Tími þagnarinnar liðinn – Sögurnar allar
Hér má finna frásagnir hundruð kvenna þar sem þær lýsa kynbundnu ofbeldi, áreitni og mismunun.
Fáir hafa væntanlega farið varhluta af #Metoo-byltingunni sem gengið hefur yfir heiminn að undanförnu. Konur úr öllum heimshornum hafa sagt sögu sína og lýst reynslu sinni af kynbundnu ofbeldi, áreitni og mismunun sem á sér stað. Íslenskar konur hafa gert slíkt hið sama og tók Kjarninn saman yfirlýsingarnar og frásagnirnar sem birst hafa.
Konur í stjórnmálum riðu á vaðið og sendu frá sér áskorun þann 24. nóvember síðastliðinn. Síðan þá hefur fjöldi starfsstétta og samfélagshópa gefið út yfirlýsingar þar sem kynferðislegu áreiti, ofbeldi og mismunun er mótmælt. Krafan er skýr: Konur vilja breytingar, að samfélagið viðurkenni vandann og hafna núverandi ástandi. Þær krefjast þess að samverkamenn þeirra taki ábyrgð á gjörðum sínum og að verkferlar og viðbragðsáætlanir verði gangsettar.
Nú hafa tæplega 5.650 konur úr ýmsum starfsstéttum sem lifa við margs konar aðstæður skrifað undir áskorun þar sem þær setja fram kröfur sínar og deilt með þjóðinni 815 sögum. Hver og ein frásögn lýsir reynslu konu sem þurft hefur að takast á við áreiti, ofbeldi eða mismunun vegna kyns síns.
Konur í stjórnmálum
Rúmlega fjögur hundruð undirskriftir bárust með áskorun til stjórnmálanna.
„Við krefjumst þess að allir karlar taki ábyrgð, að allir stjórnmálaflokkar taki af festu á málinu, setji sér viðbragðsreglur og lofi konum að þær þurfi ekki að þegja meir því þær muni fá stuðning.“
Áskorun
Frásagnir kvenna í stjórnmálum
Konur í sviðslistum og kvikmyndagerð
Tæplega sex hundruð konur skrifuðu undir áskorun að fá að vinna vinnuna sína án áreitni, ofbeldis eða mismununar.
„Við krefjumst þess að karlkyns samverkamenn okkar taki ábyrgð; að yfirvöld, leikhús og framleiðslufyrirtæki taki af festu á málinu og komi sér upp verkferlum og viðbragðsáætlun.“
Áskorun
Frásagnir kvenna í sviðslistum og kvikmyndagerð
Konur í tækni-, upplýsinga-, og hugbúnaðariðnaði
Hátt í þrjú hundruð konur skrifuðu undir yfirlýsingu þess efnis að áreitni, ofbeldi og mismunun eigi ekki að líðast.
„Við krefjumst þess að allir samverkamenn okkar taki ábyrgð á að uppræta vandamálið; að viðeigandi yfirvöld, stéttarfélög og fyrirtæki í hugbúnaðar, vef og tækniiðnaði taki af festu á málinu.“
Áskorun og frásagnir kvenna í tæknigeiranum
Konur í tónlist
Yfir þrjú hundruð konur skrifuðu undir áskorunina þar sem þær krefjast þess að fá að vinna vinnuna án áreitni, ofbeldis eða mismununar.
„Við eigum ekki að þurfa að þegja lengur né leiða ástandið hjá okkur. Við verðskuldum að okkur sé trúað og sýndur stuðningur. Fyrst og fremst á misréttinu að linna.“
Áskorun og frásagnir kvenna í tónlist
Konur úr réttarvörslukerfinu
Ríflega hundrað og fimmtíu konur skrifuðu undir áskorunina.
„Konur innan réttarvörslukerfisins krefjast þess að vinna gegn kynbundnu ofbeldi og áreiti verði sett í forgang og að allir vinnuveitendur taki ábyrgð á að uppræta vandamálið.“
Áskorun
Frásagnir kvenna í réttarvörslukerfinu
Konur í vísindum
Yfir tvö hundruð og fimmtíu konur skrifuðu undir yfirlýsingu og kröfðust breytinga.
„Við krefjumst þess að allir karlar taki ábyrgð, að allir vinnustaðir taki af festu á málinu, setji sér forvarnaráætlanir og viðbragðsreglur og lofi konum að þær þurfi ekki að þegja meir því þær muni fá stuðning.“
Áskorun
Frásagnir kvenna í vísindum
Konur í læknastétt
Rúmlega þrjú hundrum og fimmtíu konur undirrituðu yfirlýsingu þess efnis að kynbundið áreiti, ofbeldi og mismunun í starfi sé óásættanlegt ástand.
„Við væntum þess að allir samstarfsmenn okkar og stjórnendur taki höndum saman til að uppræta þennan ósóma.“
Áskorun og frásagnir kvenna í læknastétt
Konur í flugi
Tæplega sex hundruð konur hafa skrifað undir áskorun þar sem þær hafna kynferðislegri áreitni og mismunun.
„Við eigum ekki að þurfa að þegja lengur né leiða ástandið hjá okkur. Við verðskuldum að okkur sé trúað og sýndur stuðningur.“
Áskorun
Frásagnir kvenna í flugi
Konur í fjölmiðlum
Tæplega tvö hundruð og fimmtíu konur skrifuðu undir áskorun og sögðu núverandi ástand ekki lengur boðlegt
„Við krefjumst breytinga og skorum á íslenska fjölmiðla að taka meðfylgjandi frásagnir alvarlega, setja sér siðareglur varðandi áreitni og kynferðislegt ofbeldi og fylgja þeim eftir.“
Áskorun og frásagnir kvenna í fjölmiðlum
Konur í heilbrigðisþjónustu
Yfir sex hundruð konur skrifuðu undir og kröfðust þess að heilbrigðisyfirvöld landsins, stéttarfélög, fyrirtæki og stofnanir á heilbrigðissviði viðurkenndu vandann.
„Við erum hættar að þegja til að halda friðinn, við segjum okkar sögur og krefjumst úrbóta.“
Áskorun og frásagnir kvenna í heilbrigðisþjónustu
Konur í menntakerfinu
Ríflega sjö hundruð konur skrifuðu undir yfirlýsinguna og sögðu að konur eigi rétt á því að sinna sínu fagi og vinna vinnuna án áreitni, ofbeldis eða mismununar.
„Við stöndum saman! Við höfum hátt! Við krefjumst breytinga!“
Áskorun og frásagnir kvenna í menntakerfinu
Konur í verkalýðshreyfingunni
Konur í verkalýðshreyfingunni sendur frá sér yfirlýsingu þar sem þær segja að það sé jafn nauðsynlegt, bæði innan verkalýðshreyfingarinnar og utan, að brugðist sé við vitundavakningunni og skapað verði andrúmsloft þar sem þolendur treysta sér til þess að segja frá.
„Við krefjumst þess að samtök launafólks hlusti á þær hugrökku konur sem stíga fram og rjúfa þögnina.“
Áskorun
Konur í iðngreinum
Tæmlega tvö hundruð konur skrifuðu undir áskorunina og gáfu út yfirlýsingu.
„Það er mikilvægt að eyða þessu „konur kunna ekki“-viðhorfi úr iðnaðarstörfum á Íslandi. Við tókum sama nám og sömu próf og þeir iðnaðarmenn sem við vinnum með.“
Áskorun
Frásagnir kvenna í iðngreinum
Konur í prestastétt
Ríflega sextíu konur skrifuðu undir áskorunina.
„Þjóðkirkjan hefur líkt og mörg önnur félagasamtök og stofnanir markað stefnu og búið til úrræði í þessum málum en sögur kvenna í kirkjunni sýna að mikið verk er óunnið þar sem annars staðar í samfélaginu.“
Áskorun
Frásagnir kvenna í prestastétt
Konur í íþróttum
Rúmlega fjögur hundruð og sextíu konur skrifuðu undir áskorunina.
„Ljóst er að kynbundið ofbeldi, áreitni og mismunun er vandamál í hinum karllæga íþróttaheimi Íslands líkt og á öðrum stöðum í samfélaginu.“
Áskorun
Frásagnir kvenna í íþróttum
Konur af erlendum uppruna
Tæplega hundrað konur skrifuðu undir yfirlýsingu.
„Konur af erlendum uppruna krefjast nú sömu athygli og íslenskar kynsystur þeirra og að samfélagið bregðist við þeirra frásögnum með sama hætti og frásögnum íslenskra kvenna.“
Áskorun á íslensku og ensku
Frásagnir kvenna af erlendum uppruna
Fjölskyldutengsl
Tæplega hundrað og fimmtíu konur skrifuðu undir yfirlýsingu.
„Okkur þykir einnig rík ástæða til að minna á að konur verða oftast fyrir ofbeldi heima hjá sér. Ofbeldi innan fjölskyldu og í nánu sambandi er samfélagsmein sem við verðum í sameiningu að ráðast að og uppræta.“
Áskorun og frásagnir kvenna - Fjölskyldutengsl
Von er á fleiri áskorunum og frásögnum frá öðrum starfsstéttum og samfélagshópum og mun Kjarninn birta þær hér þegar þær verða gerðar opinberar.
Kynbundið ofbeldi hafði varanleg áhrif
Ragnhildur Ágústsdóttir sagði sögu sína í aðsendri grein á Kjarnanum fyrir stuttu þar sem hún steig fram með frásögn af atviki sem hún varð fyrir árið 2009, þá barnshafandi. Atvik sem hún vill meina að hafi falið í sér klárt kynbundið ofbeldi. „Það hafði varanleg áhrif á mig og mín lífsviðhorf og setti vafalítið afgerandi strik í reikninginn hvað varðar mína framtíð sem upprennandi stjórnanda í tæknigeiranum,“ skrifar hún.
Hún var beitt kynbundnu ofbeldi af mönnum sem lokuðu hana inni í fundarherbergi, neyddu hana til að skrifa undir samning og meinuðu henni útgöngu. Málið vakti mikla athygli í fjölmiðlum og hefur einn mannanna m.a. beðið hana afsökunar.
„Ég hef álasað sjálfa mig fyrir að hafa þagað yfir málinu. Að hafa ekki sagt frá og þar með lagt mitt á vogarskálarnar til að forða því að menn af þessu tagi kæmust í áhrifastöður. Að hafa með þögninni stefnt öðrum konum í hættu. En ekki lengur. Tíminn þagnarinnar er liðinn. Við verðum, sem þjóðfélag, að rísa upp gegn kúltúr sem lætur einstaklinga halda að þeir geti traðkað yfir annað fólk á skítugum skónum. Við verðum, sem þjóð, að krefjast þess að virðing sé borin fyrir öllum og standa vörð um þá hugsjón.“
Lesa meira
-
29. desember 2022Öfga uppgjör
-
25. desember 2022Hátíðarhugvekja: Heimilisofbeldi um jólin og gerendameðvirkni í lok árs
-
27. september 2022Stjórn Ferðafélags Íslands hafnar lýsingum fráfarandi forseta
-
27. september 2022Fyrsti kvenkyns forseti Ferðafélagsins segir af sér vegna framferðis stjórnarkarla
-
20. ágúst 2022Teymi þjóðkirkjunnar hætt að kanna mál konu sem ásakaði prest um kynferðisbrot
-
7. júlí 2022Vítalía búin að gefa skýrslu hjá lögreglu
-
5. júní 2022Vítalía um fráfarandi forstjóra Festi: „Ég á Eggerti mikið að þakka“
-
25. maí 2022Einstaklingar sem eru til rannsóknar skuli stíga til hliðar
-
24. maí 2022„Á meðan helvítis eftirspurnin er þá er framboð“
-
28. apríl 2022„Var ólofaður og ógiftur þegar þetta átti sér stað“