Skæruliðadeild Samherja sem vill stinga, snúa og strá svo salti í sárið
Hluti þess hóps sem rekur áróðursstríð Samherja gegn blaðamönnum og ákveðnum fjölmiðlum sem fjallað hafa um fyrirtækið lýsir sér í samtölum sem „skæruliðadeild Samherja“. Einn þeirra segist bara vera „eitt tannhjól í góðri vél“. Í gögnum sem Kjarninn hefur undir höndum, og sýna meðal annars samskipti milli þessa hóps og helstu stjórnenda Samherja, má sjá hversu mikið er lagt í að safna upplýsingum um blaðamenn, reyna að gera þá ótrúverðuga og jafnvel vanhæfa til að fjalla áfram um Samherja.
Þann 20. nóvember 2019, tæpri viku eftir að umfjöllun Kveiks, Stundarinnar, Wikileaks og Al Jazeera um Samherja og atferli fyrirtækisins í Namibíu birtist, sendi Margrét Ólafsdóttir, ritari Þorsteins Más Baldvinssonar, sem hafði þá nýlega stigið til hliðar úr forstjórastóli Samherja, póst til Þorbjörns Þórðarsonar, fyrrverandi fjölmiðlamanns.
Þorbjörn hafði í byrjun júlí sagt upp störfum hjá fréttastofu Stöðvar 2 eftir rúman áratug í fjölmiðlum, og sagði við það tilefni við mbl.is að hann ætlaði sér að hefja störf á nýrri lögmannsstofu 1. september 2019, eftir að hafa fengið málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi skömmu áður. „Það var komið að þeim tímapunkti hjá mér að ég þurfti nýja áskorun og lögmennskan hefur alltaf heillað.“
Í nóvember var Þorbjörn kominn til starfa fyrir Samherja. Margrét Ólafsdóttir kynnti hann með eftirfarandi hætti í tölvupósti: „Til uppl. Þorbjörn er okkar PR ráðgjafi.“
Pósturinn var til Páls Steingrímssonar, skipstjóra hjá Samherja, til að láta hann vita að Þorbjörn hefði verið ánægður með tillögu sem Margrét hafði lagt fyrir hann. Tillagan var eftirfarandi: „Ég fékk skilaboð frá einum af skipstjórunum okkar Páli Steingrímssyni. Hann hefur verið mjög „aktífur“ að skrifa bæði í blöð og á samfélagsmiðlum og getur svarað fyrir sig. Hann sem sagt býður fram krafta sína ef við þurfum nafn á einhver skrif.“
Heiti tölvupósts sem Margrét hafði sent á Þorbjörn, og áframsendi nú á Pál, var „Nafn á skrif“.
Þorbjörn svaraði: „Frábært að vita af þessu. Ég vista númerið hans og netfang. Mér finnst mjög líklegt að þetta nýtist.“
Farið í stríð
Greinarnar sem Páll hafði áður skrifað fjölluðu flestar með jákvæðum formerkjum um ríkjandi skipulag í sjávarútvegi og með þóknanlegum hætti um þá sem stýra málum innan þeirrar atvinnugreinar. Í tölvupóstsamskiptum sem Kjarninn hefur fengið aðgang að sést að Páll hefur skrifað greinar, og sett ummæli á samfélagsmiðla, í samstarfi við fólk úr efsta laginu hjá Samherja. Þá las starfsmaður Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) yfir greinar hans um skeið. Nafni sambandsins var breytt í Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) fyrir nokkrum árum og þegar áðurnefndur starfsmaður hætti störfum fyrir hagsmunasamtökin tók Benedikt Sigurðsson, núverandi upplýsingafulltrúi SFS, við og las yfir greinar fyrir Pál.
Samstarf Þorbjörns og Páls, sem voru leiddir saman af efsta lagi stjórnenda og eigenda Samherja, hófst formlega þann 1. desember 2019 þegar Páll skrifaði grunn að grein sem bar yfirskriftina „Saklaus uns sekt er sönnuð“. Fjórum dögum fyrr sendi Páll greinina á Þorbjörn og skrifaði í tölvupósti: „Þú meðhöndlar þetta eins og þér henntar.“
Degi síðar sendi Þorbjörn greinina til baka og skrifaði með: „Ég breytti eiginlega öllu í greininni en merkingin er sú sama.“
Páll þakkaði Þorbirni fyrir og degi síðar, 3. desember, sendi hann greinina til Margrétar Ólafsdóttur, sem sér um öll tölvupóstsamskipti fyrir Þorstein Má, með eftirfarandi skilaboðum: „Sendi þér mín fyrstu skref í þessari baráttu okkar.“ Skömmu síðar sendi hann greinina líka á Kristján Vilhelmsson, útgerðarstjóra Samherja.
Þorbjörn sendi svo leiðbeiningar á Pál um hvert greinin ætti að fara til birtingar og hún birtist loks á Vísi þann 5. desember 2019. Í endanlegri útgáfu hennar var um tíu prósent eftir af þeim drögum sem Páll hafði upphaflega skrifað. Hann er þó einn skrifaður fyrir greininni.
Stríðið var hafið.
Helstu stjórnendur beinir þátttakendur
Í gögnum sem Kjarninn hefur undir höndum, sem sýna meðal annars tölvupóstsamskipti og samtöl milli einstaklinga í spjallforriti, sést hvernig varnarbarátta Samherja hefur þróast frá því að opinberun fjölmiðla á hinu svokallaða Namibíumáli – þar sem grunur er um mútugreiðslur, skattasniðgöngu og peningaþvætti – varð í nóvember 2019.
Gögnin sýna að margir einstaklingar innan Samherjasamstæðunnar koma beint að öllum viðbrögðum við þeim fréttaflutningi og öðrum sem fylgt hafa í kjölfarið. Þar ber að nefna, til viðbótar við áðurnefnda Þorstein Má og Kristján, Baldvin Þorsteinsson, forstjóra Samherja í Evrópu, son Þorsteins Más og einn helsta eigandi Samherja á Íslandi, Björgólf Jóhannsson, sem settist um tíma í forstjórastól Samherja eftir að Namibíumálið kom upp, Örnu Bryndísi McClure, yfirlögfræðing Samherja til margra ára, og Óskar Magnússon, sem situr í stjórn Samherja og hefur verið náinn ráðgjafi Þorsteins Más árum saman. Þorsteinn Már og Arna eru á meðal þeirra sex núverandi og fyrrverandi starfsmanna Samherja sem fengu réttarstöðu sakbornings við yfirheyrslur hjá sérstökum saksóknara í fyrra. Í málinu er grunur um að mútugreiðslur hafi átt sér stað, meðal annars til erlendra opinberra starfsmanna. Auk þess er grunur um brot á ákvæði almennra hegningarlaga um peningaþvætti og brot á ákvæði sömu laga um auðgunarbrot.
Ráðgjafinn og einkaspæjarinn Jón Óttar Ólafsson leikur stórt hlutverk á bakvið tjöldin og það gerir áðurnefndur Þorbjörn Þórðarson einnig. En þeim sem oftast er att út á foraðið með skrif og meiningar ofangreinds hóps er skipstjórarnum Páli Steingrímssyni.
Í samtali milli Örnu og Páls er ítrekað vísað til þess að þau séu, ásamt öðrum starfsmönnum og ráðgjöfum Samherja, hluti af því sem þau kalla „skæruliðadeild Samherja“ sem vinni hörðum höndum á bakvið tjöldin í því stríði sem þau telja sig standa í.
„Mennirnir hafa gefið grænt ljós“
Þegar leið að jólum 2019 skiptust þeir Þorbjörn og Páll á ýmsum upplýsingum um efni sem gæti notast til að koma höggi á þá fjölmiðla sem Samherji hafði, og hefur, í sigti sínu, ásamt listamönnum og stjórnmálamálamönnum.
Næstu mánuði fór barátta Samherja þó að mestu fram í gegnum birtingar á ýmsum yfirlýsingum og tilkynningum á heimasíðu fyrirtækisins, þeirri sömu og viðskiptavinir hennar fletta upp þegar þeir þurfa að nálgast upplýsingar um Samherja. Alls birtust vel á annan tug slíkra efna á þeim vettvangi frá nóvember 2019 og fram á vor árið eftir. Flest fjölluðu um Helga Seljan eða RÚV.
Um sumarið 2020 var svo komið að næstu skrefum. Í byrjun júní unnu Arna og Þorbjörn saman að uppfærslu á drögum að grein sem á endanum var birt í nafni Páls og bar fyrirsögnina „Ritsóðinn Helgi Seljan“.
Kvöldið áður en greinin birtist á Vísi sendi Þorbjörn póst á Pál með uppfærðri grein. Þar sagði meðal annars: „Mennirnir hafa gefið grænt ljós á greinina í þessari mynd svo þú mátt senda greinina á greinar@visir.is þegar þú ert búinn að afrita þetta í Word-skjal og vista.“
Megininnihald greinarinnar var tjáning Helga Seljan á samfélagsmiðlum. Ástæða þess að Páll átti að setja greinina í nýtt Word-skjal og vista var að fela stafræn fingraför Þorbjarnar á greininni.
„Bara eitt tannhjól í góðri vél“
Nokkrum dögum síðar hófst ferlið á ný. Aftur var framkvæmdin svipuð. Páll skrifaði gróf drög að grein, Þorbjörn breytti þeim umtalsvert og svo var beðið. Í tölvupósti sem sendur var degi áður en greinin birtist sagði Þorbjörn: „Kíktu á þetta en ekki senda neitt inn til birtingar fyrr en þú færð grænt ljós frá mér. Ég á eftir að láta mennina lesa þetta yfir.“ Páll svarar honum og segir: „Já sæll þú hefur lagt mikla vinnu í þetta og já ég bíð rólegur er bara eitt tannhjól í góðri vél.“
Græna ljósið frá „mönnunum“ kom 13. júní, eftir að Arna hafði bætt við punktum, og degi síðar birtist annar hluti greinaraðar í nafni Páls, „Ritsóðinn Helgi Seljan II“, á Vísi.
Næsta grein birtist 11. júlí á vef Mannlífs. Hún fjallaði um Ólaf Örn Jónsson, oft kallaður Óli Ufsi, í kjölfar þess að hann hafði greint frá því að hann teldi sig hafa misst störf vegna andstöðu sinnar við kvótakerfið. Greinin bar fyrirsögnina „Þráhyggja Ólafs Arnar Jónssonar“ og Páll er skrifaður einn fyrir henni.
Segja að gögnunum hafi verið stolið og hafa kært til lögreglu
Kjarninn hafði samband við helstu stjórnendur Samherja vegna umfjöllunarinnar og lagði fyrir þá fjölmargar spurningar í tengslum við þessa umfjöllun. Þeim fyrirspurnum var beint til Þorsteins Más Baldvinssonar, Björgólfs Jóhannssonar og Eiríks Jóhannssonar, stjórnarformanns Samherja.
Páll Steingrímsson vildi ekki ræða efnislega um greinarskrif sín eða samskipti við stjórnendur Samherja þegar Kjarninn náði tali af honum. Ekki náðist samband við Þorbjörn Þórðarson, sem svaraði ekki símtölum frá blaðamanni Kjarnans.
Í svari sem Arnar Þór Stefánsson, lögmaður á Lex, sendi fyrir hönd Samherja síðdegis í gær kom fram að fyrir lægi að þau gögn sem umfjöllun Kjarnans byggir á hafi fengist með innbroti í síma og tölvu Páls Steingrímssonar, starfsmanns Samherja. Páll hafi kært innbrotið og meðferð gagnanna til lögreglu fyrir fáeinum dögum þar sem málið bíði lögreglurannsóknar. „Hvorki Samherji hf. né fyrirsvarsmenn félagsins munu fjalla um inntak gagna sem aflað hefur verið með refsiverðum hætti. Með því væri verið að ljá umfjöllun vægi sem hún á ekki skilið. Fyrirspurnum yðar verður því ekki svarað.“
Í svari Arnars Þórs er þó tiltekið að rétt sé að fram komi að „starfsfólk Samherja hf. hefur fullar heimildir til að ráða ráðum sínum um sameiginleg málefni sín og félagsins og ekkert óeðlilegt við það, sér í lagi þegar þeir og félagið sæta slíkum árásum sem á þeim hafa dunið að undanförnu af hálfu fjölmiðla.“
Ábyrgðarmenn Kjarnans vilja taka fram að umrædd gögn sem eru grundvöllur umfjöllunar miðilsins bárust frá þriðja aðila. Starfsfólk Kjarnans hefur engin lögbrot framið og fjöldi fordæma eru fyrir því hérlendis sem erlendis að fjölmiðlar birti gögn sem eiga erindi við almenning án þess að hafa upplýsingar um hvernig þeirra var aflað. Það var skýr niðurstaða ábyrgðarmanna Kjarnans að hluti gagnanna ætti sterkt erindi og því eru almannahagsmunir af því að fjalla um þau með ábyrgum hætti.
Nú snerust hlutverkin hins vegar við. Þorbjörn skrifaði drögin og Páll gerði nokkrar breytingar, áður en Þorbjörn uppfærði hana á ný.
Þremur dögum síðar, 14. júli birtist svo greinin „Hvar eru störfin sem glötuðust í Namibíu“ sem Páll er skrifaður fyrir. Þar er spjótunum áfram beint að Helga Seljan auk þess sem Kristinn Hrafnsson, sem starfar hjá Wikileaks og kom að Namibíu-málinu, er einnig til neikvæðrar umfjöllunar. Í aðdraganda þeirrar birtingar áttu sér stað kunnugleg vinnubrögð. Þorbjörn sendi póst þar sem stóð meðal annars: „Þessi pistill er hugsaður fyrir Vísi. Ég ætla að senda þetta á mennina og fá álit þeirra. Svo þegar við höfum fengið grænt ljós þá sendir þú pistilinn inn.“
Myndbandaframleiðslan hefst
Í ágúst 2020 hófst birting myndbanda á vegum Samherja þar sem Helgi Seljan hefur verið helsti skotspónninn. Myndböndin hafa birst reglulega alla tíð síðan og eru í dag orðin 13 talsins. Gögnin sem Kjarninn hefur undir höndum benda til þess að fleiri hafi verið framleidd en hafi þegar verið birt, en að hluti þess hóps sem tekur þátt í áróðursstríðinu hafi lagst gegn frekari birtingu.
Í sama mánuði birtist næsta grein Páls á Vísi. Henni var beint að Svavari Halldórssyni, fyrrverandi blaðamanni og eiginmanni Þóru Arnórsdóttur, ritstjóra Kveiks. Fyrirsögn hennar var „Athugasemdin sem Svavar Halldórsson eyddi“. Hún skírskotar í að Svavar hafi eytt ummælum sem skrifuð voru í nafni Páls við stöðuuppfærslu hans á Facebook. Ummælin voru skrifuð af Þorbirni og send til Páls til birtingar. Sömu sögu er að segja um greinina sem birtist á Vísi. Þetta er hægt að sjá í tölvupóstum sem tilheyra þeim gögnum sem Kjarninn hefur undir höndum.
Sama fyrirkomulag var viðhaft við birtingu næstu greinar, sem birt var 2. október 2020 með fyrirsögninni „Þögn Aðalsteins“. Umræddur Aðalsteinn er Kjartansson og var hluti af því Kveiksteymi sem vann umfjöllunina um Namibíumálið. Degi fyrir birtingu sendi Þorbjörn tölvupóst á Pál þar sem honum var sagt að afrita textann í Word-skal, en slíkt kemur í veg fyrir að hægt sé að sjá hver höfundur upprunalega skjalsins sé.
Kjarninn næstur í röðinni
Skammur tími leið þar til að næsta grein tvíeykisins rataði á Vísi. Páll sendi Þorbirni uppkast sem Þorbjörn endurskrifaði að nánast öllu leyti, en inntak greinarinnar var að Kjarninn hefði ekki birt frétt um uppboð á aflaheimildum í Namibíu. Kjarninn birti hins vegar slíka frétt nokkrum klukkustundum áður en grein Þorbjarnar og Páls, „Þögn um uppboð“, birtist.
Á meðal helstu breytinga sem Þorbjörn gerði á greininni voru þær að bæta við kafla undir millifyrirsögninni: „Margþætt tengsl RÚV og Kjarnans“. Þar endurtók hann upplýsingar úr skjölum sem „skæruliðadeildin“ hafði safnað saman um nafngreint fjölmiðlafólk.
Þann 23. október birtist svo grein á Vísi með fyrirsögninni „Grímulaus andstaða Helga Seljan við Samherja“ sem sérstök umfjöllun er um hér að neðan.
Páll birti grein sem sonur forstjóra Síldarvinnslunnar skrifaði
Það er ekki bara almannatengslaráðgjafinn Þorbjörn Þórðarson eða lögfræðingurinn Arna McClure sem hafa haldið á penna þegar greinar birtast í nafni Páls Steingrímssonar. Í samtali Páls og Baldvins Þorsteinssonar á spjallþræði kom fram að sonur forstjóra Síldarvinnslunnar í Neskaupstað hefði skrifað greinina „Grímulaus andstaða Helga Seljan við Samherja“, sem birtist á Vísi 23. október í fyrra.
Samkvæmt upplýsingum um skjalið sem geymdi greinina sem Páll sendi á Baldvin virðist hún hafa verið samin í gegnum Word-aðgang í nafni Gunnþórs Ingvasonar, forstjóra Síldarvinnslunnar.
Páll sagði að hann hefði fengið greinina senda og tók fram að sá sem ritaði greinina gæti ekki stöðu sinnar vegna birt hana undir nafni, „en bauð mér að nota hana og persónulega myndi ég vilja að við gerðum það vegna þess hver þessi maður er.“ Baldvin les greinina og kveður svo upp sinn dóm: Þetta sé „fínasta grein“.
Þá svarar Páll: „Það er Sigurður Ingvi Gunnþórs sem á heiðurinn að greininni skil vel að hann vilji ekki setja nafnið sitt við hana.“ Umræddur huldupenni, Sigurður Ingvi Gunnþórsson, er fæddur árið 1998.
Ekki er þó rétt að eigna honum greinina að öllu leyti. Páll virðist af samskiptum að dæma hafa komið henni áleiðis til Þorbjörns. Greinin berst síðan með tölvupósti frá Þorbirni til Páls að kvöldi dags 22. október.
„Það er komið grænt ljós á greinina. Hún er talsvert breytt og er hér í viðhengi. Þú getur sent þetta á Vísi núna, ef þú vilt,“ sagði Þorbjörn við Pál.
Á þessum tíma hafði Samherji kært alls ellefu starfsmenn RÚV til siðanefndar ríkisfjölmiðilsins vegna ummæla sem þeir höfðu sett fram á samfélagsmiðlum, í flestum tilvikum sem viðbragð við árásum Samherja á samstarfsmenn þeirra. Greinin fjallaði að uppistöðu um að tjáning Helga Seljan á samfélagsmiðlum væri í andstöðu við siðareglur RÚV.
Þegar kæra Samherja barst til siðanefndar RÚV þá lá fyrir að endurskoða ætti reglurnar, enda hafði fyrri siðanefnd talið að hún gæti ekki starfað eftir þeim og starfsmenn RÚV óttuðust að hægt væri að nota reglurnar til að þagga niður í fréttaflutningi. Þrátt fyrir þetta ákvað yfirstjórn RÚV að skipa nýja siðanefnd til að takast einungis á við kæru Samherja og niðurstaða hennar var að Helgi hefði gerst brotlegur við siðareglur með fjórum ummælum á samfélagsmiðlum. Aðrir kærðir voru sýknaðir.
„Aðkeyptu mennirnir“ hafi ekkert til málanna að leggja
Nokkuð skýrt er á þeim samtölum sem eiga sér stað í mismunandi hópum mengisins að hluti hans vill ganga lengra en aðrir. Þar er helst um Örnu og Pál að ræða og í einu samtali þeirra kvartar Arna yfir því að Óskar Magnússon haldi sér utan við allt. Hún segir karlrembu einkenna hópinn sem taki ákvarðanir og að þeir séu hræddir við sterkar konur. „Þmb [Þorsteinn Már Baldvinsson] þarf bara að taka aftur völdin.“
Í öðru samtali í upphafi árs 2021 ræða þau áfram þessa stöðu. Þá segir Páll: „Bubbi [Björgólfur Jóhannsson] og Þorbjörn eru að reyna að gera sig breiða og eru alltaf að taka upp hugmyndir frá öðrum kemur ekkert frá þeim okkur til hagsbóta.“ Arna svarar honum og segir að „aðkeyptu mennirnir hafa ekkert til málanna að leggja“ og bætir við „ég þoli ekki að það sé ekki hægt að vinna saman. Ég hata þessa typpakeppni“.
Um miðjan febrúar 2021 skrifa Páll og Arna grein sem þau vilja birta en Þorbjörn breytir verulega. Páll er ósáttur með það og sendir Margréti Ólafsdóttur, ritara Þorsteins Más, tölvupóst og biður hana að koma honum á „hlutaðeigandi“. Þar stendur meðal annars: „Þið ráðið för en ég hef hins vegar lofað sjálfum mér þvi að setja ekkert fram í mínu nafni sem ég er ósáttur við.“ Af samskiptum Páls við Þorstein Má á spjallþræði þeirra tveggja má ráða að Páli hafi helst þótt greinin of bitlaus.
„Nú þarf að snúa og svo salta í sárið“
Síðasta grein Páls sem birt var á vef Vísi heitir „Hræsni góða fólksins“. Líkt og með ýmsar aðrar greinar þá voru drög skrifuð af Páli, töluverðu bætt við af Örnu og þaðan var hún send til Björgólfs til samþykkis. Það gerðist rúmum einum og hálfum mánuði eftir að tilkynnt var um að Björgólfur væri hættur sem forstjóri Samherja. Greinin var svo endurskrifuð af Þorbirni og send aftur til Páls með leiðbeiningum um hvernig eigi að koma í veg fyrir að stafræn fingraför hans séu á greininni.
Hún birtist 29. mars 2021 og fjallar að mest um viðbrögð sem urðu við niðurstöðu siðanefndar RÚV í málinu gegn Helga Seljan.
Í kjölfar birtingarinnar ræddu Arna og Páll saman um að það væri enn nóg til í vopnabúrinu til að nudda RÚV upp úr. Arna skrifaði: „Vona að óskar bubbi og Þorbjörn standi við það sem þeir hafa sagt við þig, að gefa ekki eftir. Við erum búin að stinga. Nú þarf að snúa og svo salta í sárið.“
Páll svaraði: „Stundum vildi ég óska þess að það væri meira af yfirmönnum hjá þessu fyrirtæki sem hefðu sömu hugsun og þú.“
Fyrirvari ritstjóra Kjarnans: Höfundar fréttaskýringarinnar, umfjallanir þeirra tengdar Samherja og Kjarninn í heild eru á meðal þess sem fjallað er um í greinum sem Páll Steingrímsson er skrifaður fyrir. Ritstjóri Kjarnans er auk þess á meðal þeirra sem eru til umfjöllunar í samtölum sem má finna í þeim gögnum sem þessi fréttaskýring byggist á. Þá er að finna mynd af honum í gögnunum og skjal þar sem flestir starfsmenn Kjarnans eru upptaldir.
Lestu meira:
-
2. nóvember 2022BÍ sendir umboðsmanni Alþingis ábendingu vegna máls gegn fjórum blaðamönnum
-
22. júlí 2022Hagnaður Samherja nam 17,8 milljörðum
-
15. júlí 2022„Guð minn góður, af hverju hefði ég átt að fá greiddar mútur?“
-
15. júlí 2022Fitty segir milljónirnar hafa verið ráðgjafagreiðslur frá Samherja
-
20. febrúar 2022Endalausar tilraunir til þöggunar
-
19. febrúar 2022Yfirheyrslum yfir blaðamönnum frestað
-
18. febrúar 2022Ákvæði til að verjast stafrænu kynferðisofbeldi nýtt til að gera blaðamenn að sakborningum
-
15. febrúar 2022Bjarni: „Eru fjölmiðlamenn of góðir til að mæta og svara spurningum lögreglu?“
-
15. febrúar 2022Lýsa yfir áhyggjum og undrun yfir því að blaða- og fréttamenn fái stöðu sakborninga vegna starfa sinna
-
14. febrúar 2022Blaðamenn með stöðu sakbornings fyrir að skrifa fréttir um „skæruliðadeild Samherja“