53% íbúa Kjalarness eru innflytjendur

Hlutfall innflytjenda af íbúafjölda er langhæst á Kjalarnesi af öllu höfuðborgarsvæðinu, eða 53%. Í Mýrdalshreppi er hæsta hlutfall innflytjenda af öllum sveitarfélögunum, en það er 28%.

Hlutfall innflytjenda í Mýrdalshreppi er hæst allra sveitarfélaga.
Hlutfall innflytjenda í Mýrdalshreppi er hæst allra sveitarfélaga.
Auglýsing

54% íbúa á Kjal­ar­nesi eru inn­flytj­endur og er það hlut­fall lang­hæst allra byggð­ar­kjarna á land­inu. Ef litið er á sveit­ar­fé­lög er hlut­fall inn­flytj­enda mest í Mýr­dals­hreppi, en 28% íbúa þar eru inn­flytj­end­ur. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hag­stofu um dreif­ingu inn­flytj­enda eftir póst­núm­er­um. 

Inn­flytj­andi er ein­stak­lingur sem er fæddur erlendis og á for­eldra sem einnig eru fæddir erlend­is, svo og báðir afar hans og báðar ömm­ur. Athygli vekur að dreif­ing þeirra er mjög breyti­leg eftir sveit­ar­fé­lög­um. Í Skorra­dals­hreppi eru engir skráðir inn­flytj­endur á meðan þeir eru 17.497 í Reykja­vík. Hlut­fall inn­flytj­enda er hins vegar hæst í Mýr­dals­hreppi. Þar eru þeir 157 af 561 íbúa, eða 28%.Hlutfall innflytjenda eftir sveitarfélögum 2017. Tölur: Hagstofa

Mynd hér að ofan sýnir tíu sveit­ar­fé­lög með hæsta hlut­fall inn­flytj­enda af íbúa­fjölda auk Reykja­vík­ur, en dreif­ingin hefur breyst tölu­vert frá því í fyrra. Inn­flytj­endum fjölg­aði mest í Reykja­vík, eða um 1.526 manns. Í Reykja­nesbæ fjölg­aði inn­flytj­endum næst mest, eða um rúman þriðj­ung og eru nú orðnir 3.159. Ekk­ert sveit­ar­fé­lag mátti þola umtals­verða lækkun á þessu hlut­falli, en mest var hún í Tálkna­fjarð­ar­hreppi þar sem inn­flytj­endum fækk­aði um 19 manns.

Auglýsing

Lang­hæsta hlut­fallið á Kjal­ar­nesi

Innan Reykja­víkur er einnig mik­ill munur milli hverfa, en lang­hæsta hlut­fall inn­flytj­enda er á Kjal­ar­nesi. Þar eru þeir 245 af 463, eða 53% íbúa. Ekki er ljóst hvað útskýrir mis­ræm­ið, en hæl­is­leit­endur sem gista á Arn­ar­holti á vegum Útlend­inga­stofn­unnar eru ekki teknir með í útreikn­ingum þar sem þeir hafa ekki lög­heim­ili hér á land­i. 

Efra-Breið­holt hefur þó að geyma stærsta fjölda inn­flytj­enda í Reykja­vík, en þar eru þeir 2.628 tals­ins og 29% íbúa hverf­is­ins. Lægsta hlut­fall inn­flytj­enda er þó í Staða­hverfi og Vest­ur­-Graf­ar­holti, þar sem þeir eru 3% hverf­is­bú­anna. Sömu sögu er að segja um hverfi Reykja­víkur og hin sveit­ar­fé­lög­in, ekk­ert þeirra mátti þola neina mark­tæka fækkun inn­flytj­enda. Mest var fækk­unin í Aust­ur­bæ, en þar fækk­aði þeim um 4. 10 hverfin í Reykjavík með hæsta hlutfall innflytjenda 2017. Tölur:Hagstofa

Eins og kom fram í frétt Kjarn­ans í gær hafa aldrei verið fleiri inn­flytj­endur á Íslandi, en þeir eru orðnir 10,6% af mann­fjöld­an­um. Búist er við því að hlut­fall þeirra muni halda áfram að vaxa og að þeir verði fjórð­ungur þjóð­ar­innar eftir hálfa öld.  



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar