Þegar „háttvirtur ráðherra“ fékk sér grímulaus í glas – og löggan kjaftaði frá
Ráðherra og konan hans ganga inn á listasafn á Þorláksmessu, kasta kveðju á vinafólk sitt og þiggja léttvín. Undir venjulegum kringumstæðum myndi enginn hafa neitt við þetta að athuga en þarna eru kringumstæður ekki venjulegar. Lögreglan mætir á svæðið og í framhaldinu upphefst óvenjuleg atburðarás sem enn dregur dilk á eftir sér. Kjarninn fer yfir málið.
Árið 2020 mun seint hverfa landsmönnum úr minni fyrir þær augljósu sakir að um heim allan geisaði faraldur. Í lok árs giltu strangar sóttvarnareglur og hvöttu sóttvarnayfirvöld fólk til að halda svokölluð „jólakúlujól“ – þar sem 10 manns máttu koma saman.
„Rík hefð er fyrir því að fólk komi saman og njóti samverunnar og alls þess sem hátíðarnar hafa upp á að bjóða. Fyrir marga verður þessi tími frábrugðinn því sem við erum vön líkt og með annað á þessu ári. Samt sem áður höfum við ýmsa möguleika á því að gleðjast saman, þó ekki fleiri en 10 saman, því samkvæmt þeim reglum sem við fylgjum til 12. janúar þá mega ekki fleiri vera í hverri jólakúlu. Því er ljóst að þessi jól verði mögulega lágstemmdari og með breyttu sniði fyrir marga.“
Svona hljómaði hvatningin á covid.is fyrir jólin 2020. Sama fyrirkomulag hafði verið um páskana og hafði það gengið vel. Vonir stóðu til að það sama yrði upp á teningnum um jólin. Klukkan 6:08 að morgni aðfangadags sendi lögreglan frá sér upplýsingapóst úr dagbók lögreglu eins og vaninn er á hverjum morgni þar sem farið var yfir helstu verkefni hennar á Þorláksmessukvöld og aðfaranótt aðfangadags.
Þriðja atriðið í póstinum vakti þó strax athygli – og átti eftir að hafa víðtækar afleiðingar. Þar var greint frá því að klukkan 22:25 á Þorláksmessu hefði lögreglan verið kölluð til vegna samkvæmis í sal í útleigu í miðbæ Reykjavíkur.
„Veitingarekstur er í salnum í flokki II og ætti því að vera lokaður á þessum tíma. Í ljós kom að á milli 40 til 50 gestir voru samankomin í salnum, þar á meðal einn háttvirtur ráðherra í ríkisstjórn Íslands. Töluverð ölvun var í samkvæminu og voru flestir gestanna með áfengi við hönd. Lögreglumenn veittu athygli að enginn gestanna var með andlitsgrímur fyrir andliti. Lögreglumenn sögðu að nánast hvergi voru fjarlægðartakmörk virt. Lögreglumenn sáu aðeins 3 sprittbrúsa í salnum. Lögreglumenn ræddu við ábyrgðarmenn skemmtunarinnar og þeim kynnt að skýrsla yrði rituð. Þá var gestum vísað út. Þegar að gestir gengu út voru flestir búnir að setja upp andlitsgrímu. Gestirnir kvöddust margir með faðmlögum og einhverjir með kossum. Einn gestanna var ósáttur með afskipti lögreglu og líkti okkur við nasista,“ sagði í pósti lögreglunnar.
Miklar vangaveltur um hver hinn „háttvirti ráðherra“ væri
Fjölmiðlar fóru strax í það að reyna að komast að því um hvaða „háttvirta ráðherra“ væri að ræða og miklar vangaveltur voru á sveimi á samfélagsmiðlum. Um tíuleytið fóru að birtast fréttir um að ráðherrann í samkvæminu hefði verið Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármála- og efnahagsráðherra.
Skömmu síðar birti Bjarni stöðuuppfærslu á Facebook þar sem hann gekkst við því að hafa verið á meðal gesta í samkvæminu. „Á heimleið úr miðborginni í gærkvöldi fengum við Þóra símtal frá vinahjónum, sem voru stödd á listasafninu í Ásmundarsal og vildu gjarnan að við litum inn til þeirra og köstuðum á þau jólakveðju. Þegar við komum inn og upp í salinn í gærkvöldi hefði mér átt að verða ljóst að þar voru fleiri en reglur gera ráð fyrir.
Eins og lesa má í fréttum kom lögreglan og leysti samkomuna upp. Og réttilega. Þarna hafði of margt fólk safnast saman.
Ég hafði verið í húsinu í um fimmtán mínútur og á þeim tíma fjölgaði gestunum. Rétt viðbrögð hefðu verið að yfirgefa listasafnið strax þegar ég áttaði mig á að fjöldinn rúmaðist ekki innan takmarkana. Það gerði ég ekki og ég biðst innilega afsökunar á þeim mistökum,“ skrifaði Bjarni á Facebook.
„Við misstum yfirsýn og biðjumst afsökunar“
Í stöðuuppfærslu á Facebook sem birt var skömmu fyrir hádegi á aðfangadag, á síðu Ásmundarsalar, kom fram að eigendur og rekstraraðilar Ásmundarsalar vildu taka það fram vegna frétta að salurinn væri listasafn og verslun með leyfi til að hafa opið til klukkan 23 á Þorláksmessu.
„Einnig er salurinn með veitingaleyfi. Ekki var um einkasamkvæmi að ræða í gær heldur var sölusýningin „Gleðileg jól” opin fyrir gesti og gangandi.
Þegar klukkan var farin að ganga 22:30 dreif að fólk sem var að koma úr miðbænum og við gerðum mistök með að hafa ekki stjórn á fjöldanum sem kom inn. Flestir gestanna voru okkur kunnugir, fastakúnnar, listunnendur og vinir sem hafa undanfarin ár gert það að hefð að leggja leið sína til okkar á Þorláksmessu. Við misstum yfirsýn og biðjumst afsökunar á því,“ stóð í stöðuuppfærslu Ásmundarsalar.
Margir kröfðust þess að Bjarni segði af sér
Mikil reiði greip um sig víða, enda höfðu verið við lýði stífar takmarkanir vegna þriðju bylgju kórónuveirunnar, eins og áður segir. Að einn þeirra ráðherra, sem setti reglur um takmarkanir, hefði ekki farið eftir þeim sjálfur fór illa í marga.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði strax á aðfangadag að það væri mjög slæmt þegar forystumenn þjóðarinnar færu ekki eftir þessum reglum. „Ef það er rétt sem þar kemur fram þá er þetta klárlega brot á sóttvarnarreglum og mér finnst það miður að þetta hafi gerst.“
Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar sagði að Bjarni hlyti „að íhuga það alvarlega að segja af sér. Ef hann er ekki að gera það þá hljóta samstarfsflokkarnir tveir að pressa á hann vegna þess að ég trúi varla að hann hafi stuðning allra annarra ráðherra eða meirihluta Alþingis.“ Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata sagði hegðun Bjarna óforsvaranlega og að uppákoman væri „afsagnarsök“.
Á jóladag steig Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fram og tjáði sig um málið. Hún sagði við Vísi að hún hefði rætt við Bjarna daginn áður og tjáð honum óánægju sína með málið. „Svona atvik skaðar traustið á milli flokkanna og gerir samstarfið erfiðara. Sérstaklega vegna þessa að við stöndum í stórræðum þessa dagana, hins vegar er samstaðan innan stjórnarinnar verið góð og ég tel okkur hafa náð miklum árangri í því sem við erum að vinna að. Við munum halda því ótrauð áfram.“ Hún gerði þó ekki kröfu um að Bjarni myndi segja af sér vegna málsins.
Orðalag „á skjön við vinnureglur“
Á annan í jólum, 26. desember, barst tilkynning fá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu þar sem sagði að það hefði verið á skjön við vinnureglur hennar að láta upplýsingar um að „háttvirtur ráðherra“ hefði verið í samkvæminu á Þorláksmessu. Á þeim tíma sem tilkynningin barst hafði ekki birst nein frétt í fjölmiðlum landsins þar sem umrætt verklag hafði verið til umfjöllunar.
Persónuvernd taldi ekki ástæðu til að aðhafast vegna dagbókarfærslunnar þar sem opinberar persónur nytu almennt minni friðhelgi en aðrar.
Þann 28. desember 2020 sendu eigendur Ásmundarsalar, þau Aðalheiður Magnúsdóttir og Sigurbjörn Þorkelsson, yfirlýsingu þar sem þau sögðu að fjöldatakmarkanir hefðu ekki verið brotnar í samkvæminu á Þorláksmessu. Þar sagði að sýningarsalurinn, sem er á efri hæð Ásmundasalar, væri verslunarrými og félli því undir þær sóttvarnarreglur sem um þau giltu á þessum tíma. Ekki hefði verið um einkasamkvæmi að ræða heldur opna sýningu.
„Á neðri hæð Ásmundarsalar er kaffihús með vínveitingaleyfi þar sem 15 manns mega koma saman og viðbótarrýmið Gryfjan sem allt að 10 manns mega vera í. Á efri hæð er aðalsýningarrými verka þar sem allt að 35 manns mega koma saman. Heildarfjöldi í byggingunni getur því verið allt að 60 manns að uppfylltum sóttvarnarreglum. Á Þorláksmessukvöld var Gryfjan lokuð og var því leyfi fyrir 50 manns í húsinu. Eigendur telja ótvírætt að fjöldi gesta hafi ávallt verið undir því viðmiði,“ sagði í tilkynningu eigendanna.
Lögreglan vildi ekki greina frá niðurstöðunni
Þennan sama dag fór Bjarni í viðtal í Kastljósi og sagðist hafa þegið léttvín í Ásmundarsal en hefði „aldrei [verið] staddur í neinu partíi“. Hann hefði upplifað að hann hefði verið í salnum í korter og stæði við það mat. Bjarni taldi sig ekki hafa brotið sóttvarnalög.
Þrátt fyrir þessa afstöðu ákvað lögreglan að hefja formlega rannsókn á mögulegu sóttvarnabroti í Ásmundarsal á Þorláksmessu og gerði grein fyrir því í tilkynningu 30. desember. Þar kom fram að rannsóknin myndi meðal annars fela í sér að yfirfara upptökur úr búkmyndavélum lögreglumanna með tilliti til brota á sóttvörnum.
Þeirri rannsókn lauk í janúar og var málið í kjölfarið sent ákærusviði lögreglunnar 22. janúar sem átti að taka ákvörðun um hvort sektir yrðu gefnar út eða ekki.
Niðurstaða liggur nú fyrir en lögreglan vildi ekki greina frá henni opinberlega í vikunni sem leið. Samkvæmt yfirlýsingu frá eigendum Ásmundarsalar, sem birtist í fyrradag, brutu þeir einungis gegn ákvæði um grímuskyldu. Þeir segja að ekki hafi verið brotið gegn reglum um fjöldatakmarkanir í salnum né opnunartíma umrætt kvöld og að ekkert samkvæmi hafi verið haldið í listasafninu.
Háttsemi lögreglumanna á vettvangi getur talist „ámælisverð“ samkvæmt nefndinni
Þann 26. febrúar greindi mbl.is frá því að nefnd sem hefur eftirlit með störfum lögreglu væri að kanna samskipti hennar við fjölmiðla eftir að samkvæmið í Ásmundarsal á Þorláksmessu var leyst upp. Einnig yrði kannað hvort samræmi væri milli þess sem kom fram á upptöku og þess sem skrifað var í skýrslu lögreglu.
Í fyrrnefndri yfirlýsingu eigenda Ásmundarsalar kemur fram að nefndin hafi tekið starfshætti lögreglu til skoðunar og gert alvarlegar athugasemdir við háttsemi lögregluþjóna og vinnubrögð embættisins. Í frétt Fréttablaðsins um málið kemur síðan fram að í skýrslu nefndarinnar sé rakið samtal lögreglumanna á vettvangi. Þar megi heyra á tal tveggja lögreglumanna.
Annar lögreglumaðurinn segir: „Hvernig yrði fréttatilkynningin ... 40 manna einkasamkvæmi og þjóðþekktir einstaklingar..., er það of mikið eða?“ Hinn segir: „Ekki fyrir mig, ég myndi lesa það ...“ og einnig: „Ég þekkti tvær stelpur þarna uppi og þær eru báðar sjálfstæðis ... svona ... framapotarar eða þú veist.“
Samkvæmt Fréttablaðinu telur nefndin þessa háttsemi lögreglumannanna á vettvangi geta verið ámælisverða og þess eðlis að tilefni sé til að senda þann þátt málsins til meðferðar hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu. Jafnframt kemur fram að fyrst þegar nefndin ætlaði að fara yfir upptökur úr búkmyndavélum lögreglumanna hafi komið í ljós að afmáður hafði verið hluti af hljóði upptakanna. Fékk nefndin að lokum upptökur með hljóði.
Lögreglan mótmælti ásökunum um leynimakk
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendi frá sér tilkynningu vegna málsins seinni partinn í gær en í henni segir að engin tilraun hafi verið gerð til að leyna því sem fram kom á upptökum úr búkmyndavélum lögreglumanna sem komu á vettvang í Ásmundarsal á Þorláksmessu.
Eftirlitsnefnd með störfum lögreglu hafi fengið tæmandi endurrit af samræðum lögreglumanna á vettvangi fylgdi með til nefndarinnar strax í upphafi skoðunar hennar á málinu og þegar hún hafi beðið um nýtt eintak af upptöku úr búmyndavélum hafi rétt eintak verið sent til nefndarinnar.
Í tilkynningu lögreglu segir að það sé grundvallaratriði að viðhalda því góða trausti sem lögreglan nýtur. Eftirlit með störfum lögreglu sé einn af hornsteinum þess að viðhalda því trausti. „Hvað varðar afhendingu gagna til nefndarinnar er rétt að taka fram að tæmandi endurrit af samræðum lögreglumanna á vettvangi fylgdi með til nefndarinnar strax í upphafi. Nefndin hafði þar af leiðandi umrædd samtöl, sem vísað er til í niðurstöðum hennar, undir höndum allan tímann. Rétt er að hluti af upptökum úr búkmyndavélum á vettvangi var án hljóðs. Þegar nefndin gerði athugasemd við það var rétt eintak sent til nefndarinnar. Engin tilraun var gerð til að leyna því sem fram kom á upptökunum.
Hvað varðar niðurstöðu nefndarinnar um að vísbendingar séu um að dagbókarfærsla hafi verið efnislega röng telur embættið mikilvægt að taka fram að fyrstu upplýsingar lögreglu sem fengust á vettvangi voru á þann veg að um einkasamkvæmi væri að ræða og var það því skráð sem slíkt í dagbók lögreglu. „Hins vegar leiddi frekari rannsókn málsins í ljós að svo var ekki. Markmið með birtingu upplýsinga úr dagbókarfærslum er að fjalla um verkefni lögreglu eins og þau birtast á hverjum tíma. Eðli máls samkvæmt geta mál skýrst eða tekið aðra stefnu eftir því sem rannsókn miðar áfram,“ segir í tilkynningu lögreglu.
Annar angi vatt upp á sig
Á svipuðum tíma í febrúar og fréttir bárust af því að nefndin væri að skoða málið þá opinberaði RÚV að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefði hringt tvívegis í Höllu Bergþóru Björnsdóttur, lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins, á aðfangadag 2020 í kjölfar þess að lögreglan hafði greint fjölmiðlum frá því að „háttvirkur ráðherra“ hefði verið staddur í samkvæmi í Ásmundarsal kvöldið áður.
Áslaug Arna sagði við RÚV að samtöl hennar við lögreglustjórann hefðu verið vegna spurninga sem hún hafði um verklag og upplýsingagjöf við gerð dagbókarfærslna lögreglu. „Fjölmiðlar spurðu mig hvort hún væri eðlileg. Ég þekkti ekki verklag dagbókarfærslna lögreglunnar og spurði aðeins um það.“
Kjarninn greindi frá því í byrjun mars að í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn miðilsins hefði ekki komið skýrt fram hvort allir helstu fjölmiðlar landsins, sem hún sagði að hefði sett sig í samband við hana á aðfangadag, hefðu spurt sérstaklega út í verklagsreglur lögreglu í tengslum við dagbókarfærslu lögreglunnar á aðfangadag. Í skriflegu svari sagði Áslaug Arna: „Þegar ljóst var hvers eðlis málið var og hvernig það var að þróast þennan sama dag, taldi ég ekki við hæfi að tjá mig um það – hvorki um dagbókarfærsluna sjálfa né aðra anga málsins.“
Dómsmálaráðherra vissi að Bjarni væri „háttvirti ráðherrann“
Vegna þessa var Áslaug Arna boðuð fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og kom hún fyrir nefndina þann 1. mars. Hún sagði í áðurnefndu skriflegu svari við fyrirspurn Kjarnans um málið að hún hefði ekki átt samskipti við Bjarna áður en hún átti samskipti við lögreglustjóra en að hún hefði átt samskipti við Bjarna síðar á aðfangadag.
Í viðtali við RÚV eftir fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar var hins vegar haft eftir dómsmálaráðherra að hún hefði vitað að það var Bjarni sem hafði verið í Ásmundarsal á Þorláksmessu áður en hún hringdi.
Halla Bergþóra mætti svo sjálf fyrir nefndina daginn eftir. Hún vildi ekki tjá sig um símtölin opinberlega. Þegar hún var til viðtals í Silfrinu helgina áður bar hún það fyrir sig að málið væri til meðferðar hjá þingnefnd og vegna þess gæti lögreglustjórinn ekki tjáð sig um það.
Málið farið að snúast um eitthvað sem „skiptir í raun ekki máli“
Guðmundur Andri Thorsson þingmaður Samfylkingarinnar gerði lögreglumálið í Ásmundarsal að umræðuefni á Facebook-síðu sinni í gær. Hann sagði í samtali við Kjarnann umræðuna um málið dæmigerða um það hvernig hægt væri snúa frásögn á hvolf. Nú væri málið látið fara að snúast um eitthvað sem skipti í raun ekki máli.
Vísaði hann í þá umræðu sem nú er hvað háværust um málið – um aðgerðir lögreglunnar.
„Fjármálaráðherra og einn þriggja leiðtoga ríkisstjórnarinnar reyndist vera staddur í mannfagnaði á Þorláksmessu síðastliðinni á sama tíma og strangt samkomubann var í gildi samkvæmt reglugerð þeirrar hinnar sömu ríkisstjórnar.
Þetta samkomubann var afar íþyngjandi fyrir almenning: fólk gat ekki haldið jólaboð, stórfjölskyldur gátu ekki hist, gamalt fólk var fast á hjúkrunarheimilum eða heima hjá sér, tónleikar fóru ekki fram, veitingastaðir voru lokaðir, þjóðlífið var nánast lamað: en það var sem sagt hægt að halda mannfagnað í Ásmundarsal með því að kalla hann ýmist sýningu, kynningu, opnun eða annað eftir því hvað klukkan var. Og þar var leiðtogi ríkisstjórnarinnar sem sé að lyfta glasi í góðra vina hópi. Umræðan nú snýst um það hvort lögreglumenn sem komu á vettvang hafi haft óviðurkvæmileg orð um þetta í sinn hóp,“ skrifaði hann.
Bjarni aldrei yfirheyrður vegna málsins
En hvað með „háttvirtan ráðherrann“? Bjarni sagði í samtali við Vísi í fyrradag að hann hefði ekki haft veður af því að niðurstaða væri komin í málið. Hann kvaðst enda ekki hafa verið til rannsóknar svo að hann vissi til. „Ég er ekki aðili að málinu,“ sagði hann.
Jafnfram kom fram hjá Vísi í vikunni að Bjarni hefði aldrei verið andlag rannsóknar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við málið.
Jafnframt hefði Bjarni aldrei verið yfirheyrður vegna málsins og nú þegar niðurstaða er komin í málið væri hann ekki á meðal þeirra sem boðið hefur verið að greiða sekt. „Við höfum aldrei verið í neinum samskiptum eða til rannsóknar svo að við vitum til vegna þessa máls. Við höfum ekki fengið neina tilkynningu eða beiðni um yfirheyrslu eða samtal,“ sagði aðstoðarmaður hans við Vísi.
Lesa meira
-
9. desember 2022Búið að birta ákæru gegn tveimur mönnum fyrir að skipuleggja hryðjuverk
-
6. desember 2022Samherji Holding segist ekki líða mútugreiðslur, fyrirgreiðslur og ávinning í skiptum fyrir óeðlileg áhrif
-
25. nóvember 2022Fleiri sektaðir fyrir nagladekkjanotkun utan leyfilegs tímabils í ár en fjögur árin á undan
-
4. nóvember 2022Við erum fólk í förum
-
3. nóvember 2022Lögregla fór fram á að komið yrði í veg fyrir myndatökur – Isavia biðst afsökunar
-
10. október 2022Töluðu um að drepa Sólveigu Önnu og Gunnar Smára
-
23. september 2022Sprengja við Stjórnarráðið, skotgöt á bíl borgarstjóra og menn sem vildu ráðast gegn Alþingi
-
4. september 2022Upplifun af því að kæra til lögreglu brot gegn friðhelgi einkalífs var hræðileg
-
4. september 2022Húsnæði Sósíalistaflokks Íslands grýtt og Gunnari Smára hótað
-
1. september 2022Hakkarinn „getur gert allt sem ég“