Þrír af stærstu eigendum Eimskips með vinnubrögð félagsins til skoðunar
Lífeyrissjóðir landsins eiga meirihluta hlutafjár í Eimskip. Þrír stærstu lífeyrissjóðirnir segjast allir vera með þau vinnubrögð félagsins, sem lýst var í fréttaskýringaþætti á fimmtudag, til skoðunar.
Þeir þrír lífeyrissjóðir sem eiga stærstan hlut í Eimskip, að undanskildum stærsta eigandanum Samherja Holding, hafa allir tekið endurvinnslu tveggja skipa, Laxfoss og Goðafoss, í skipaniðurrifsstöð í Indlandi sem uppfyllir ekki evrópskar reglur um endurvinnslu skipa til skoðunar hjá sér. Einn þeirra sagði í svari við fyrirspurn Kjarnans að „vinnubrögðin sem lýst var í þættinum ríma illa við stefnu sjóðsins um ábyrgar fjárfestingar.“
Fjallað var um málið í fréttaskýringaþættinum Kveik á fimmtudag.
Skipin tvö voru seld í desember í fyrra til fyrirtækis sem heitir GMS, og sérhæfir sig í að vera milliliður sem kaupir skip til að setja þau í niðurrif í Asíu þar sem kröfur um aðbúnað starfsmanna og umhverfisáhrif niðurrifsins eru mun lakari en í Evrópu. Þar eru skip oft rifin í flæðarmálinu og ýmis spilliefni látin flæða út í umhverfið. Þá vinna starfsmenn þar við svo erfiðar aðstæður að þær hafa verið kallaðar mannréttindabrot.
Laxfoss og Goðafoss voru flutt í skipakirkjugarðinn í Alang á Indlandi í maí síðastliðnum. Í þætti Kveiks kom fram að ein af ástæðum fyrir því að þetta þætti eftirsóknarvert væri sú að í Asíu sé greitt fjórum sinnum meira fyrir skip á leið í niðurrif en í Evrópu. Að minnsta kosti 137 starfsmenn í Alang hafa látist við störf síðastliðinn áratug, samkvæmt því sem kom fram í Kveik.
Framferði Eimskip hefur þegar verið kært til embætti héraðssaksóknara af Umhverfisstofnun. Eimskip sendi frá sér tilkynningu til Kauphallar Íslands í gær þar sem félagið hafnaði því að hafa brotið lög.
Samherji stærsti eigandinn
Stærsti eigandi Eimskips er Samherji Holding, annar helmingur Samherjasamstæðunnar sem heldur utan um erlenda starfsemi hennar og eignarhlutinn í Eimskip, með 27,06 prósent hlut. Stjórnarformaður Eimskips er Baldvin Þorsteinsson, sonur Þorsteins Más Baldvinssonar forstjóra Samherja. Baldvin á nú 20,5 prósent hlut í Samherja hf.,, hinu félaginu sem myndar Samherjasamstæðuna. Samherji er með tvö af fimm stjórnarsætum í Eimskip auk þess sem samsteypan styður einn óháðan stjórnarmann óskorað til stjórnarsetu. Í janúar 2019 var svo ráðinn nýr forstjóri Eimskips, Vilhelm Már Þorsteinsson. Hann er frændi stjórnarformannsins og tveggja helstu eigenda Samherja.
Íslenskir lífeyrissjóðir eiga meira en helming í Eimskip. Stærstu sjóðir landsins: Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR), Gildi, Lífeyrissjóður verzlunarmanna og Birta eiga samtals 43,2 prósent í skipafélaginu.
Tekur málið alvarlega
Lífeyrissjóður verzlunarmanna er næst stærsti eigandi Eimskips og á alls 14,7 prósent hlut í Eimskip. Sjóðurinn hefur undanfarin ár lagt aukna áherslu á samfélagslega ábyrgð við fjárfestingar. Er sjóðurinn t.d. aðili að UN-PRI, samtökum á vegum Sameinuðu þjóðanna, sem og FESTU-Samfélagsábyrgð fyrirtækja.
Kjarninn sendi fyrirspurn á sjóðinn og spurði hvernig efni Kveiksþáttarins rímaði við samfélagslega ábyrgar áherslur hans.
Í svari hans sagði að lífeyrissjóður verzlunarmanna taki „þetta mál alvarlega og hefur tekið til skoðunar.“ Þar sagði enn fremur að ítarlegra svar verði sent eftir helgi.
Vinnubrögðin ríma illa við stefnu sjóðsins
Gildi lífeyrissjóður er þriðji stærsti eigandi Eimskips með 13,43 prósent eignarhlut. Hann hefur undanfarin ár lagt aukna áherslu á samfélagslega ábyrgð við fjárfestingar. Í hluthafastefnu sjóðsins segir m.a.: „Gildi-lífeyrissjóður leggur áherslu á að þau félög sem hann fjárfestir í fylgi lögboðnum og góðum stjórnarháttum og gefi út fullnægjandi stjórnarháttayfirlýsingar, standi vörð um réttindi hluthafa, fylgi lögum og reglum og gæti að samfélagslegri ábyrgð, umhverfismálum og viðskiptasiðferði.“
Í svari hans við fyrirspurn Kjarnans, um hvernig það sem fram kom í þætti Kveiks rími við áherslur hans um samfélagsleg ábyrgð við fjárfestingar, sagði að „vinnubrögðin sem lýst var í þættinum ríma illa við stefnu sjóðsins um ábyrgar fjárfestingar.“ Málið yrði tekið til skoðunar innan Gildis og sjóðurinn biði eftir viðbrögðum Eimskips.
Gerir kröfu um ábyrgð gagnvart umhverfislegum þáttum
LSR er fjórði stærsti eigandi Eimskips. Samanlagt eiga A og B-deildir sjóðsins 8,97 prósent í félaginu. LSR hefur undanfarin ár lagt aukna áherslu á samfélagslega ábyrgð við fjárfestingar. Í áherslum hans, sem birtar eru á heimasíðu sjóðsins, segir m.a. að „mikilvægi samfélagslegs hlutverks lífeyrissjóðanna verði haft að leiðarljósi í allri starfsemi þeirra.“
Í svari hans við fyrirspurn Kjarnans segir að við mat á fjárfestingum geri LSR kröfu til þess að félög, sem sjóðurinn fjárfestir í, sýni ábyrgð gagnvart félagslegum þáttum, umhverfislegum þáttum og að starfað sé í samræmi við viðurkenndar leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja. „LSR hefur sett sér stefnu um ábyrgar fjárfestingar og í henni kemur m.a. fram að LSR hvetur þau fyrirtæki sem sjóðurinn fjárfestir í að sýna gagnsæi þegar kemur að umhverfislegum þáttum, félagslegum þáttum og stjórnarháttum. Í kjölfar umfjöllunar fréttaskýringarþáttarins Kveiks mun sjóðurinn óska eftir skýringum frá Eimskip vegna þess sem þar kom fram.“
Kjarninn sendi einnig fyrirspurn á Birtu lífeyrissjóðs, sem er fimmti stærsti eigandi Eimskips, í gærmorgun sem var efnislega sú sama og hinum sjóðunum barst. Ekkert svar hefur borist frá honum enn sem komið er.
Lestu meira:
-
9. janúar 2023Fjármálaeftirlitið telur Íslandsbanka mögulega hafa brotið gegn lögum
-
8. janúar 2023Sautján ár á milli ráðninga á konu í forstjórastóli hjá skráðu félagi
-
7. janúar 2023Dreifing Fréttablaðsins fer úr 80 þúsund í 45 þúsund eintök á dag eftir breytingarnar
-
7. janúar 2023Tæknispá 2023: Tími gervigreindar er kominn og samfélagsmiðlar verða persónulegri
-
6. janúar 2023Tíu stærstu útgerðirnar halda á 56 prósent af öllum kvóta
-
4. janúar 2023Hálfgerð Eurovision-stigagjöf hjá matsnefnd Hörpu sögð óhefðbundin
-
4. janúar 202314 félög lækkuðu í virði en fjöldi einstaklinga sem á hlutabréf þrefaldaðist á þremur árum
-
2. janúar 2023Fréttablaðið hætt að koma inn um lúguna hjá fólki – Lestur hríðfallið og kostnaður aukist
-
1. janúar 2023Þrennt sem eykur forskot Íslands
-
30. desember 2022Verslun í alþjóðlegu umhverfi