Viðreisn með fylgi á pari við rótgróna flokka í tilvistarkreppu

Viðreisn mælist enn með um tíu prósent fylgi í nýjustu kosningaspánni, annan mánuðinn í röð. Sjálfstæðisflokkur og Píratar eru enn lang stærstu framboðin sem hyggjast bjóða fram til Alþingis í haust.

Frá stofnfundi Viðreisnar í Hörpu í lok maí.
Frá stofnfundi Viðreisnar í Hörpu í lok maí.
Auglýsing

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Píratar eru enn stærstu stjórn­mála­öfl á Íslandi sam­kvæmt Kosn­inga­spánni. Ný kosn­inga­spá var gerð föstu­dag­inn 2. sept­em­ber. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn nýtur nú meira fylgis en Píratar sem hafa átt meira fylgi að fagna und­an­farna mán­uði og verið vin­sælasta stjórn­mála­aflið á Íslandi í könn­un­um. Sjálf­stæð­is­flokkur mælist með 25,6 pró­sent og Píratar með 24,9 pró­sent. Mun­ur­inn á fylgi þess­ara fram­boða er innan vik­marka.

Athygli vekur að Við­reisn mælist enn meðal fjög­urra stærstu stjórn­mála­afla sem bjóða fram í Alþing­is­kosn­ing­unum 29. októ­ber. Síðan í byrjun júlí hefur fram­boðið ítrekað mælst með rétt tæp­lega tíu pró­sent fylgi í kosn­inga­spánni. Á svip­uðum slóðum eru tveir rót­grónir stjórn­mála­flokkar í til­vist­ar­kreppu. Það eru Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Sam­fylk­ingin sem virð­ast eiga mjög erfitt með að höfða til meira en tíu pró­sent kjós­enda um þessar mund­ir.

Auglýsing

Vinstri hreyf­ingin grænt fram­boð mælist enn þriðja vin­sælasta fram­boðið til Alþing­is. Fylgi við flokk­inn fór á flug í Panama­skjala-vik­unni þegar komið var upp um eign­ar­hald æðstu manna í rík­is­stjórn lands­ins í félögum sem skráð eru í skatta­skjól­um. Vinstri græn nutu á tíma­bili stuðn­ings hátt í 18 pró­sent kjós­enda. Í nýj­ustu kosn­inga­spánni mælist fylgi við flokk­inn 14,9 pró­sent.

Önnur fram­boð myndu að öllum lík­indum ekki ná manni á þing, ef gengið yrði til kosn­inga nú. Ætla má að fram­boð þurfi að fá um fimm pró­sent atkvæða á lands­vísu til þess að fá mann kjör­inn á þing. Kosn­inga­spáin mælir ekki stuðn­ing fram­boða í ein­staka kjör­dæmi svo mik­il­vægt er að setja þann fyr­ir­vara að stuðn­ingur við fram­boð gæti mælst mun meiri í einu kjör­dæmi en öðru.

Af öðrum fram­boðum ber helst að nefna Bjarta fram­tíð. Sá flokkur mun að öllum lík­indum þurkast út af þingi enda hefur fylgið ekki farið upp fyrir fimm pró­sent síðan um miðjan apr­íl, í kjöl­far upp­ljóstrana Panama­skjal­anna, þegar það mæld­ist 5,2 pró­sent í kosn­inga­spánni. Nú mælist fylgið 3,7 pró­sent í kosn­inga­spánni, örlítið meira en sam­an­lagður stuðn­ingur við öll önnur fram­boð sem mæl­ast í könn­un­um.

Við­reisn og rót­grónu flokk­arnir

Áhuga­vert er að rýna í fylg­is­þróun Við­reisnar í kosn­inga­spánni í þessa fimm mán­uði sem fram­boðið hefur verið mælt. Kosn­inga­spáin skráði Við­reisn í fyrsta sinn 1. apr­íl, rétt áður en Panama­skjölin voru gerð opin­ber og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra og tók sér frí.

Við­reisn mæld­ist þá með 2,1 pró­sent atkvæða. Þetta var um tveimur mán­uðum áður en farið var að kynna áherslur og fram­bjóð­endur þessa fram­boðs. Þá hafði það staðið til um nokk­urra miss­era skeið að stofna nýtt frjáls­lynt stjórn­mála­afl sem myndi bjóða fram í Alþing­is­kosn­ingum 2017. Um var að ræða óánægðan hóp Sjálf­stæð­is­manna og ann­arra sem ekki höfðu fengið harðan póli­tískan stimpil sem vildi frjáls­lynt stjórn­mála­afl óháð hags­munum „flokks­eig­enda“, inn­vígðra flokks­leið­toga og þar fram­eftir göt­un­um.

Fylgi Við­reisnar mæld­ist á bil­inu tvö til fjögur pró­sent allan apríl og maí eða þar til 4. júní þegar kosn­inga­spáin mældi stuðn­ing­inn við Við­reisn vera 5,8 pró­sent. Þá hafði verið hald­inn stofn­fundur og Bene­dikt Jóhann­es­son kjör­inn for­mað­ur.

Það vekur athygli að Við­reisn virð­ist ekki hafa verið að taka mikið fylgi af Sjálf­stæð­is­flokknum á und­an­förnum mán­uð­um. Þvert á móti hefur fylgi hans auk­ist lít­il­lega frá því að stofn­fundur Við­reisnar var hald­inn og mælist nú 25,6 pró­sent. Það er þó í sögu­lega sam­hengi mjög lítið fylgi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Hann fékk 26,7 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ingum sem var næst versta útreið flokks­ins í slíkum í sögu hans. Ein­ungis í hrun­kosn­ing­unum 2009 hafði hann fengið færri atkvæði. Samt er fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í hæstu hæðum miðað við kann­anir um þessar mundir í sam­an­burði við það hvernig það hefur verið á þessu kjör­tíma­bili. Þar hefur það á stundum farið undir 20 pró­sent.

Við­reisn hefur nú haldið um það bil tíu pró­sent fylgi und­an­farna tvo mán­uði. Það er á pari við það sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Sam­fylk­ingin hafa mælst með á sama tíma­bili. Þar eru á ferð­inni tveir rót­grónir stjórn­mála­flokkar í íslenskri stjórn­mál­sögu, tveir fram­verðir fjór­flokks­ins svo­kall­aða sem hafa báðir átt aðild að rík­is­stjórnum á síð­ustu árum.

Fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins var orðið sögu­lega lítið strax á síð­asta ára­tug en fylg­is­sveifla flokks­ins í aðdrag­anda síð­ustu Alþing­is­kosn­inga undir for­ystu Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar fleytti flokknum í for­ystu­sæti í rík­is­stjórn eftir kosn­ing­arnar 2013. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hlaut 24,4 pró­sent greiddra atkvæða. Þegar skammt var liðið af kjör­tíma­bil­inu mæld­ist fylgið aftur minna en 20 pró­sent. Það var svo orðið rétt rúm­lega 10 pró­sent um mitt ár 2014.

Fylg­issaga Sam­fylk­ing­ar­innar hefur öðru­vísi upp­haf, öðru­vísi meg­in­mál en sama endi í um tíu pró­sent fylgi um mán­að­ar­mótin ágúst-sept­em­ber 2016. Eftir kosn­ing­arnar 2009 sem haldnar voru í kjöl­far efna­hags­hruns­ins í októ­ber 2008, mynd­aði flokk­ur­inn rík­is­stjórn með Vinstri græn­um. Eftir að hafa hlotið 29,8 pró­sent greiddra atkvæða í kosn­ing­unum hrundi fylgið af flokknum eftir kosn­ing­arnar og hefur haldið áfram að minnka. Í kosn­ing­unum 2013 hlaut Sam­fylk­ingin aðeins 12,9 pró­sent atkvæða. Þá hafði flokk­ur­inn aldrei fengið minna en 26,8 pró­sent greiddra atkvæða í kosn­ingum síðan flokk­ur­inn var stofn­aður sem kosn­inga­banda­lag árið 1999.

Um nýj­ustu kosn­inga­spána

Nýjasta kosn­inga­spáin var gerð 2. sept­em­ber og er byggð á fjórum nýj­ustu könn­unum sem gerðar hafa verið á fylgi fram­boð­anna sem hyggj­ast bjóða fram í kosn­ing­unum 29. októ­ber. Áður en könnun er bætt við í kosn­inga­spána hlýtur hún vægi gagn­vart öðrum fyr­ir­liggj­andi könn­unum sem byggir meðal ann­ars á lengd könn­un­ar­tíma­bils­ins og fjölda svar­enda. Kann­an­irnar sem liggja til grund­vallar kosn­inga­spánni 2. sept­em­ber eru eft­ir­far­andi:

  • Þjóð­ar­púls Gallup 26. júlí til 31. ágúst (vægi: 41,4%)
  • Skoð­ana­könnun MMR 22. ágúst til 29. ágúst (vægi: 28,2%)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 30. júní til 29. júlí (vægi: 20,0%)
  • Skoð­ana­könnun MMR 15. júlí til 22. júlí (vægi: 10,4%)

Kosn­­­­­­­inga­­­­­­­spálíkan Bald­­­­­­­urs Héð­ins­­­­­­­sonar miðar að því að setja upp­­­­­­­lýs­ing­­­­­­­arnar sem skoð­ana­kann­­­­­­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­­­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­­­­­inga. Kjarn­inn birti Kosn­­­­­­­inga­­­­­­­spá Bald­­­­­­­urs fyrir sveit­­­­­­­ar­­­­­­­stjórn­­­­­­­­­­­­­ar­­­­­­­kosn­­­­­­­ing­­­­­­­arnar og reynd­ist sú til­­­­­­­raun vel. Á vefnum kosn­­­­­­­inga­­­­­­­spá.is má lesa nið­­­­­­­ur­­­­­­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­­­­­­vik kann­ana miðað við kosn­­­­­­inga­úr­slit­in.

Áreið­an­­­­­­­leiki könn­un­­­­­­­ar­að­ila er reikn­aður út frá sög­u­­­­­­­legum skoð­ana­könn­unum og kosn­­­­­­­inga­úr­slit­­­­­­­um. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könn­unin var fram­­­­­­­kvæmd og svo hversu margir svara í könn­un­un­­­­­­­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnBirgir Þór Harðarson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None