Svartasti dagurinn í Kauphöllinni frá bankahruni
Icelandair lækkaði um tæp 22 prósent og markaðsvirði þess er nú einn þriðji af eigin fé félagsins um síðustu áramót. Úrvalsvísitalan lækkaði meira en hún hefur gert frá því í hruninu. Krónan hefur veikst um sjö prósent innan árs. Þetta er staðan í íslensku efnahagslífi í dag.
Úrvalsvísitala íslensku Kauphallarinnar, sem er saman sett úr gengi þeirra tíu félaga á markaði sem hafa mestan seljanleika, hefur lækkað um tæpan 22,5 prósent frá 21. febrúar. Þann föstudag var gengi hennar 2.170,5 stig en við lok viðskipta í dag var hún rétt rúmlega 1.682,6 stig. Hún lækkaði um 8,44 prósent í dag, sem gerir það að verkum að hann var sá svartasti í íslensku Kauphöllinni frá því að íslenskur hlutabréfamarkaður var endurreistur eftir bankahrun.
Heildarmarkaðsvirði þeirra 20 félaga sem skráð eru á aðallista Kauphallarinnar hefur lækkað um rúmlega 281 milljarð króna frá 21. febrúar.
Icelandair leiðir hrunið
Alls féllu 18 af félögunum 20 sem skráð eru á aðallistann í verði í dag. Mest lækkaði Icelandair, eða um 22,8 prósent. Markaðsvirði þess félags við lok viðskipta var rétt um 21 milljarður króna. Það hefur ekki verið lægra frá því í janúar 2011. Markaðsvirði Icelandair fór niður fyrir 30 milljarða króna í fyrsta skipti í átta ár í byrjun viku og hefur haldið áfram að falla hratt.
Þegar markaðsvirði var hæst, í apríl 2016, var það 191,5 milljarðar króna. Síðan þá hefur hlutafé í Icelandair verið aukið um rúmlega fimm milljarða króna en markaðsvirðið samt komið niður í ofangreinda tölu.
Samkvæmt tilkynningu sem Icelandair sendi frá sér í morgun nam lausafjársstaða félagsins nam rúmum 39 milljörðum króna í árslok 2019 og er á sama stað í dag. Eigið fé Icelandair var um 60 milljarðar króna um síðustu áramót. Markaðsvirðið er því um einn þriðji af eigin fé félagsins og rétt rúmur helmingur af lausu fé þess.
Trump setur allt á annan endann
Ástæðan fyrir hinu mikla hruni í dag er vitanlega tímabundið ferðabann bandarískra stjórnvalda til og frá Evrópu, sem Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, setti á í nótt. Ferðabannið, sem á að standa yfir í 30 daga frá og með komandi föstudegi, mun virka þannig að öllum íbúum landa sem tilheyra Schengen-svæðinu, þar á meðal Ísland og þorri Evrópu, verður meinað að koma til Bandaríkjanna á tímabilinu. Bandarískir ríkisborgarar og aðrir sem eru með fasta búsetu í Bandaríkjunum munu fá að ferðast ef þeir vilja en samkvæmt fréttatilkynningu sem birt var í nótt á vef heimavarnarráðuneytisins mun þeim bandarísku farþegum sem dvalið hafa á Schengen-svæðinu hleypt inn í landið í gegnum valda flugvelli þar sem sérstakar ráðstafanir verða gerðar til að skima fyrir smiti.
Allar líkur eru því til þess að flug milli Bandaríkjanna og landa sem tilheyra Evrópska efnahagssvæðinu muni að mestu liggja niðri á meðan að bannið stendur yfir, enda ólíklegt að flugfélög muni fljúga mikið þegar þorri Evrópu má ekki koma til Bandaríkjanna, og Bandaríkjamenn hafa verið hvattir til að fara helst ekki til Evrópu. Það mun hafa gríðarleg áhrif rekstur Icelandair.
Krónan veikst mikið síðastliðinn mánuð
Á meðal annarra félaga sem fóru illa út úr deginum var Iceland Seafood, sem skráð var á markað í fyrra, en gengi bréfa í því féllum um 14,7 prósent í dag. Smásölurisinn Festi og tryggingafélagið VÍS féllu líka um tveggja stafa prósentutölur í viðskiptum dagsins.
Verðmætasta félagið á markaði, Marel, fór með himinskautunum í fyrra og virði þess hækkaði um 66 prósent á árinu 2019. Markaðsvirði félagsins í lok árs var 473,4 milljarðar króna. Það hélt áfram að hækka framan af árinu 2020 og virði þess skreið yfir 500 milljarða króna um tíma í janúar. Nú er það um 377,8 milljarðar króna, eftir að bréf í félaginu lækkuðu um rúm sjö prósent í dag, og því hafa rúmlega 120 milljarðar króna af markaðsvirði Marel horfið á tæpum tveimur mánuðum.
Næst stærsta félagið á markaði er Arion banki. Hann var skráður á markað í júní 2018 og í lok fyrsta viðskiptadags var gengi hlutabréfa hans 88,8 krónur á hlut. Það er nú 65,2 krónur á hlut eða tæplega 27 prósent lægra. Markaðsvirði bankans er nú 118,3 milljarðar króna, eða umtalsvert lægra en eigið fé bankans sem var 190 milljarðar króna um síðustu áramót.
Íslenska krónan er líka í frjálsu falli. Hún hefur veikst um 5,4 prósent gagnvart evru síðastliðinn mánuð og alls um sjö prósent frá áramótum.
Lestu meira:
-
6. janúar 2023Mögulega mest smitandi afbrigðið hingað til
-
3. janúar 2023Segja skimun kínverskra ferðamanna ekki byggða „á neinum vísindalegum rökum“
-
15. desember 2022Segir aðstoðarmann Ásmundar Einars hafa „staðfest“ að ÍBV ætti að fá 100 milljóna styrk
-
5. nóvember 2022Bóluefnakapphlaupið kostaði 1,3 milljónir manna lífið
-
19. júlí 2022Takmarkanir myndu þjóna takmörkuðum tilgangi
-
12. júlí 2022Skjátími barna rauk upp í faraldrinum
-
2. júlí 2022Alls fóru 0,0002% af fjármagni í COVID-viðbragðsáætlunum í að uppræta kynbundið ofbeldi
-
29. júní 2022Staðfest: Köttur smitaði manneskju af COVID-19
-
3. júní 2022Ferðaskrifstofur fá áratug til þess að greiða lánin frá Ferðaábyrgðarsjóði til baka
-
12. maí 2022„Þarf að huga betur að mér sjálfum og minni fjölskyldu“