Brotalamir í peningaþvættisvörnum allra íslensku bankanna
Hjá öllum fjórum viðskiptabönkunum voru brotalamir í peningaþvættisvörnum þeirra, þótt þær séu mismunandi miklar. Innan þeirri allra skorti á að upplýsingar um raunverulega eigendur félaga eða fjármuna hafi almennt verið metnar með sjálfstæðum hætti. Tveir bankar eru í ríkiseigu en tveir eru skráðir á hlutabréfamarkað.
Fjármálaeftirlitið gerði athugasemdir við mat allra íslensku viðskiptabankanna á upplýsingum um raunverulega eigendur fjármuna eða félaga sem eru, eða hafa verið, í viðskiptum við þá. Í niðurstöðum eftirlitsins á athugun eftirlitsins á peningaþvættisvörnum þeirra eru gerðar athugasemdir við þeir hafi ekki metið upplýsingar um raunverulega eigendur með sjálfstæðum hætti.
Niðurstaða athugunar eftirlitsins á Arion banka var birt í maí en niðurstöður vegna athugunar á hinum þremur bönkunum ekki birt fyrr en seint síðastliðinn föstudag, 20. desember.
Í tilfelli Landsbankans, sem er í ríkiseigu, lauk athugun í október en niðurstaðan þrátt fyrir það ekki birt fyrr en tveimur mánuðum síðar. Athugun á Kviku banka og Íslandsbanka lauk núna í desember.
Athuganir eftir falleinkunn
Alþjóðlegur vinnuhópur um um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, Financial Action Task Force (FATF), skilaði kolsvartri úttekt á frammistöðu Íslands í málaflokknum í apríl í fyrra. Í kjölfarið var gripið til mikils átaks sem í fólst að uppfæra lög, regluverk og framfylgni eftirlits með peningaþvættis hérlendis.
Allt kom fyrir ekki og á endanum reyndust aðgerðirnar ekki nægjanlegar. Ísland var sett á gráan lista fyrir að bregðast ekki nægilega vel við fjölmörgum athugasemdum samtakanna um brotalamir í vörnum gegn peningaþvætti á Íslandi í október síðastliðnum. Auk Íslands bættust Mongólía og Simbabve á listann. Á meðal annarra ríkja sem þar er að finna, og talin eru að séu með alvarlega annmarka á sviði varna gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, eru Kambódía, Jemen, Sýrland og Panama.
Ein af athugasemdunum sem FATF gerði sneri að því að ekki þurfti að greina frá raunverulegum eigendum félaga á Íslandi. Enda felst í því að þekkja ekki viðskiptavininn, að þekkja ekki hvaðan peningarnir hans koma.
Í kjölfar þess að FATF gerði úttekt á Íslandi þá hóf Fjármálaeftirlitið að gera nýjar athuganir á íslenskum fjármálafyrirtækjum og getu þeirra til að verjast peningaþvætti. Nú hafa niðurstöður athugana á öllum stóru viðskiptabönkunum fjórum verið birtar.
Birting tveimur mánuðum eftir niðurstöðu
Fjármálaeftirlitið hóf athugun á peningaþvættisvörnum Landsbankans í janúar 2019. Þeirri athugun lauk í október sama ár en niðurstaðan var ekki birt á vef eftirlitsins fyrr en 20. desember, tveimur mánuðum síðar. Engar skýringar eru gefnar á því af hverju niðurstaðan var ekki birt fyrr í þeirri tilkynningu sem þá var birt.
Í niðurstöðu Fjármálaeftirlitsins eru gerðar nokkrar athugasemdir við peningaþvættisvarnir Landsbankans. Þar segir að skortur hafi verið á skjalfestingu á mati á áreiðanleika upplýsinga og því var ekki sýnt fram á að upplýsingar um raunverulega eigendur hafi almennt verið metnar með sjálfstæðum hætti.
Þá var könnun á áreiðanleika upplýsinga um raunverulega eigendur erlendra lögaðila almennt ábótavant. Skjalfestum verkferlum vegna framkvæmdar áreiðanleikakannana var líka ábótavant en einungis var um að ræða upptalningu á þeim upplýsingum og gögnum sem afla á, en ekki fjallað um þá könnun sem þarf að fara fram á þeim upplýsingum.
Að teknu tilliti til þeirra gagna og upplýsinga sem Fjármálaeftirlitið aflaði við athugun sína á Landsbankanum taldi Fjármálaeftirlitið ekki tilefni til að gera athugasemdir við eftirlitskerfi vegna reglubundins eftirlits með samningssamböndum við viðskiptamenn, alþjóðlegra þvingunaraðgerða og einstaklinga í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla.
Þá þótti ekki, miðað við valið úrtak, tilefni til að gera athugasemd við framkvæmd áreiðanleikakannana hjá einstaklingum.
Margar athugasemdir hjá Kviku
Fjármálaeftirlitið hóf athugun á Kviku banka, fjórða stærsta banka landsins og öðrum af tveimur sem eru skráðir á markað, í maí 2019 og henni lauk í desember sama ár. Samkvæmt niðurstöðu hennar telur Fjármálaeftirlitið að skortur hafi verið á skjalfestingu á mati á áreiðanleika upplýsinga og að innan bankans hafi ekki verið sýnt fram á að upplýsingar um raunverulega eigendur hafi almennt verið metnar með sjálfstæðum hætti. Þá segir í niðurstöðu eftirlitsins að öflun upplýsinga um raunverulega eigendur viðskiptavina sem komu upphaflega í viðskipti við Virðingu hf., sem síðan rann saman við önnur fjármálafyrirtæki til að mynda Kviku, hafi verið ófullnægjandi. „Í tveimur tilvikum sönnuðu viðskiptamenn ekki á sér deili við upphaf samningssambands,“ segir í niðurstöðunni.
Kerfi Kviku vegna reglubundins eftirlits með samningssambandi við viðskiptamenn var ófullnægjandi en þess er getið í niðurstöðu Fjármálaeftirlitsins að bankinn hafði hafið innleiðingu á nýju kerfi þegar athugunin fór fram. Að endingu var það einnig niðurstaða eftirlitsins að skortur væri á að upplýsingar um viðskiptamenn bankans væru uppfærðar reglulega.
Fjármálaeftirlitið taldi hins vegar ekki tilefni til að gera athugasemdir við innri reglur og ferla, eftirlitskerfi vegna alþjóðlegra þvingunaraðgerða og einstaklinga í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla eða úrtak á skýrslum vegna rannsókna á grunsamlegum viðskiptum og tilkynningum til skrifstofu fjármálagreininga lögreglu.
Mat ekki raunverulega eigendur með sjálfstæðum hætti
Vettvangsathugun Fjármálaeftirlitsins á Íslandsbanka, þar sem kannaðar voru peningaþvættisvarnir bankans, hófst í mars 2019. Niðurstaða lá fyrir í desember og niðurstaðan var birt á vef eftirlitsins seint á föstudag.
Í henni kemur fram að eftirlitið taldi tilefni til að gera athugasemdir við að í tveimur tilvikum hafi ekki verið skjalfest mat bankans á áreiðanleika upplýsinga og því var ekki sýnt fram á að upplýsingar um raunverulega eigendur hafi verið metnar með sjálfstæðum hætti. Þá gerði eftirlitið athugasemd við að skortur var á að upplýsingar um viðskiptamenn bankans væru uppfærðar reglulega.
Fjármálaeftirlitið gerði ekki kröfu um úrbætur þar sem Íslandsbanki var þegar búinn að grípa til þeirra eftir að athugunin hófst, en áður en að niðurstaðan lá fyrir.
Fjármálaeftirlitið taldi hins vegar ekki tilefni til að gera athugasemdir við innri reglur og ferla, eftirlitskerfi vegna reglubundins eftirlits með samningssamböndum við viðskiptamenn, alþjóðlegra þvingunaraðgerða og einstaklinga í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla. Þá þótti ekki, miðað við valið úrtak, tilefni til að gera athugasemdir við framkvæmd áreiðanleikakannana hjá einstaklingum eða úrtak á skýrslum vegna rannsókna á grunsamlegum viðskiptum og tilkynningum til skrifstofu fjármálagreininga lögreglu.
Arion var fyrstur
Þangað til á föstudag hafði Fjármálaeftirlitið einungis birt niðurstöðu úr einni athugun á íslenskum viðskiptabanka sem ráðist hafði verið í eftir að FATF hafði gefið Íslandi falleinkunn í apríl 2018. Sú athugun var á Arion banka.
Niðurstaðan var birt 29. maí síðastliðinn, rúmum fjórum mánuðum eftir að niðurstaða athugunarinnar lá fyrir. Það var gert að beiðni Arion banka sem vildi fá að bregðast við úrbótakröfum áður en niðurstaðan yrði gerð opinber. Bankinn segist hafa brugðist við öllum úrbótakröfum.
Í athugun Fjármálaeftirlitsins á Arion banka kom meðal annars fram að bankinn hefði hefði ekki metið með sjálfstæðum hætti hvort upplýsingar um raunverulega eigendur viðskiptavina væru réttar og fullnægjandi og að þær upplýsingar hafi ekki verið uppfærðar með reglulegum hætti, líkt og lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka gerðu ráð fyrir. Eftirlitið gerði einnig athugasemd um að Arion banki hefði ekki sinnt rannsóknarskyldu sinni í tilviki erlends viðskiptavinar, það taldi að reglubundið eftirlit bankans með viðskiptavinum hafi ekki fullnægt kröfum laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka né að verklag í tengslum við uppfærslu á upplýsingum um viðskiptavini hafi ekki verið fullnægt. Þá taldi Fjármálaeftirlitið að skýrslur Arion banka um grunsamlegar og óvenjulegar færslur hefðu ekki verið fullnægjandi.
Lestu meira:
-
19. desember 2021Forgangsverkefni lögreglu að berjast gegn umfangsmiklu peningaþvætti
-
24. apríl 2021Ásgeir: Fjárfestingaleiðin hefði aldrei gerst á minni vakt
-
2. apríl 2021Það er hægt að ákæra þá sem sviku undan skatti fyrir áratugum fyrir peningaþvætti
-
2. febrúar 2021Fjármálaeftirlitið birtir lista yfir opinber störf sem teljast háttsett
-
31. janúar 2021Ábendingum vegna peningaþvættis hefur fjölgað um 70 prósent á tveimur árum
-
25. september 2020Glæpirnir sem gera aðra glæpi mögulega
-
21. september 2020FinCEN-skjölin: Aumar peningaþvættisvarnir afhjúpaðar
-
12. ágúst 2020Hjaltalín getur ekki fengið millifærslur frá bresku fyrirtæki vegna gráa listans
-
8. maí 2020Landsréttur staðfestir peningaþvættisdóm yfir fyrrverandi borgarfulltrúa
-
26. mars 2020Fossar markaðir mátu ekki upplýsingar um raunverulega eigendur með sjálfstæðum hætti