OECD spáir allt að ellefu prósenta samdrætti á Íslandi

Ný skýrsla OECD um horfur í efnahagsmálum kom út í vikunni. Búist er við mestum samdrætti í Bretlandi, Frakklandi, á Ítalíu og Spáni, þar á eftir kemur Ísland.

OECD spáir því að atvinnuleysi á Íslandi verði 9 prósent undir lok ársins.
OECD spáir því að atvinnuleysi á Íslandi verði 9 prósent undir lok ársins.
Auglýsing

Í nýrri skýrslu OECD um horfur í efna­hags­málum er gert ráð fyrir að efna­hags­sam­dráttur í heim­inum verði sá mesti, utan stríðs­tíma, í 100 ár. Í skýrsl­unni eru settar fram tvær sviðs­myndir sem eru taldar vera jafn lík­leg­ar. Önnur gerir ráð fyrir að áfram dragi úr útbreiðslu COVID-19, hin sýnir áhrif mögu­legrar seinni bylgju. 



Ef til ann­arrar bylgju kemur mun það hafa í för með sér að aftur þarf að grípa til sam­komu­tak­mark­ana og útgöngu­banna. Í spánni er gert ráð fyrir að efna­hags­legur sam­dráttur á heims­vísu muni þá nema alls 7,6 pró­sentum á árinu. Í þess­ari sviðs­mynd er ekki gert ráð fyrir kröft­ugri við­spyrnu á árinu 2021, en reiknað er með vexti upp á 2,8 pró­sent. Atvinnu­leysi innan OECD ríkj­anna er talið verða 10 pró­sent í ár innan þess­arar sviðs­myndar og að lítið muni draga úr því fyrir lok árs.



Komi ekki til þess að seinni bylgja gangi yfir er gert ráð fyrir að efna­hags­legur sam­dráttur á heims­vísu muni nema 6 pró­sentum í ár og að atvinnu­leysi innan OECD muni nema 9,2 pró­sent­u­m. 

Auglýsing


Án ann­arrar bylgju er því spáð að mestur sam­dráttur verði í Bret­landi, alls 11,5 pró­sent. Þar á eftir koma Frakk­land, Ítalía og Spánn en reiknað er með að sam­drátt­ur­inn í lönd­unum verði rúm­lega 11 pró­sent. Ísland kemur þar næst á eftir og sam­drátt­ur­inn er tal­inn verða 9,9 pró­sent. 



Ef til þess kemur að löndin þurfa að takast á við aðra bylgju af far­aldri kór­ónu­veiru riðl­ast röðun fjög­urra efstu landana eilít­ið. Þá er reiknað með að sam­drátt­ur­inn verði mestur á Spáni, alls 14,4 pró­sent.

Gera ráð fyrir níu pró­senta atvinnu­leysi

Í spá OECD hefur mögu­leg seinni bylgja til­tölu­lega lítil við­bót­ar­á­hrif á íslenskan efna­hag sam­an­borið við önnur lönd. Reiknað er með 11,2 pró­senta sam­drætti gangi önnur bylgja COVID-19 yfir, sem setur Ísland í átt­unda sæti innan OECD yfir mestan sam­drátt. 



Í báðum sviðs­myndum er gert ráð fyrir að atvinnu­leysi nái hámarki í níu pró­sentum hér á landi í ár og hald­ist þar út árið en fari svo minnk­andi. Almennt atvinnu­leysi mælist nú 7,4 pró­sent en sé hluta­bóta­leiðin tekin með í reikn­ing­inn mælist atvinnu­leysi þrettán pró­sent. 



Spá OECD á milli spár Seðla­bank­ans og spár Við­skipta­ráðs

Seðla­bank­inn hefur gert ráð fyrir að efna­hags­sam­drátt­ur­inn verði meiri heldur en gert var ráð fyrir í svört­ustu sviðs­mynd Seðla­bank­ans. Sú sviðs­mynd gerði ráð fyrir að sam­drátt­ur­inn gæti orðið 4,8 pró­sent. Tekið skal fram að sviðs­myndir Seðla­bank­ans voru kynntar í mars síð­ast­liðn­um.





Spá OECD gerir þó ekki ráð fyrir jafn miklum sam­drætti og spáð var fyrir um í haglík­ani Við­skipta­ráðs Íslands sem birt­ist í lok apr­íl. Þar var gert ráð fyrir að sam­dráttur í lands­fram­leiðslu árið 2020 verði 12,8 pró­sent.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent