að bregð­ast við slíku af fest­u,“ segir hann í færsl­unn­i. 

Aðförin að Stein­unni Valdísi er ljótur blettur á íslenskum stjórnmálum eft­ir­hruns áranna. Ég mun beita mér fyrir því að...

Posted by Logi Ein­ars­son on Sunday, Decem­ber 3, 2017


„Dugar ekk­ert annað en tveir harð­ir“

Tölu­vert var fjallað um blogg­færslu Egils „Gillzeneggers" Ein­ars­sonar frá árinu 2007 þar sem hann hvatti til kyn­ferð­is­of­beldis á Stein­unni Val­dísi og fleiri kon­um. 

„Stein­unn Val­dís Ósk­ars­dótt­ir, alþing­is­mað­ur. Stein­unn er port­konan sem vildi breyta orð­inu ráð­herra í ráð­frú fyrir kon­ur. Stein­unn þarf lim og það strax. Á hana Stein­unni Val­dísi dugar ekk­ert annað en lág­mark tveir harðir og munu Buka og Yao taka þetta verk­efni að sér. Frétta­stofan ákvað að gefa Ásgeiri Kol­beins­syni frí í þetta skipt­ið, en Frétta­stofan vill ekki hafa það á sam­visk­unni að Ásgeir finn­ist hang­andi í ljósakrónu í vest­ur­bæn­um.“

Mikil reiði í sam­fé­lag­inu á þessum tíma

Sveinn MargeirssonMót­mælin fyrir framan hús Stein­unnar Val­dísar stóðu yfir í fimm vikur og sagði hún í fyrr­nefndu við­tali á mbl.is að for­­stjóri Mat­ís, Sveinn Mar­­geir­s­­son og bræður hans Hlaupa­garp­ar hafi verið fyr­ir fram­an glugg­ana hjá henni í þrjár vik­­ur. „Þar var einnig Björn Þorri Vikt­or­s­­son lög­maður kvöld eft­ir kvöld vel klædd­ur í kraft­galla með marga af sín­um skjól­­stæð­ing­­um. Til við­bót­ar voru marg­ir skjól­­stæð­ing­ar Útvarps Sögu o.fl.,“ sagði hún. Sveinn Mar­geirs­son for­stjóri Matís sagð­ist sjá mikið eftir þátt­töku sinni í mót­mæl­unum á sínum tíma í við­tali við Eyj­una í maí 2014. 

Aðspurður um þátt­töku sína í mót­mæl­unum sagði Sveinn að skilj­an­lega hefði mikil reiði ríkt í sam­fé­lag­inu á þessum tíma. Hann sagði enn­fremur að hann hefði ekki átt aðild að máli í öll þau skipti sem mót­mæli áttu sér stað á heim­ilum stjórn­mála­manna. Hann bætti því við að í hita leiks­ins hefði ekki verið ekki verið hugsað út í að verið væri að gera atlögu að einka­heim­ili fólks. Verst hefði honum þótt sá mis­skiln­ingur að mót­mælin hefðu beinst sér­stak­lega að kon­um.

„Ég hef beðið hana afsök­un­ar. Mér finnst leið­in­legt ef fólk heldur eitt­hvað rang­lega um mig en ég ætla ekki að vera í ein­hverri póli­tík með það,“ sagði Sveinn og bætti við að þetta hefði ekki verið það sem hann er mest stoltur af í líf­in­u. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnBára Huld Beck
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar