Mynd: Bára Huld Beck

Íslenska ríkið tekur 146,5 krónur af hverjum seldum lítra af bensíni sem hefur aldrei kostað fleiri krónur

Bensínverð er sums staðar komið yfir 300 krónur á lítra. Viðmiðunarverð á þessu mest notaða eldsneyti íslenskra heimila hefur hækkað um meira en helming frá því í maí 2020, og hefur aldrei verið hærra. Hækkunin mun bíta veski margra heimila landsins tvisvar, fyrst beint og síðan óbeint vegna hærri verðbólgu.

Við­mið­un­ar­verð á bens­ín­verði hér­lend­is, sam­kvæmt nýj­ustu bens­ín­vakt Kjarn­ans, var 294,8 krónur á lítra. Af þeirri tölu tekur íslenska ríkið 146,5 krón­ur, eða tæp­lega 50 pró­sent, til sín í formi virð­is­auka­skatts, almenns bens­ín­gjalds, sér­stakt bens­ín­gjalds og kolefn­is­gjalds. Hlutur rík­is­ins hefur aldrei verið hærri í krónum tali. Frá því í maí 2020 hafa tekjur rík­is­ins vegna sölu á elds­neyti auk­ist um 17,5 pró­sent vegna verð­hækk­ana á elds­neyt­i. Hækk­unin er að mestu til­komin vegna þess að virð­is­auka­skattur sem leggst á seldan bens­ín­lítra skilar meiru í rík­is­kass­ann eftir því sem útsölu­verð hækk­ar. Hin gjöldin eru öll föst krónu­tala sem var reyndar hækkuð lít­il­lega í byrjun árs.

Við­mið­un­ar­verðið náði því að vera hæsta krónu­tala frá upp­hafi í febr­úar síð­ast­liðn­um. Síðan þá hefur það hækkað um 8,8 pró­sent. Frá því í maí 2020 hefur bens­ín­verð hér­lendis hækkað um 52 pró­sent. Vert er að taka fram að ef tekið er til­lit til verð­bólgu þá var elds­neyt­is­verð hærra árið 2012 en það er nú. Upp­reiknað miðað við þróun vísi­tölu neyslu­verðs þá kost­aði bens­ín­lítr­inn í apríl 2012 tæp­lega 353 krón­ur.

Mik­il­vægt er að hafa í huga að við­mið­un­ar­verðið miðar við næst­lægstu verð­­­­­tölu í yfir­­­­­lit­i síð­­­­unnar Bens­ín­verð.is, sem hug­bún­að­ar­fyr­ir­tækið Seiður heldur úti, til að forð­­­­­ast að ein­hverju leyti áhrif tíma­bund­innar verð­­­­­sam­keppni á allra lægsta verð. Við­mið­un­­­­­ar­verðið er þó ætið með lægstu verð­­­­um. Hæstu verð á bens­íni í dag er nú 303,9 krónur á bens­ín­lítra, á ýmsum bens­ín­stöðvum N1, en lægsta verðið er 260,9 krónur á lítra, á bens­ín­stöð Costco. Því munar sem stendur 16,5 pró­sent á hæsta og lægsta verð­i. 

Verðið getur hækkað meira

Ástæð­una fyrir hækk­unum síð­ustu vikur er að finna í gríð­ar­legum hækk­unum á heims­mark­aðs­verði á jarð­efna­elds­neyti vegna inn­rásar Rússa í Úkra­ínu. Lík­legt inn­kaupa­verð íslenskra elds­neyt­is­sala hefur hækkað um 24,3 pró­sent á innan við mán­uði og um 58,4 pró­sent frá því um miðjan des­em­ber. Ljóst má vera að hækk­anir á heims­mark­aði hafa verið meiri en hækk­anir á inn­kaupa­verði íslensku elds­neyt­is­sal­anna og því má búast við því að verðið geti hækkað enn meira þegar næstu pant­anir af bens­íni ber­ast til lands­ins. 

Kjarn­inn greindi frá því í lok febr­úar að spá fjár­fest­inga­bank­ans J.P. Morgan um elds­neyt­is­hækk­anir vegna inn­rásar Rússa í Úkra­ínu gerði ráð fyrir að verð á bens­íni gæti farið upp í 327 krónur á lítra á næstu mán­uð­um, ef gengi krónu gagn­vart Banda­ríkja­dal héld­ist óbreytt. Það hefur veikst um yfir sex pró­sent frá því að inn­rásin hófst sem þýðir að bens­ínið verður enn dýr­ara en ella. 

Hefur mikil áhrif á heim­il­is­bók­haldið

Ísland fram­­­­leiðir vit­an­­­­lega ekk­ert jarð­efna­elds­­­­neyti heldur flytur það allt inn. Bíl­­ar sem nota jarð­efna­elds­­­­neyti er enn í miklum meiri­hluta hér­­­lend­­is. Sam­­­­kvæmt tölum Hag­­­­stofu Íslands voru bensín og dísil­bíl­arnir um 320 þús­und í lok árs 2020. 

Því hafa skarpar hækk­anir á elds­neyt­is­verði mikil áhrif á rekstr­ar­kostnað heim­ila. Ef horft er til þeirrar hækk­unar sem orðið hefur á við­mið­un­ar­verði frá því í maí 2020 þarf sá sem eyddi að jafn­aði 15 þús­und krónum á mán­uði í bensín þá þarf nú að borga 22.800 krónur fyrir sama magn af bens­íni. Á árs­grund­velli er það auk­inn kostn­aður um 93.600 krón­ur. Sú tala hefur hækkað um meira en 22 þús­und krónur síð­ast­lið­inn mán­uð. 

Til við­bótar er elds­neyt­is­verð einn helsti inn­flutti orsaka­valdur verð­bólgu hér­lend­is. Þegar heims­mark­aðs­verð hækk­ar, eða krónan veikist, þá leiðir það til hærri verð­bólgu vegna inn­flutn­ings á elds­neyti, sem verður fyrir vikið dýr­ari. Verð­bólgan er sem stendur 6,2 pró­sent og hefur ekki verið hærri í næstum tíu ár. Hinar miklu hækk­anir á elds­neyt­is­verði síð­ustu daga og vikur munu auka verð­bólgu­þrýst­ing umtals­vert.

Í Frétta­blað­inu í dag var greint frá því að Alþýðu­sam­band Íslands, Félag íslenskra bif­reið­ar­eig­enda, Neyt­enda­sam­tökin og fleiri félög hefðu kraf­ist þess að rík­is­stjórnin lækki skatta á bensín tíma­bundið vegna hækk­ana eða beiti sér með öðrum hætti til að létta byrðar almenn­ings.

Olíu­fé­lögin taka minna til sín

Í útreikn­ingum Bens­ín­vakt­ar­innar er hlutur olíu­­­­­­­fé­lags­ reikn­aður sem afgangs­­­­stærð þegar búið er að draga frá hlut­­­­deild rík­­­­is­ins í hverjum seldum bens­ín­lítra og lík­­­­­­­leg­t inn­kaupa­verð á honum frá reikn­uðu við­mið­un­­­­ar­verði, enda hald­­­­góðar upp­­­­lýs­ingar um ein­staka kostn­að­­­­ar­liði olíu­­­­­­­fé­lag­anna ekki opin­ber­­­­ar. 

Sam­kvæmt þeim útreikn­ingum má vera ljóst að olíu­fé­lögin eru ekki að velta öllum verð­hækk­unum á heims­mark­aði út í verðið sem neyt­endur þurfa að borga við dæl­urn­ar. Hlutur olíu­fé­lags í hverjum seldum lítra er í dag 38,8 krónur á lítra og lækkar um tíu pró­sent milli mán­aða. Hann hefur ekki verið minni síðan í sept­em­ber í fyrra en hann fór í 58,8 krónur á lítra í des­em­ber síð­ast­liðn­um. Síðan þá hefur sá hlutur í seldum bens­ín­lítra sem rennur til olíu­fé­laga í krónum talið dreg­ist saman um 30 pró­sent. 

Frétta­skýr­ingin hefur verið upp­færð þar sem reikni­vélin sem hún byggir á inni­hélt ekki hækk­anir á föstum krónu­tölu­gjöldum sem leggj­ast á elds­neyti og tóku gildi í byrjun árs. Þær hækk­anir juku hlut rík­is­ins í hverjum seldum olíu­lítra um 2,2 krón­ur. Það hefur nú verið lagað og allar upp­lýs­ingar nú rétt­ar.

Gögn og aðferða­fræði

Hér að ofan er birt nið­ur­staða útreikn­inga og áætl­unar á því hvernig verð á lítra af bens­íni skipt­ist milli aðila í fram­setn­ingu GRID.

  • Við­mið­un­ar­verð er fengið frá hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­inu Seið ehf. sem meðal ann­ars heldur úti síð­unni Bens­ín­verð.is og fylgst hefur með bens­ín­verði á flestum bens­ín­stöðum lands­ins dag­lega síðan 2007. Miðað er við næst­lægstu verð­tölu í yfir­lit­inu til að forð­ast að ein­hverju leyti áhrif tíma­bund­innar verð­sam­keppni á allra lægsta verð. Við­mið­un­ar­verðið er þó með lægstu verðum og sýnir þar með lægri hlut olíu­fé­lags­ins en reikna má með að raunin sé með­al­talið af öllu seldu bens­íni á land­inu.
  • Hlutur rík­is­ins liggur ljós fyrir út frá sköttum sem eru ýmist fastir og hlut­falls­leg­ir. Upp­lýs­ingar um breyt­ingar á skatta­lögum eru fengnar frá Við­skipta­ráði sem fylgst hefur með slíkum breyt­ingum um ára­bil.
  • Lík­legt inn­kaupa­verð er reiknað útfrá verði á bens­íni til afhend­ingar í New York-höfn í upp­hafi mán­aðar frá banda­rísku orku­stofn­un­inni EIA og mið­gengi doll­ars gagn­vart íslenskri krónu í yfir­stand­andi mán­uði frá Seðla­banka Íslands. Í þessum útreikn­ingum kann að skeika nokkru á hverjum tíma­punkti vegna lag­er­stöðu, skamm­tíma­sveiflna á mark­aði o.s.frv. Nákvæmara væri að miða við verð á bens­íni til afhend­ingar í Rott­er­dam, en verð­upp­lýs­ingar þaðan liggja ekki fyrir á opnum gagna­veit­um. Mis­munur á verði í New York og Rott­er­dam er þó yfir­leitt mjög lít­ill.
  • Hlutur olíu­fé­lags er loks reikn­aður sem afgangs­stærð enda hald­góðar upp­lýs­ingar um ein­staka kostn­að­ar­liði olíu­fé­lag­anna ekki opin­ber­ar. Hafa ber í huga að þar sem við­mið­un­ar­verð er með lægstu verðum á hverjum tíma er þessi liður ef til vill ein­hverju hærri sé litið til heild­ar­við­skipta með bensín á Íslandi.

Verð­upp­lýs­ingar mið­ast við verð­lag hvers tíma. Gögnin eru upp­færð mán­að­ar­lega í kringum 15. hvers mán­að­ar. Fyr­ir­vari er gerður um skekkju­mörk sem þó ættu í mesta lagi að nema fáeinum krónum á útreikn­aða liði. Ábend­ingar um vill­ur, lag­fær­ingar og betrumbætur skal senda á gogn@kjarn­inn.is og er tekið fagn­andi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar