Ársreikningur Samherja Holding undirritaður með fyrirvara – Óvissa um fjárhagsleg uppgjör vegna Namibíumáls
Samherji Holding, eitt stærsta fyrirtæki landsins sem hélt utan um Namibíustarfsemi Samherjasamstæðunnar, hefur birt valdar upplýsingar úr ársreikningi sínum. Þar segir að reikningurinn sé undirritaður með fyrirvara endurskoðanda vegna óvissu „um málarekstur vegna fjárhagslegra uppgjöra sem tengjast rekstrinum í Namibíu.“ Félagið hefur ekki skilað reikningum vegna 2019 né 2020 til Skattsins líkt og lög segja til um.
Í dag voru birtar valdar upplýsingar úr ársreikningi Samherji Holding, félags sem heldur utan um þorra erlendrar starfsemi Samherjasamstæðunnar, fyrir árið 2020 áheimasíðu Samherja. Félagið, sem er eitt stærsta fyrirtæki landsins, hefur þó ekki skilað ársreikningum fyrir árin 2019 og 2020 inn til ársreikningarskráar Skattsins.
Samkvæmt lögum eiga félög með heimilisfesti á Íslandi að skila slíkum inn fyrir lok ágústmánaðar á ári hverju. Því eru um 15 mánuðir frá því að 2019-reikningur Samherja Holding átti að berast.
Á meðal þess sem er vistað inni í Samherja Holding er Namibíustarfsemi Samherja, sem er til umfangsmikillar rannsóknar hérlendis vegna meintra mútugreiðslna, peningaþvættis og skattasniðgöngu.
Í tilkynningu á heimasíðu Samherja vegna birtingar á upplýsingunum segir að hagnaður Samherja Holding hafi verið 4,3 milljarðar króna á síðasta ári, miðað við árslokagengi evru. Árið 2019, þegar Namibíumálið kom upp, var hagnaðurinn 218 milljónir króna.
Eignir Samherja Holding drógust saman á síðasta ári um 6,5 milljarða króna og voru 91,3 milljarðar króna í lok árs 2020. Ekki er útskýrt sérstaklega af hverju þetta gerðist en í tilkynningunni kemur fram að útgerð félagsins í Namibíu hafi verið aflögð og flokkist nú sem slík í ársreikningnum.
Eigið fé, munurinn á eignum og skuldum, var 61,3 milljarða króna fyrir ári síðan.
Í tilkynningunni kemur fram að fyrirvari sé gerður við ársreikninginn vegna óvissu „um málarekstur vegna fjárhagslegra uppgjöra sem tengjast rekstrinum í Namibíu.“ Sá fyrirvari er gerður bæði af stjórn Samherja Holding, sem samþykkti ársreikninginn á aðalfundi sínum í gær, og endurskoðanda félagsins.
Skipt upp í tvennt
Á árinu 2018 gerðist það að Samherja var skipt upp í tvö fyrirtæki. Það var samþykkt 11. maí 2018 á hluthafafundi og skiptingin látin miða við 30. september 2017.
Eftir það er þorri innlendrar starfsemi Samherja og starfsemi fyrirtækisins í Færeyjum undir hatti Samherja hf. en önnur erlend starfsemi og hluti af fjárfestingarstarfsemi á Íslandi í félaginu Samherji Holding ehf.
Samherji Holding er að uppistöðu í eigu Þorsteins Más Baldvinssonar, Helgu S. Guðmundsdóttur fyrrverandi eiginkonu hans og Kristjáns Vilhelmssonar, útgerðarstjóra Samherjasamstæðunnar. Inni í þeim hluta starfseminnar eru eignarhlutir Samherja í dótturfélögum í Þýskalandi, Noregi, Bretlandi og í fjárfestingafélagi á Íslandi. Þar eru þó einnig íslenskir hagsmunir, meðal annars 34,22 prósent hlutur í Eimskip, sem hefur rúmlega tvöfaldast í virði síðastliðið ár.
Í byrjun árs 2021 var greint frá því að Baldvin Þorsteinsson, sonur Þorsteins Más og Helgu, hafi verið falið að leiða útgerðarstarfsemi Samherja í Evrópu, sem fer fram í gegnum Samherja Holding.
Inni í þeim hluta er líka fjárfestingafélagið Sæból, sem hét áður Polar Seafood. Það félag á tvö dótturfélög, Esju Shipping Ltd. og Esju Seafood Ltd. sem bæði eru með heimilisfesti á Kýpur. Þau félög héldu meðal annars utan um veiðar Samherja í Namibíu, þar sem samstæðan og stjórnendur hennar eru nú grunaðir um að hafa greitt mútur til að komast yfir ódýran kvóta.
Frestur til að skila inn ársreikningi löngu liðinn
Samherji Holding hefur ekki skilað inn ársreikningi til ársreikningaskrár Skattsins vegna áranna 2019 og 2020. Karl Eskil Pálsson, upplýsingafulltrúi Samherja, sagði í svari við fyrirspurn Kjarnans í september síðastliðnum að vinna við ársreikning vegna ársins 2019 væri á lokametrunum og hann yrði tilbúinn „innan tíðar“.
Ýmsar samverkandi ástæður væru fyrir því að skil á reikningnum, sem átti samkvæmt lögum að vera skilað inn til ársreikningaskrár fyrir lok ágúst í fyrra, hefðu tafist og Karl Eskill nefndi þar sérstaklega að Samherji Holding hafi tekið þá ákvörðun að skipta um endurskoðunarfyrirtæki. Það hafi þýtt tafir á gerð ársreiknings. „Aðrar ástæður eru léttvægari en skipta þó máli til dæmis ferðatakmarkanir vegna Covid-19, sumarleyfi og þess háttar.“
Í tilkynningunni á heimasíðu Samherja í dag eru þó aðrar ástæður gefnar. Þar segir að óvissa vegna Namibíustarfseminnar og fjárhagslegra áhrifa hennar hafi „valdið þeim drætti sem orðið hefur á gerð ársreikninganna en stjórnin taldi mikilvægt að freista þess að fá sem gleggstar upplýsingar um þessa þætti áður en gengið yrði frá frá reikningunum.“
Frestur fyrirtækja af þeirri stærðargráðu sem Samherji Holding er til að skila inn ársreikningi vegna ársins 2020 rann út í lok september síðastliðins.
Ákvæði sem heimilar slit á félögum sem sinna ekki lögbundinni skilaskyldu á ársreikningum hefur verið til staðar í lögum frá árinu 2016. Kjarninn greindi frá því í haust að henni hefði aldrei verið beitt, vegna þess að það ráðuneyti sem stýrir málaflokknum,, sá hluti atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins sem heyrir undir Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur, hafi ekki gefið út reglugerð sem virkjar það.
Því hafði ákvæðið verið dauður stafur í fimm ár og engu félagi sem virt hefur lögin um skil á ársreikningi að vettugi hafði fyrir vikið verið slitið.
Ákvæðið varð virkt 18. október 2021, eftir að reglugerðin var loks gefin út.
Kjarninn greindi frá því 10. nóvember síðastliðinn að ársreikningaskrá hefði þá enn sem komið er ekki krafist skipta neinu félagi sem hefði ekki skilað ársreikningi innan lögboðins frests.
Vildu viðhalda mikilvægum fjölskyldutengslum
Þann 15. maí 2020 birtist tilkynning á heimasíðu Samherjasamstæðunnar um að Þorsteinn Már, Helga og Kristján væru að færa næstum allt eignarhald á Samherja hf. til barna sinna. Þau myndu hins vegar áfram að vera eigendur að erlendu starfseminni, og halda á stórum hlut í Eimskip, sem hefur frá 2018 verið vistað inni í Samherja Holding.
Í tilkynningunni kom fram að Baldvin og Katla Þorsteinsbörn myndu eignast 43 prósent í Samherja hf. Samhliða var greint frá því að Dagný Linda, Halldór Örn, Kristján Bjarni og Katrín, börn Kristjáns Vilhelmssonar, myndu fara samanlagt með um 41,5 prósent hlutafjár. Í tilkynningunni sagði að með þessum hætti „vilja stofnendur Samherja treysta og viðhalda þeim mikilvægu fjölskyldutengslum sem félagið hefur ætíð byggst á og hafa verið hornsteinn í rekstrinum.“ Þar kom einnig fram að undirbúningur breytinganna á eignarhaldinu hafi staðið undanfarin tvö ár en áformin og framkvæmd þeirra voru formlega kynnt í stjórn félagsins á miðju ári 2019.
Í maí 2020, þegar Kjarninn leitaði eftir upplýsingum um með hvaða hætti framsal hlutabréfa foreldra til barna hefði átt sér stað, fengust þau svör hjá Björgólfi Jóhannssyni, þá annars forstjóra Samherja, að annars vegar hefðu börnin fengið fyrirframgreiddan arf, og hins vegar væri um sölu milli félaga að ræða.
Ekki hafa fengist upplýsingar hjá Samherja um virði þess hlutar sem tilkynnt var um að færður hefði verið á milli kynslóða né hvernig tilfærslunni var skipt milli fyrirframgreidds arfs og sölu.
Skulda foreldrum sínum á fjórða tug milljarða
Í ársreikning Eignarhaldsfélagsins Steins, sem heldur utan um 43,48 prósent eign Þorsteins Más og Helgu í Samherja Holding ehf. fyrir árið 2019 kemur hins vegar fram að bókfærður eignarhlutur þess í Samherja hf. hafi farið úr 21,8 milljörðum króna í um 550 milljónir króna.
Á sama tíma fór vaxtaberandi kröfur á tengda aðila úr því að vera engar í að vera 26,9 milljarðar króna.
Í ársreikningi Eignarhaldsfélagsins Steins fyrir árið 2020 er hluturinn í íslenska Samherja kominn í krónur núll. Langtímakröfur á tengda aðila eru hins vegar bókfærðar á 214 milljónir evra, eða um 33,5 milljarða króna. Á meðal þeirra sem teljast sem tengdir aðilar eru nánir fjölskyldumeðlimir. Því er þarna um að ræða lán foreldranna Þorsteins Más og Helgu til barna sinna, Baldvins og Kötlu.
Félag barnanna, K&B ehf., hagnaðist um 20,8 milljónir evra, um 3,2 milljarða króna, á síðasta ári. Hrein eign félagsins nam um 44,7 milljónum evra, um 6,9 milljörðum króna, um síðustu áramót. Eignir félagsins voru bókfærðar á tæplega 40 milljarða króna en á móti þeim eignum eru skuldir upp á 33 milljarða króna.
Lestu meira:
-
2. nóvember 2022BÍ sendir umboðsmanni Alþingis ábendingu vegna máls gegn fjórum blaðamönnum
-
22. júlí 2022Hagnaður Samherja nam 17,8 milljörðum
-
15. júlí 2022„Guð minn góður, af hverju hefði ég átt að fá greiddar mútur?“
-
15. júlí 2022Fitty segir milljónirnar hafa verið ráðgjafagreiðslur frá Samherja
-
20. febrúar 2022Endalausar tilraunir til þöggunar
-
19. febrúar 2022Yfirheyrslum yfir blaðamönnum frestað
-
18. febrúar 2022Ákvæði til að verjast stafrænu kynferðisofbeldi nýtt til að gera blaðamenn að sakborningum
-
15. febrúar 2022Bjarni: „Eru fjölmiðlamenn of góðir til að mæta og svara spurningum lögreglu?“
-
15. febrúar 2022Lýsa yfir áhyggjum og undrun yfir því að blaða- og fréttamenn fái stöðu sakborninga vegna starfa sinna
-
14. febrúar 2022Blaðamenn með stöðu sakbornings fyrir að skrifa fréttir um „skæruliðadeild Samherja“